Alþýðublaðið - 23.03.1963, Page 12

Alþýðublaðið - 23.03.1963, Page 12
erson“, sagði hann, „þetta var aldeilis fjársjóður. Ég geri ráð fyrir að þér vitið, hvað þér er- uð með?“ „Demant, herra! Gimstein! Hann sker gler, eins og það væri kítti.“ a „Það er meira en gimsteinn. Það er gimsteinninn.“ „Þó ekki blái roðastcinninn greifynjunnar af Morcar?“ hrópaði ég. , „Einmitt. Ég ætti að þekkja stræð lians og lögun eftir að hafa lesið auglýsingu um hann í The Times á hverjum degi lípp á síðkastið. Hann er algjör lega einstæður, og það er að'- eins hægt að geta sér til um verðmæti lians, en þau þúsund punda fundarlaun, sem lieitið hefur veriö, eru vissulega ekki tuttugasti hluti markaðsverðs hans.“ „húsund pund Guð minn góð ur!“ Dyravörðurinn lét fallast niður á stól og starði á okkur á víxl. „Það eru fundarlaunin, og ég hef ástæðu til að ætla, að við hann séu tengdar tilfinningar, sem fengið gætu greifynjuna til að gefa hehning eigna sinna, ef hún gæti fengið hann aftur.“ „Hann týndist, ef ég man rétt, á Cosmopolitanhótelinu“, sagði ég. „Einmitt. Ttuítugasta og ann an desember, fyrir nákvæmlega fimm dögum. John Horner, pípulagningarmaður, var sakað ur um að hafa stolið honum úr gimsteinaskrýni frúarinnar. Sannanirnar gegn honum voru svo sterkar, að málinu hefur verið skotið til dómstólanna. Ég hef hér frásögn af málinu, ef ég man rétt.“ Hann rótaði í blöðunum, skoðaði dagsetning arnar, þar til hann að lokuin slétti úr einu og las eftirfar- andi málsgrein: « „Gimsfceinaþjófnaðuu á Cos mopolitanhóteli. John Horn- er, 26 ára gamall píulagningar maður, var ákærður fyrir að hafa, hinn 22. þ. m., stolið úr gimsteinaskríni greifynjunnar af Morcar hinum dýrmæta gim steini, sem gengur undir nafn inu blái roðasteinninn. James Ryder, gangaþjónn á hótelinu, bar vitni um, að hann hefði vísað Horner inn í klæðaher- bergi grcifynjunnar af Morcar þann dag, er ránið var framið, svo að hann gæti soðið saman lausan staufc í aringrindinn, sem var laus. Hann hafði veriö um stund hjá Ilorner, en að síð- ustu verið kallaður burtu. Er hann kom til baka, sá hann, að Horner var horfinn, að skrif- borðið hefði verið brotið upp og að lítill leðurkassi, sem í ljós kom síðar að greifafrúin var vön að geyma gimsteina sína í, lá tómur á borðinu. Ryder tilkynnti þetta þegar í stað, og Horner var handtek- inn sama kvöldið, en steinninn fannst hvorki á honum nó heima hjá honum. Catherine Cusack, þjónustustúlka greif- yujunnar, bar, að hún hefði heyrt skelfingaróp Ryders, er hann uppgötvaði ránið og hefði hún hlaupið inn í herbcrgið, þar sem sá hlutinn í því á- standi, sem síðasta vitni hafði lýst. Bratístreet, lögreglufor- ini frá B-deild, bar vitni um handtöku Horners, sem barðist um ákaflega og hélt fram sak- leysi sínu með sterkustu orð- um. Þar eð vitni höfðu skýrt frá því, að fanginn hefði áður verið sakfellur fyrir þjófnað, neitaði lögregluréttardómarinn að fást við málið, en vísaði því úil glæpamálaréttarins. Horner, sem sýnt hafði merki mikillar geðshræringar á meðan á rétt arhaldinu stóð, missti meðvit- und í loks þess og var borinn út úr réttinum". „Hm! Þetta var það, sem gerð ist í lögregluréttinum", sagði Holmes liugsandi og fleygði blaðinu frá sér. „Spurningin, sem við nú stöndum frammi fyrir, er að ráða þá atburðaröð, sem Ieitt hefur frá brotnu skart gripaskríni annars vegar til sarps í gæs á Tottenhams Court Road hins vegar. Þú sérö, Watson, að hinar lítilfjör legu ályktanir okkar hafa skyndilega fengið á sig veiga meiri cg minna sakleysislegan svip. Hér cr steinninn. Steinn- inn kom úr gæsinni, og gæsin kom frá herra Henry Baker, manninum me'ð vonda hattinn og öll hin sérkennin, sem ég hef verið að hrella þig með. Við verðum því að fara í það nú að finna þann heiðursmann, og ganga úr skugga unt, hvaða þátt hann hefur átt í þessu dul arfulla máli. í þessu augnamiði verðum við að reyna einföld- ustu aðferðina fyrst, og hún er vafalaust auglýsing í öllum kvöldblöðunum. Ef það bregzt, verðum við að beita öðrum að ferðum.“ „Hvað ætlarðu að segja í aug lýsingunni?" „Réttu mér blýant og þcnn an pappirsmiða. Jæja, þá: Fundizt hafa á horni Goodge Street gæs og svartur hattur. Herra Ilenry Baker getur feng ið hvort tvcggja mcð því að snúa sér til Baker Street 221B kl. 6,30 í kvöld. Svona þetta cr stutt og laggott.“ „Mjög svo. En sér hann það?“ „Já, liann hlýtur að liafa auga með blöðunum, því að tjónið var mikið fyrir fátækan mann: Ilann varð sennilega svo hræddur vegna þeirrar ó- heppni sinnar að brjóta glugg- ann og vegna komu Petersons, að honum hugkvæmdist ekki annað en flýja. En siðan hlýt- ur hann að hafa séð mikiö eft- ir því viðbragði, sem varð til þess, að hann missti fuglinn. Auk þess mun birting nafns hans verða til þess, að hann sér auglýsinguna, því að allir, sem þekkja hann, munu beina at- hygli hans að henni. Hérna, Peterson, hlaupið niður á aug lýsingaskrifstofu og látið setja þetta í kvöídblööin." „Ilvert þeirra, herra?“ „Ó, í Globe, Star, Pall Mall, St. James's, Evening News, Standard, Echo og öll önnur, sem þér kunnið að muna cft- ir.“ „Ágætt, herra. Og hvað með steininn?" „Já. Ég skal geyma steininn. Þakka yður fyrir. Og heyrið þér, Petcrson, kaupið gæs á leiðinni til baka og skiljiö hana eftir hérna hjá mér, því að við verður að hafa eina slíka til að láta þeunan herramann fá í stað þeirrar, sem fjölskylda yð ar er nú að háma í sig.“ Þegar dyravörðurinn var far inn," tók Holraes upp steininn og brá honum upp a'ð Ijósinu. „Hann er fallegur“, sagði hann. „Sjáð'u bara hvernig hann glitrar og skín. Auðvitað er hann sá kjarni og brenni- depill, sem glæpir myndast um. Allir góðir steinar eru það. Þeir eru uppáhaldsbeita djöf- uisins. í göndum og stórum steinum getur hver flötur tákn að blóði drifinn verknað. Þessi steinn er enn ekki tuttugu ára gamall. Hann fannst á bökkum Amoyár í Suður-Kína og er sér kcnnilegur að því leyti að hann hefur eðliseiginlcika roða steins, nema hvað hann er blár að lit í stað þess að vera rúbín rauður. Þrátfc fyrir æsku sína, — Hvar er ég? Eða öllu heldur hver er ég? — Jæja ofursti, við héldum að allar þess ar skemmtilegu sögur, sem þér hafið verið að segja okkur, væru af sjálfum yðar. — Læknir, Stál ofursti er kominn til meðvitundar, en það er engin litbreyting í augum hans. — Það kann að vera, að hann hafi alls ekki höfuðkúpubrotnað. — Það var gott. — Eins og ég bjóst við. Maður þarf ekki nema aöeins og lita á forsögu málsins. Ofsa reið kona henti sfceini í ofurstann, og allar hjúkrunarkonurnar, sem hafa annast hann verða alveg þrælruglaðar. 12 23. marz 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.