Alþýðublaðið - 23.03.1963, Side 13

Alþýðublaðið - 23.03.1963, Side 13
 PARÍS, 21. marz (NTB-AFP). Fidel Castro forsœíisráðherra segir í viðtaii við Parísarblaðið „Le Monde“, að hann sé ósam- mála Krúsíjov forsætisráðherra varðandi brottflutning sovéztcu eldflauganna frá Kúbu. Castro segir, að fullveldi Kúbu sé staðreynd. Þess vegna hefði Krústjov ekki átt að íall- ast á að senda eldflaugarnar burtu án þess að ráðfæra sig við kúbönsku etjórnina fyrst. Við erum ekkert leppríki, og ljóst er að Sovétríkin hafa al- þjóðlega ábyrgð, sem Kúba hef ur ekki, segir Castro. Castro segir, að það hafi ver- ið Sovétríkin, sem buðust til að koma á fót eidflaugastöðvum á Kúbu. Aðsputður hvers vegna Krústjov hefði látið flytja þær burtu svo skyndilegá sagði Castro: ,,Hver veit? Ef til vitl geta sagnfræðingarnir komizt að því á næstu 20-30 árum.“ BONN, 21. marz (NTB-Reut- er). Stjórti n i Vestur-Þýzka- landi mun gera allt sem í henn- ar valdi stcndur til þess að binda endi á þaó að vestur-þýzk ir vísindamenn t áii sig til starfa við vísindafranvivæmdir criend- is er aukið gtfi spennu niilli annarra ríkja. Þetta var haft cftir stjórn- inni í kvöid, en fyrr um daginn haföi hún ræ , tilmæli ísraels stjórnar um a:3 koma yrði í veg fyrir, að þýzkir vísindamenn störfuðu -viö eldflaugafram- kvæmdir í Arabíska sambands- lýðveldinu. Þessi vísindastarf- semi hefur vakið mikinn ugg í ísrael. Lögð er á það áherzla af hálfu stjórnarinnar, að hún harmi það, að þýzkir vísinda- menn stuðii að aukinni spennu ' í heiminum með starfi sínu. Á hinn bóginn torvelda stjórnar- skrá og löggjöf Vestur-Þýzka- lands stjórninni miög að sker- ast beinlínis í leikinn gagnvart slíkum vísindamönnum. PARÍS, 21. marz (NTB-Ueut- er). Algert umferðaröngþveiti var á mestu umferðatímunum í Frakklandi í dag þegar járn- brautastarfsmenn gerðu tveggja tíma verkföll í hvert skipti er vaktir hófust en þær cru þrjár. Horfurnar voru enn dlmmar í dag. Þá eru neðanjarðarjárnbraut ir og járnbrautir í úthverfum Parísar í hættu vegna fjiigurra tíma vcrkfalls rafmagnsstarfs- manna, sem hótað er. Þetta verkfall mun einnig verða t'l þess að umferðarljósin slokkna. MOSKVA, 21. marz (NTB Reuter). Sovczka blaðið „Kaz- akstan Pravda“ skýrði frá því I dag, að þúsundir starfsmanna verzlunarsamtaknna í Kazkst- anlýðveldinu'hefðu verið svípt- ir störfum í fyrra vegna stór- fellds fjárdráttar og anuarra glæpa. Tölur þcssar komu frarn í umsögn um ræðu, sem aðalritari kommúnistaflokks lýðveldisins, ísmail Jusupov, hélt á fundi í Alma Ata. Jusupov sagði, að 2340 starfs menn smávöruverzlunar-ráðu- lýðveldisins hefðu verið svipiir ' störfum. Enn fremur hefði rúm lega 16 þús. starfsmenn ann- arra verzlunarsamtaka verið ■ sviptir embættum. PARÍS, 21. marz (NTB-Peut- er-AFP). Sendiherra Bamla- ríkjanna hjá Sþ, Adlai Steven- son, ráðfærði slg í dag við sendi herra Bandaríkjanna hjá NATO Thomas Finletter, og aðra bandaríska embættismenn. Stev ensons er um þessar mundir í hálfopinberri hcimsókn í París. Bandarískir heimildarmenn áttu mjög erfitt með í dag að bera til baka nokkrar blaðafregn ir um ástæðuna til Evrópuíerð- ar Steveasons. Heimildarmenn- irnir báru til baka forsíðufrcgn í blaðinu „Paris-Presse“ þar sem sagði, að verkefni Steven- sons í París væri að kippa hin- um slæmu samskiptum banda- rísku stjórnarinnar og þeirra frönsku í lag, og heimsækja de Gaulle. ÞRÍR bátar út trefjaplasti, sem eru framleiddir hér á landi, voru reyndir á Reykja víkurliöfn í gær. Voru það neinendur úr Stýrimanna- skólanum, sem sigldu bátun um, og virtust þeir vera hin ágætustu sjóskip. Voru þeir knúðir áfram af Evenrude utanborðsmótorum. Myndin er tekin skömmu áður en þeir lcgðu af stað í sigling- una, og eins og sjá má eru þcir af þrem stærðum, og í þeim sitt livor stærðin af mótorum. Grein Gylfa Framli. úr opnu. að Efnahagsbandalaginu. ílvað skyldi Tíminn hafa sagt um mig eða einhvern annan ráðherra, ef við hefðum látið okkur slíkt um munn fara? Er þetta ekki nóg til að sltýra eðli þeirra skrifa, sem lesa hefur mátt í Tímanum uin þessi efni undanfarnar vikur'? Eftir skrif Tímans um Þjóðminja safnsávarp mitt, hlýt rg að telja blaðinu bera skylda til að skýra fyrir þjóðinni afstöðu sína til heirra skoðana, sem varaformaður Framsóknarflokksins, prófessor Ó1 j afur Jóhannesson, lét í Ijós í há- ; skólafyrirlestri þeim, sem ég hefi hér vitnað til. Augljást er, að rit- stjórn Tímans hefur lagt sig undir snoppung frá varatormanni flokks ins. Ef til vill kýs ritstjórnin að snoppunga varaformanninn í stað inn. Ef til vill réttir hún fram hinn vangann< En þagað getur | blaðið ekki lengur um háskólafyrir j lestur varaformannsins. I Valtýr Stefánsson Framh. af 4. síðu Valtýr Stefánsson var ræktun- .-umaður af heilum liuga. Hann ’ann að ræktun landsins. og hafði brennandi áhuga á því máli. Hann skrifaði um sandgræðslu, um tún ækt, um garðrækt og skógrækt. - Hann studdi góð mól af sama hug. Hann var ekki stjórnmálamað- ui. Hann var í innsta eðli sínu rit- höfundur og listamaður. v.s.v. Laust starf KÓPAVOGSKAUPSTAÐUR óskar að ráða forstöðukonu við leikskóla og dagheimili, frá 1. júlí n.k. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, meðmælum og kaupkröfu, sendist bæjarstjóranum í Kópa- vogi fyrir 15. apríl n.k. Logtok Að kröfu gjaldheimtustjórans, f. h. Gjaldheimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 21. þ. m., verða lögtök látin fram fara til tryggingar ógreidd- um fasteignasköttum og brunabótaiðgjöldum til borgarsjóðs Reykjavíkur, en gjalddagi þeirra var 15. janúar s.l. Lögtökin fyrir framangreindum gjöldum, ásamt dráttár- vöxtum og kostnaði, verða látin fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík, 21. marz 1963. Kr. Kristjánsson. Innilegar þakkir færi ég öllum vinum og vandamönnum, nær og fjær, sem heiðruðu mig sjötugan 1. marz s.l. mcð heimsóknum, skeyt-j um og hlýjum handtökum, og gerðu mér og fjölskyldu minni dag- inn ógleymanlegan. Drottinn blessi yður ÖU. Gísli Sigurgeirsson, Hafnarfirði. Raftækjaverzlunin Ljós og Hiti tilkynnir: Opnum í dag nýja sölubúð að GARÐASTRÆTI 2. Fjölbreytt úrval af alls konar rafmagnsvörum. — Gjörið svo vel að líta inn. LJÖS & HITI Garðastræti 2. — Sími 15184. VERKAFÓLK Óskum eftir að ráða verkafólk nú þegar til skreiðar- vinnslu. — Mikil vinna. Jón Gíslason sf. Hafnarfirði. — Sími 50865. Tónleikar Framh. úr opnu. kaflanum notar höfundur þjóð- lagastef, sem Jón Leifs hefur áð- ur notað, og er gaman að bera saman úrvinnslu þeirra. í adagio- kaflanum fannst mér sem höfund- ur mundi hafa villzt á „Ireland“ og ,,Iceland“, temað þar miklu lík ara ýmsu, sem saman hefur verið sett á írlandi eða Suðureyjum, en hinum tiltölulega fáskrúðugu rímnastefjum, sem alltaf hafa ver- ið talin svo týpísk fyrir ísland. G. G. * Odýrar I Bdrnagallabuxurj Miklatorgi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. rnatz 1963 |,3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.