Alþýðublaðið - 30.03.1963, Qupperneq 5
NÝ VFfiAIflfi FKKI SFIT
Á ÞESSU ÞINGI, ZL
MIKLAR umræ'ður urðu utan
dafrskrár í ncðri deild Alþingis
f gær um endurskoðun vegaiag-
anna. Skýrði samgöngumálaráð-
herra, Ingólfur Jónsson, frá því við
umræðurnar, að frumvarp að nýj-
um vegalögum yrði ekki lagt fyrir
yfirstandandi þing, þar eð endur-
skoðun laganna væri ekki lokið
Kvaðst ráðhcrrann hafa faíið miili-
þinganefndinni, er unnið hefur að
endurskoðun vegalaga, að starfa
áfram.
Halldór E. Sigurðsson (F),
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár
í upphafi fundar í neðri deild AJ-
þingis í gær. Kvaðst hann hafa
undir höndum bréf, er Benedikt
Gröndal, sem sæti á í milHbinga-
nefndinni, hefði sent kjósendum
sínum í Vesturlandskjördæmi, en
í bréfinu voru gefnar ýmsar uþp-
lýsingar um endurskoðun vr.'alag-
anna. Las Halldór síðan langan
kafla úr umræddu bréfi.
Halldór kvaðst telja það óeðli-
legt, að skýrt væri frá störfum
milliþinganefndar opinberlega áður
en tillögur nefndarinnar væru lagð
ar fyrir Alþingi. Kvaðst Halldór
vilja spyrja samgöngumálaráð-
Ódýr
barnanæríöí
mHMlllllnmilniuiimiiniiiniiiiiiiiiinii......-
■■■
.'.V.V.'.'.V V l Vr" h ’'" " i 1111 llVlMíM,
...............
iliiHMmmiti
• MIMIMIMMIM
jmiiiiiifnim*
.liiiiniiiiimM
[lllllllMIMIIMI
'HIIIIIIIIIIIM'
llllllllllMM'
***♦ V"" 11 f> 11 (i M11111111111111M111 , Iwi ii liiVmS'
Miklatorgi.
herra, hvort þingmenn mundu ekki
geta fengið álit milliþinganefndar-
innar um vegamál, úr því að einn
nefndarmanna væri þegar byrjað-
ur að birta hluta af álitinu.
Ingólfur Jónsson, samgöngumála
ráðherra tók til móls. Hann kvaðst
vilja taka það skýrt fram að hann
hefði aldrei gefið nein fyrirheit
um það, að frum
varp að nýjum
vegaiögum yrði
lagt fram á yfir-
standandi i ig(.
Ráðherrann
sagði, að snil.ir
þinganefndin
hefði talið sig
hafa lokið störfr
um í vetur og
hún hefði skil-
að tillögum sísi-
um til ríkisstjórnarinnar. Ingólfur
kvaðst hafa verið andvígur nokkr-
um atriðum í tillögum nefndarinn-
ar og hafa sent milliþinganefndinni
athugasemdir í 8 liðum og óskað
efítir að nefndin liæfi störf að nýju
og tæku athugasemdir hans til
athugunar. Þetta hefði minniþinga
nefndin nú gert. Ráðherrann kvaðst
sér vera kunnugt um það, að vega-
laganefndin hefði talið æskilegt,
að unnt yrði að bera fram nýtt
vegalagafrumvarp á þessu þingi.
En er um slíkt stórmál væri að
ræða sem endurskoðun vegalaga,
væri það ekki óeðlilegt þó málið
væri vel og rækilega undirbúið.
Ingólfur kvaðs telja það óeðli-
legt að farið væri að útbýta tillög
um rnilli'pinganefndarinnar áður
en nefndin hefði lokið störfum.
Þó kvaðst hann skyldi færa það at-
riði í tal við formann nefndarinnar
og ef nefndin vildi birta tillögurn-
ar muni hann ekki leggjast gegn
því.
Benedikt Gröndal (A) tók til
máls. Hann sagði, að bréf það, er
Halldór Sigurðsson hefði lesið úr
væri einkabréf,
er hann hefði
ritað kjósend-
um sínum í Yest
urlandskjör-
dæmi. Enginn
trúnaður væri,
brotinn me'ð j
því að veita upp !
lýsingar í slíku
bréfi.
Benedikt sagði, að vegalaganefnd
in hefði talið sig hafa lokið störfum
fyrir nokkru. Kvaðst Benedikt haía
ritað umrætt bréf, er málið stóð
þannig. Síðar hefði samgöngu-
málaráðherra ritað milliþinga-
nefndinni bréf og beðið hana að
hefja störf að nýju og það hefði
nefndin gert.
Benedikt kvað það ekkert laun-
ungarmaál, að hann og ýmsir fleiri
Alþýðuflok^smen'p hefðu vonað,
að frumvarp að nýjum vegalögum
yrði lagt fram í vetur. Hefði það
valdið sér miklum vonbrigðum,
er svo hefði ekki getað orðið. Hins
vegar kvað hann hér stórt mál
að ræða, sem sjálfsagt væri ekki
rétt að flytja fyrr en alger sam-
staða hefði fengist um það.
Éysteinn Jónsson (F) kvaddi sér
hljóðs. Kvað hann það mjög baga-
legt, að þingmenn skyldu ekki hafa
fengið í. hendur tillögur milli-
þinganefndarinnar, þar eð mikið
væri um þær spurt. T.d. kvaðst Ey-
steinn oft hafa verið spurður um
það, hvort ætlunin væri að fækka
þjóðvegum. Beindi hann þeirri
fyrirspurn til samgöngumálaráð-
herra hvort það væri ætlunin.
Ingólfur Jónsson ráðherra tók
til máls á ný og kvaðst geta upp-
lýst það, að hann væri andvígur
fækkun þjóðvega. í rauninni vildi
hann gera alla sýsluvegi að þjóð-
vegum.
RÆTT VIÐ
PREST
Framh. úr opnu.
hann hygðist snúa sér aftur að
trúarlegum störfum. En nú hefur
erkibiskupinn sagt í einkaviðræð-
um við ýmsa menn, að hann telji
rétt að hann bjóði sig fram til
forseta á ný árið 1965. Það hefur
verið mörgum til léttis, að erki-
biskupinn hefur að minnsta kosti
frestað afsögn sinni, og má sjá, að
afstaða manna hefur breytzt.
Tilraunir Makariosar til þess að
sameina hægrisinna og styrkja þá
í sessi virðist hafa mistekizt, a. m.
k. í bili, en vonazt er til, að hann
hafi ekki lágt hugmyndina á hill-
una. Ef til vill munu efnahags-
áætlanirnar reynast gagnlegra
vopn.
Afstaða Makariosar til hinna
ýmsu deilumála evjarskeggja virð-
ist að mörgu leyti einkennast af
raunsæi og pólitískri hófsemi. En
þessi einkenni hafa aldrei verið
rík í fari Kýpurbúa, og vafasamt
er, að þau verði það í framtíðinni.
Vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins
er hafið
Vinningur er glæsilegasía hjólhýsi, sem sést hefur á íslandi.
Miðinn kostar aðeins kr. 25.00. — Dregið verður þ. 14. maí 1963.
Munið gott málefni. — Vinningurinn er skattfrjáls.
Krabhameinsfélag Reykjavíkur.
Framh. úr opnu.
oft kemur á daginn, að ein orsök-
in til einstæðingsskaparins, bæði
hjá ungum og gömlum, er beinlín-
is sú, ,að menn hafa um stundar-
sakir gleymt þeim vini, sem næst-
ur stóð í bernsku — guði sjálfum.
Svo sem kunnugt er, hefur aldrað
fólk tilhneigingu til að lifa upp
aftur bernsku sína á v;ssan hátt.
Hin margumtalaða trúhncigð
eldra fólksins stafar ekki fyrst og
fremst af því, að mönnum sé eitt-
hvað eðlilegra að vera trúaðir í
ellinni, heldur af því, að það átti í
bemsku sinni góðan vin, sem það
háfði lítið sinnt árum saman. Nú
hef ég ekki hugmynd um, hvort
þannig er ástatt um bréfritarann.
Ég vona, að hann álíti ekki, að
orð mín séu eingöngu sprottin af
löngun prestsins til að prédika í
tíma og ótíma, heldur af því að
hér er um að ræða eina af þeim
staðreyndum, sem ég hef haft gott
tækifæri til að kynnast. Auðvitað
dettur mér ekki í hug að halda því
fram, að engir séu trúaðir, aðrir
en þeir, sem sækja messur. En
kirkjugangan hjálpar okkur til að
verða ekki einstæðingar í trú okk-
ar, eí svo má að orði komast.
Við eigum hana með öðrum, og
hver leggur sitt fram.
Jakob Jónsson,
- Félagslíf -
Ferðafélag íslands efnir til
tveggja Þórsmerkurferða un)
páskana. Önnur er fimm daga
ferð og lagt af stað á fimmtudaga
morgun (skírdag) e’n hin er 2Yi
dags ferð lagt af stað kl. 2 á
laugardag, gist verður í sæluhúsl
félagsins þar. Gert er ráð fyrir
að fara fimm daga ferð að Haga
vatni ef fært verður þangað.
Upplýsingar í skrifstofu félags
ins símar 19533 og 11798.
ÍR-ingar
Farið verður í skálann um
helgina. Laugardag kl. 2—6,
Sunnudag kl. 10—1.
Notið snjóinn og sólskinið 1
Hamragili.
Stjórnin.
20°]o
afsláttur
skíði 1
SKÍÐASTAFIR )
SKÍÐABINÖINGAR \
HELLÁS
Skólavörðustíg 17.
Sími 15196.
Einangrunargler
Framleitt einungis úr úrval*
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
Korkiðjan h.f.
Skúlagötu 57. — Sími 23200.
ALÞÝÐUBLAÐID— 30. marz 1963 $