Alþýðublaðið - 07.04.1963, Side 5

Alþýðublaðið - 07.04.1963, Side 5
Hilmar HaHdánarson:' í HVERT SKIPTI sem tízkuhöfundarnir í París koma fram me'ð nýja tízku má segja að þeir reyni að finna ný andlit til að bera hana. Þessar ungu dömur eru tvær nýjar sýningarstúlkur hjá JacQues Heim. Til vinstri er Mona frá Argentínu og til hægri Christine frá Frakklandi. EKKERT er nauðsynlegra ung- um frambjóðanda en að kynnast lífinu og tilverunni í því kjör- dæmi, sem lionum er ætlað að starfa í. Án samgangs og kynna við fólkið og athaínalífið á hverjum stað er vart hægt að búast við öðru en að skilningur frambjóðandans nái skammt. Menn einblina á hin stóru mál og lrarpa um þau, en gleyma „smá- málunum" sem á hverjum stað geta varðað heill heils sveitafélags eða jafnvel alls kjördæmisins. Um daginn var ég staddur í litlu þorpi austur á f jörðum og brá mér sem háseti á trillu til hand- færaveiða. Er við komum að landi fórum við að gera að aflanum. Þá brá svo við að eigandi bátsins henti allri lifrinni, en slikt fannst mér að vonum harla kynle-gt. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ekkert tæki var til sem vann á ytra borði Baldur Óskarsson: Dagblað. 1 Skáldsaga. Bókaútgáfan Fróði. 1 Prentsmið'ja Jóns Helgasonar. Reykjavík 1963. r Þetta er nútímasaga úr Reykja- vík, en hæpið mun að kenna hana mikið við blaðamennsku, því að möndull hennar verður að teljast kynning Þorgeirs og Ásrúnar. Hitt skiptir minna máli, hver er vinnu- staður sögumanns. Raunar vill höf- undurinn gera samskipti blaða- mannsins og símastúlkunnar ann- ars vegar og starf Þorgeirs hins vegar að listrænum tvíleik, en sú fyrirætlun mistekst að lcaUa, og þó er gerð sögunnar hennar sterka hlið. Baldur Óskarsson kann að tefla fram atburðum, en tengir þá ekki örlagaþræði, svo að þeir verði eins og perlur á festi. Honum læt- ur einnig sæmilega að gæða sögú- fólk sitt ytri einkennum — yfir- bragði, framkomu og athæfl. Aft- ur á móti skortir mikið á, að sálar- líf þéss gefi sögunni mannrænt- gildi. Það stendur ekki í tákni þess hlutverks og þeirra forlaga, sem höfundurinn kýs. í fáum orð- um sagt: Baldur Óskarsson er drjúgur rithöfundur, en varla orð- Inn skáld. Eigi að síður lief ég trú á þess- um höfundi. Gerð sögunnar er byrjanda ærinn sigur, og mér dett- ur ekki í hug að fordæma þann hemingwaystíl Indriða G. Þor- steinssonar, sem Baldur ástundar, því að slíkt stendur til bóta. Margt bendir til þess, að hér sé að verki gott íþróttamannsefni' íslenzkrar orðlistar. Og skáldgáfa Baldurs Óskarssonar getur mætavel komið í leitirnar síðar, þó að hún skili sér ekki í þessari sögu. Mistök höfundar eru þau að láta sér nægja ytra borðið. Starfs- liðið á Dagblaði gegnir engu hlut- verki öðru en vera launanautar og vinnufélagar Þorgeirs sögumanns. Frásagnimar af þeirri litilmótlegu og leiðinlegu blaðamennsku, sem hér greinir, verða flestar bjána- legt skvaldur, enda höfundurinn oftast öfgafullur í þeirri túlkun sinni, og það gerir auðvitað illt verra. Helzta undantekningin er fréttin af slysinu, þegar sonur setjarans á miðvélinni ferst, en þá verður Baldur allt í einu miður sín af hófsemi og hæglæti. Samt bjargar sá kafli sögunni. Hann tengist því, sem kynning Þorgeirs og Ásrúnar á að tákna, og þess vegna kemur möndullinn að ein- hverju gagni. Þorgeir reynist annars vélrænn og liðamótalaus líkt og Gosi, og Ásrún verður sízt skárri. Gegnir sama máli, hvort þau sitja að mat og drykk inni á Hótel Borg, hátta saman vestur í bæ eða leita un- aðssemdar náttúrunnar uppi í Hvalfirði, þau sverja sig í ætt við skuggamyndir á tjaldi, litirnir ein- vörðungu hvítt og svart og raun- verulegá engin tilfinning skýrð eða túlkuð, ekkert gefið í skyn nema orðanna hljóðan. — Þetta er eins og að draga sótlínur í fönn, að- ferðin kann að vera sæmilegt æf- ingaratriði, en verkið þjónar naumast tilgangi. Baldri Óskarssyni hefur víst mistekizt af því að hann ætlaði sér of mikið, en hann ætti að geta komizt vel til manns, þö að sitt hvað megi^ að Dagblaði finna. Úr þessum efniviði smiðar enginn lista verk nema snillingur, og æfingin gerir meistarann. Baidri er þess vegna óhætt að halda áfram. Eg þori að veðja, að næsta saga hans verður betri. Ilelgi Sæmundsson. lifrina. Þarna urðu smábátaeigend ur, sem eru fjölmennasta stétt þessa byggðarlags, að henda í sjó- inn verðmætum, sem gætu borgað útgerðarkogtnað vertíðarinnar. Væri þarna ekki fyrir hendi verð- ugt verkefni úr að vinna? Um miðjan vetur flutti ég gaml- an mann niður á fjörð einn, þar sem sjúkrahús er. Var mér tjáð að hann fengi aðeins að vera til vorsins, það yrði að rýma iil S'yrir síldarvertíðina. Þá verður að flytja þennan gamla mann uppeftir aft- ur og reyna að koma honum fyrir. Það er sem sagt ekkert varaniegt heimili á öliu Austurlandi íyrir aldrað fólk. Væri þarna ekki fyrir hendi verðugt verk að vinna? Fyrir stuttu stóð ég upp á fjöl- farnasta vegaskarði Austurlands. því er liggur til stærsta kaupstað- arins þar eystra. Þetta skarð er ó- fært meirihluta árs í venjulegu ár- ferði. Þarna er búið fyrir löngu síð- an að athuga möguleika á göngum í gegnum fjallið og þeir fyrir hendi. Slík göng mundu skapa sam göngur mestan liluta ársinsi Ekki þarf að ræða þörfina fyrir þetta hvað bæinn snertir, en benda má t.d. á, að i þessum kaupstað er fjórðungssjúkrahúsið, stæi'sta og fullkomnasta sjúkrahús austan- lands og því nauðsynlegt fyrir aðra staði að hafa greiðan aðgang að því Væri ekki þania fyrir hendi verðugt vex-kpfni að vinna? Nú fyrir skömmu þurfti ég að fara út Héráð um Eiða, sem er 3tór og vel -rekinn héraðsskóli. í kringum hann og fyrir utan, er myndarleg og grösug sveit. Oft á þessu ferðalagi mínu óskaði ég þess, að í forkostinn, sem , var tíu lijóla „trukkur“ væru kojjnmr forráðamenn vegamála svo( og þingmenn kjördæmisins. Þafj er ekki víst að þeir hefðu kosið pðra ferð í slíkri aurleðju í fyrsta, gir, sem í ólgusjó væru. Ef til; vill væri möguleiki á því, að þeir myndu hlutast til um einhverjar endurbætur, áður en þeir færu aftur þennan eða aðra „vegj“ á Austurlandi, að vorlagi. Síðanjþeg ar út fyrir Eiða væri komið væri að sjálfsögðu reynt að fá kjaffi- sopa á einhverjum af þcim ;tug- um blómlegu býla, eera þar æru. Kæmust þá háttvirtir þingnpenn þótt hraktir væru að því, að jhús- móðirin hitar kaffisopann á kola- eidavél. Þeir höfðu jú glqymt því þegar þeir stóðu að byggingu Grimsárvirkjunarinnar að ; það þurfti orkuver sem fullnægði; öil- um Austfjörðum. Væri ekki þgrna verðugt verkefni að vinna? Hægt er að karpa á þingi; um það hvort ísland hefði gengið í EBE ef það hefði komizt á laggim ar. ( Deilt er um efnahagsmál, ljand- helgismál, tollamál, uppbyggingu atvinnuveganna o.s.frv. Ailt - eru þetta mál, sem ber áð ræða, yfir- vega og taka afstöðu til. Þessj ör-' fáu af mörgum dæmum að framan sýna, að ekki má gleyma „smápiál- unum“ í hita átakanna og oft á tíðum flokkslegra hagsmuna. , Ef ég væri að því spurður hver væru áhugamál mín gagnvart kjör dæminu, væri einfaldasta og raun hæfasta svarið: Fólkið og tilvera- þess. h. s. ir. Pólýfónkórinn heldur tónleika BALDUR OSKARSSON Sigurgeir Sigurjónsson liæstaréttarlögmaður Málflutningsskrifstofa Óðinsgötu 4. Síml 11043. POLYFONKORINN heldur tón- 1 leika í Gamla bíó n. k. þriðjudag og mið'vikudag. Á efnisskránni eru j 11 verk, bæði veraldleg og nú- tímatónlist. Þetta er í fyrsta sinn á þessum vetri, að kóriim syngur opinberlega, en hann hélt kirkju tónleika í apríl á síðasta ári. Textar allir verða sungnir á frummáli, en þeir hafa verið þýdd ir á íslenzku, hlustendum til hægð arauka, og fylgja þeir söngskránni. Á fyrri hluta efnisskrárinnar eru veraldleg lög, tónlist frá 16. og 17. öld. Er þá fyrst að nefna „Bon jour mon coeur“ eftir Orlando di Lasso (1532-1594). Þá kemur „All Lust und Freud“ eftir Hans Leo Hassle (1564-1612), „Rundadin- ella“ eftir Johann Hermann Schein (1586-1630), „Madonna mia gentil" eftir Luca Marenzio 1560-1599), „Moro lasso“ eftir Carlo Gesualdo (um 1560-1613), „A lieta vita" eft ir Giovanni Gastoldí (1556-1622), „It was a lover and his lass“ eftir Thomas Morley (1557-1603) o£f „Hark all ye lovely saiuts“ eftir Thomas Weelkes <um 1575-1623). Eftir hlé syngur kórinn nútíma- tónlist. Fyrst er „Six Chansons'* eftir Paul Hindemith við ljóð efí- ir Rainer Maria Rilke. Þá kennir nýtt lag eftir Þorkel Sigurbjörns,- son, eina innlenda lagið á efniár skránni. Nefnist það Hvískur. — Að: lokum eru negrasálmar eftír Michel Tippett, og þar koma £raó> með kórnum þrír einsöngvar il;, þau Svala Nielsen, Sigui-ður Björrff* sonson og Halldór Vilhelmssoú. Ekkert af þessum löguin héfujr verið flutt hér áður. * ‘ Pólýfónkórinn var stofnaður ár- ið 1957, og hélt fyrstu tónleíka. sína á jólunum sama ár. Vaktk söngur krsins þegar mikla athygll, og hefur honum verið mjög vet tekið á þeim söngskemmtunum, sem hann hefur haldið. Söngstjórt kórsins og aðal driffjöður frá.upp. Framliald á 13. síðu. ALÞÝÐUBLAÐID — 7. aprít 1963 5

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.