Alþýðublaðið - 07.04.1963, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 07.04.1963, Blaðsíða 16
Vesterásfólk til Akureyrar AKUREVRINGAR búast við «Hdum fjölda gesta uiu páskana. /rllt er upppanta'ð í Hlíðarfjalla- og um páskana kemur sér- fitök flugvél frá Vesterás í Sví- > triéð- með 58 manna hóp. Þar með er lúðrasveit menntaskólans í Vesteras, rektor skólans, kennarar og fulltrúar bæjarins. Lúðrasveitin cnun halda hljómleika á Akureyri og búa á lieimavist Menntaskólans á Akureyri, Vesterás er vinabær AkurejTar. Mikið verður um að vera á Ak- ureyri um páskana. Fyrirhugaðar eru alls konar skemmtanir, dans- leikir, skiðaferðir og þess háttar. Sænsku ferðamennimir koma fljúgandi til Akureyrar beint frá Osló án millilendingar í Rcykja- vík, en heimleiðis lialda gestirnir 16. apríl. VESTUR-ÞÝZKALAND hefur nýverið veitt Nígeríu fjár- hagsaðstoð, sem nemur 100 milljónum þýzkra marka. Féð verð- ur meðal annars notað ti! vegabóta, og til að koma á stofn tækni ; skóla í Port Lagos. Samningaviðræður milli stjórna landanna fóru fram skömmu fyrir áramót, en samningurinn var hins veg- ar ekki undirritaður fyrr en nú fyrir skömmu. Myndin er tek- in af fulltrúum Nígeríustjórnar við undirritun samningsins. tÁMIMMWMMHMMHIMMMIMHUtUMMMMUMMUHMIMW SNARPUR j arðskj álftakippur kom um klukkan 20,40 í fyrrakvöld. Hann átti upptök sín á sömu slóðum og þeir jarðskjálftakippir, sem ftmd- ist hafa að undanförnu, en það er í jnynni Skagafjarðar 250 kílómetra frá Reykjavík. Blaðið átti í gær tal við Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðing. Hann sagði, að þessi kippur hefði verið snarpastur þeirra, sem komið liefðu eftir 28. marz. Kippa sér ekki upp v/ð kippi! Þorsteinn Hjálmarsson Hofs- ósi, sagði, að kippurinn hefði fund izt mjög greinilega þar, en menn væru hættir að kippa sér upp við jarðskjálftakippi, þeir væru orðn ir daglegt brauð. Á hverjum sól- arhring eftir 28. marz hefðu fund izt einhverjar smájarðhræringar norður þar. Hið versta var, sagði Þorsteinn, að margir hefðu feng- ið hálfgert taugaáfell þegar fyrstu og snörpustu kippirnir komu, en þetta fólk væri enn ekki búið að ná sér, enda naumast gefict tóm tll þess. Engar skemmdlr urðu, svo aó vitað sé á Hofsósi í fyrrakvöld, en allt lék á reiðiskjálfi í þorp- inu meðan jörðin skalf. Magnús Bjarnason Sauðárkróki sagði að jarðhræringarnar hcfðu fundizt greinilega þar í bæ, en engar skemmdir orðið. Og þórt finna hefði mátt kippinn greini lega hefðu samt ekki nærri allir bæjarbúar.tekið eftir honum, þe>r hafa í öðru að snúast þessa dag- ana. Nú er sæluvika á Sauðár- króki og mikið um skemmtanir. Fjalla-Eyvindur er leikinn upp á hverju kvöldi í Bifröst, Eyþór Stefánsson er leikstjóri. Eyvindur er leikinn af Kára Jónssyni, Halla er lelkin af Evu Snæbjarnardótt- ur. í Alþýðuhúsinu er flutt revia eftir Guðrúnu Gísladóttur og er hú'n jafnframt leikstjóri. Þrír karlakórar syngja á sæluvikunni: Karlakórinn Heimir, Karlakórinn Feykir og Karlakór Akureyrar. Karlakórinn Feykir er skipaður mönnum úr fram-Skagafirði. Mikill fjöldi fólks hefur sótt sæluvikuna, og dansað hefur ver- ið fram á morgun. En þó er búizt við enn meira fjöri en nokkurn tíma fyrr nú um helgina. Fólk drífur að úr öllum áttum til skemmtunar eini' og á Ólafsvöku í Færeyjum. Húnavika í uppsiglingu Guðmann Hjálmarsson á Blönduósi sagði, að jarðskjálfta- kippurinn hefði fundizt greini- lega þar í þorpi. — en engar skemmdir né slys hafa orðið. Blönduóssingar segja eins og Hofsóssbúar ,að þeir séu hættir að kippa sér upp við kippina, því að undanfarið hefur alltaf gætt jarðhræringa öðru hvoru. Stöðugt er unuið við að full- gera félagshcimilið á Blönduósi en Guðmann segir, að vígslan verði þó ekki fyrr en í sumar. Húnavikuna verður að halda enn elnu slnni í gamla samkomuhús- inu. Húnavikan hefst á annan í pásk um og verður þar margt til skemmtunar, kórsöngvar, leiksýn- ingar og annað slíkt. Og þá verð- ur dansað bæði fyrir innan og utan Blöndu. Framhald á 3. síðu. ALÞÝÐUBLAÐH) hefur frétt, að framkvæmdaáætlun ríkisstjórn- arinnar verði lögð fram á Alþingi í vikunni, áður en þingið fer í páskaleyfi. Verður áætlunin senni- lega lögð fram á miðvikudag. Áætlunin verður lögð fram í skýrsluformi og verður liún tekin til umræðu á þingi, en ekki munu þær umræður fara fram fyrr en eftir páska. TIL FJÖGURRA ÁRA. Lengi undanfarið hefur verið unnið að undirbúningi fram- kvæmdaáætlunarinnar. Hófst sá undirbúningur með því, að fengnir voru hingað til lands norskir hag- fræðingar til þess að aðstoða ríkis- stjórnina við gerð hagfræðinnar til ; þess að aðstoða ríkisstjórnina við | gerð frumdrátta að 5 ára áætlun. Eftir að hinir norsku sérfræðingar hurfu heim til Noregs á ný hefur verið unnið að áætluninni í Efna- hagsstofnuninni. Sú áætlun, sem lögð verður fram á Álþingi nú, er tll fjögurra ára. MERKAR FRAMKVÆMDIR. Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála- ráðherra drap á framkvæmdaáætl- unina í umræðum á Alþingi í síð- ustu viku. Sagði hann, að í áætl- uninni værl gert ráð fyrir mörgum merkum framkvæmdum, sem kosta mundu mikið fé. Sagði ráð- herrann, að þegar á þessu ári yrði hafizt handa um fyrstu framkvæmd irnar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.