Alþýðublaðið - 30.04.1963, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 30.04.1963, Blaðsíða 14
MINHISBLRÐ FLUO Loftleiðir h.f. Snorri Sturluson er væntan- legur frá New York kl. 08.00. Fer til Luxemborgar kl. 09.30. Kemur til baka frá Luxemborg 'kl. 24.00. Fer til New York kl. 01.30. Flugfélag íslands h.f. Gullfaxi fer til Glasgow og K-hafnar kl. 08.00 í dag. Vænt anlegur aftur til R-víkur kl. 22.40 í kvöld. Innanlandsflig: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), ísafjarðar, Égilsstaða, Sauðárkróks og Vest m. eyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferð- ir), ísafjarðar, Húsavíkur og Vestm.eyja. SKIF Eimskipafélag íslands h.f. Brúarfoss fór frá Dublin 24. í. til New York. Dettifoss kom* til R-víkur í gær frá Akranesi. Fjallfoss fór frá Siglufirði í gær til Kotka. Goðafoss fór frá Keflavík 21. 4. til Gloucester >g Camden. Gullfoss er í K- áöfn. Lagarfoss kom til R-vík- ar 28. 4. frá Hafnarfirði. Mána loss fór frá Sauðákrkóki í gær til Siglufjarðar, og Raufarhafn ar og þaðan til Ardrossan, Man chester og Moss. Reykjafoss kom til Leith 26. 4., fer þaðan til Hull, Eskifjarðar og R-vík- ur. Selfoss fer frá Hamborg 2. 5. til R-víkur. Tröllafoss kom til R-víkur 19. 4. frá Antwerp- en. Tungufoss fór frá Kotka 27. 4. til Rvíkur. Forra fer frá Vent spils 29. 4. til Hangö, K-hafnar og R-víkur. XJlla Danielsen lest ar í K-höfn 6. 5. síðan í Gauta- borg og Kristiansand til R-vík- ur. Skipadeild S. í. S. Hvassafell er í Rotterdam. Arnarfell losar á Vestfjörðum. Jökulfell fór í gær frá R-vík til ísafjarðar, Húnaflóa, Sauðár- króks og Aþureyrar. Dísarfell er væntanlegt til Faxaflóa á morgun. Litlafell er væntanlegt til R-víkur í dag frá Vestfjörð um. Iíelgafell er á Akureyri. Hamrafell er væntanlegt til Tu- apse í dag, fer þaðan til Ant werpen. Stapafell fer í dag frá R-vík til Norðurlandshafna. Skipaútgerð ríkisins. Hekla er á Austfjörðum á norðurleið. Esja er á Vestfjörð- um. Herjólfur fer frá Vestm,- eyjum kl. 21.00 í kvöld tii R- víkur. Þyrill er á Norðurlands- höfnum. Skjaldbreið fer frá R- vík í dag vestur um land til Ak ureyrar. Herðubreið er á Aust- fjörðum á suðurleið. Hafskip h.f. Laxá fór í gærkvöldi frá 5 Gautaborg til R-víkur. Rangá losar á Norðurlandshöfnum. Prinsess Irena fór frá Gydinia 23. þ. m. til R-víkur. Nina fór frá Gautaborg 27. þ. m. til Austur- og Norðurlandshafna. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. Katla losar á Norðurlands- höfnum. Askja er í London. Kvenfélag Háteigssóknar hef ur kaffisölu í Sjómannaskólan- um sunnudaginn 5. maí. Félags konur og aðrar safnaðarkonur, sem hugsa eér að gefa kökur eða annað til kaffisölunnar eru vinsamiega beðnar að koma því í Sjómannaskólann á laugardag kl. 4—6 eða fyrir hádegi á sunnudag. — Uppýsingar í sím um 11834, 14491 og 19272. Frá skrifstofu borgarlæknis. Farsóttir í Reykjavík vikuna 7. til 13. apríl 1963, samkvæmt skýrsl. 39 (37) starfandi lækna. Hálsbólga ............ 57 (85) -ívefsótt............. 80 (96) Lungnakvef ........... 28 (35) Heilabólga ........ Iðrakvef.............. 14 (28) Influenza ............ 66 (90) Mislingar ......... Hettusótt ......... Kveflungnabólga .... 11 ( 7) Skarlatsótt........ Hlaupabóla ........ 57 (85) 80 (96) 28 (35) 1 ( 0) 14 (28) 66 (90) 3 ( 1) 2 ( 2) 11 ( 7) 3 ( 3) 1 ( 3) 1 LÆKNAR Kvöld- og næturvörður L. R. í dag: Kvöldvakt kl. 18.00—00.30. Á kvöldvakt: Þorvaldur V. Guð mundsson. Á næturvakt: Einar Helgason. Neyðarvaktin sími 11510 hvern virkan dag nema laugardaga kl. 13.00—17.00. Slysavarðstofan í Heilsuvernd- arstöðinni er opin allan súlar- hringinn. — Næturlæknir kl. 18.00—08.00. Sími 15030. Minningarspjöld menningar- og minningarsjóðs kvenna fást é þessum stöðum: Bókaverzlun ísafoldar, Austu'rstræti 8, Hlióðfærahúsi Reykjavíkur, Hafnarstræti 1, Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar Hafnar stræti 22, Bókaverzlun Helga fells Laugaveg 100 og skrlf- stofu sjóðsins, Laufósveg S. Minningarspjöld Blindrafélags ins fást í Hamrahlíð 17 og lyfjabúðum í Reykjavík, Kópa vogi oð Hafnarfirði. Koma Óðins Framh. af 3 .síðu síðast fréttist. Ástæðan fyrir hin- um miklu fortölum mun vera sú, að það er almennt álitið, að brezkt herskip geti ekki afhent brezkan þegn í hendur erlendu ríki án vilja hans. VIRÐIST LIGGJA LJÓST FYRIR ÁÐ ÞAÐ SÉU FYRIRMÆLI ÚT AF ÞESSU AT- RÍÐI, SEM BEÐIÐ VAR EFTIR FRÁ LONDON í GÆR. Þá hefur blaðið hlerað, að ástæð ur þær, sem Smith gefur fyrir þeirri neitun sinni að koma í land og svara til saka, sé sú, að hann telji ekki, að hann verði látinn njóta réttlætis fyrir íslenzkum dómstóli og að aðrar álíka bábilj- ur. Hins vegar telja aðrir ekki óhugsandi, að hann sé einn af þeim skipstjórum, sem brutu af sér hér í þorskastriðinu og sé hræddur um að verða dæmdur fyrir þá súpu. Hafi sem sagt ekki enn heyrt um sakaruppgjöfina. ÞÁ VEIT blaðið tii þess, að Smith var svo ákveðinn, að vilja ekki fara hér í land, að þegar forstjóri félags þess, er togarann á, talaði við hann, og bað hann að hlýðn- ast fyrirskipunum Landhelgisgæzl unnar, sagði hann: „Ég er skip- i stjóri á mínu skipi, og ræð þessu“. Síðan skellti hann á. ALÞÝÐUBLAÐIÐ náði samtali við Mr. Hunt, skipherra á Palliser, síð degis í gær og Iagði fyrir hann nokkrar spurningar. Skipstjórinn taldi sig því miður ekki hafa mögu leika til að segja neitt um neina af spurningum blaðsins. Vísaði hann til brezka sendiráðsins. Meðal spurninga, sem skipherr- ann taldi sig ekki geta svarað, voru þessar: Hefur nokkur ákvörðun verið tekin um, hvort Smith skipstjóri verður afhentur? / — Ég er hræddur um, að ég verði að vísa yður til brezka sendi ráðsins um þetta atriði. Hefur Mr. Smith gefið nokkra ástæðu fyrir hegðun sinni? — Aftur er ég hræddur um, að ég geti heldur ekki sagt íwíft um þessa spurningu. Ég verð að vísa yður til brezka sendiráðsins. Það hefur verið sagt, að þér, eða áhöfn yðar, hafi hjálpað Mr. Smith til að komast yfir í Juniper. Er þetta rétt? — Eins og áður er ég hræddur ur, að þér verðið að tala við brezka sendiráðið um þetta. Ég get ekkert um þetta sagt. SEINT , gærkvöldi gat talsmaður brezka sendiráðsins ekki fremur warað þessum spurningum, — að íins var beðið fyrirmæla frá London. Hagsveiflur og / áætlanir Frh. úr opnu. einhuga um framkvæmd áætl- unarinnar. — Tií þess að unnt verði að framkvæma áætlunim verður ekki aðeins hið opiu- bera að vinna að framkvæmd- inni, heldur einnig einkaa' jla-' og þjóðfélagshópar. Og nokkr- um meginskilyrðum verður að vera fullnægt til þess að þró- unin geti orðið sú, er áætl t.i- in gerir ráð fyrir. Árferði þarý að haldast tiltölulega gott, mark aðsaðstæður mega ekki versna verulega, stefnan í peninga- og fjármálum verður að miða að jafnvægi í efnahagsmálum og það verður að reynast kleift að útvega það lánsfé erlendis, sem áætlunin gerir ráð fyrir. Þjóðhags- og framkvæmda- áætlunin markar þáttaskil í efnahagsmálum okkar og mun án efa verða til þess að betur mun takast til um stjórn þeir-a í framtíðinni en undanfarið. Minningarorð Frh. úr Opnu. arnefnd um árabil. Einnig var hann mjög áhugasamur bindindismaður og félagi í góðtemplarareglunni um tugi ára. Á langri ævi hafði hann ljáð starfskrafta sína til starfa fyr- ir góð málefni í sínu byggðarlagi. — Hann átti rólegt ævikvöld hin síðustu ár hjá dóttur sinni og tengdasyni x Ólafsvík. Þessa mæta öldungs er gott að minnast og ég sendi aðstandendum hans samúðarkveðjur. Á. J. SMURI BRAUÐ Snittur. Pantið tímanlega til ferming- anna. Opið frá kl. 9—23,30. Sími 16012 Brauðstofan Vesturgötu 25. RÚMAR ALLA FJÖLSKYLDUNA KYNNIÐ YÐUR MODEL 1963 _ Sími 24204 ~<?ON & co- P.O. BOX 1J84 - REYKJAVlX LOKAÐ vegna jarðarfarar þriðjudaginn 30. apríl frá kl. 14. Tryggingastofnun ríkisins. Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma Guðrún Georgsdóttir verður jarðsungin frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 2. maí klukkan 1,30 e. h. Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á Barnaspítalann. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda Þórarinn Vilhjálmsson. Eiginmaður minn, fósturfaðir og sonur Kristján Einarsson, bryti Mímisvegi 6, sem lézt 21, þ. m., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 30. apríl, kl. 13,30. Ingibjörg Sigurðardóttir, Margrét Oddsdóttir, Hlöðver Oddsson, Einar Dagfinnsson. 14 30. apríl 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.