Breiðablik - 01.05.1907, Page 5
BREIÐABLIK
185
um miljónamæring auðugri, því
hann er borinn og leiddur af engl-
um fórnarkærleikans.
HÁSKÓLADAGURINN.
I_IÁTÍÐISDAGURINN mikli í lífi
ungra námsmanna, þegar þeir út-
skrifast úr hinum almennu mentaskólum
og öölast fyrstu heiöursnafnbót fyrir aö
hafa lokið því námi, sem beztan undir-
búning veitir undir hverja stöðu lífsins
sem er, — er hér nefndur Convocation-
dagur.
Orðið þýðir á skólamáli eiginlega há-
skólaráð eðaháskólaráðsfundur og er við-
haft vegna þess,að nafnbætur þær, sem
gefnar eru, eru eins konar dómsúrskurður
háskólaráðsins. í Bandaríkjunum ersama
athöfn nefnd Commencement■—byrjan. Þá
byrjar alvara lífsins. Hingað til hefir
skilmingamaðurinn verið að æfa sig í alls
konar fimleika og vopnaburði. En nú
byrjar hólmgangan. Upp frá þessum
degi á að sjást, hvað kappinn dugir á
hólmi lífsins.
Hverjum ungum manni er það stór-
mikill sómi, að leysa nám sitt vel af hendi.
Hvernig honum tekst það, er spádómur
um, hvernig ganga muni síðar. Hæfileik-
ar hans, lestraráhugi, kapp og metnaður,
fróðleiksfýsn og mentunarþorsti—það er
alt bending um,hvernig maður hann muni
síðar reynast.
Mest er samt um það vert.hverjar hug-
sjónir vakna hjá nemendum á námsárun-
um. Því markmið allrar mentunar er
það að koma inn í hugskot þeirra,er nám
stunda,hugmyndinni um manninn, hvern-
ig honum sé ætlað að vera, í hverri stöðu
lífs, sem hann haslar sér völl. Af þeirri
hugmynd um sannan mann, sem inn hefir
komist hjá hverjum einum á námsárun-
um, litast líf hans og stefnir hátt eða
lágt.
Alt er gjört hér til að gjöra daginn,sem
minnisstæðastan og hátíðlegastan.
Stærsta og veglegasta leikhús bæjarins
er fengið og reynist ekki ofstórt. Því þar
vilja allir vera nærstaddir, sem bera and-
legan hag og farsæld, þjóðar sinnar fyrir
brjósti. Þarna koma þeir fram fyrsta
sinni, sem verða eiga leiðtogar fólksins
Og • forkólfar framsóknarinnar á öllum
svæðum lífsins á komandi árum.
Á leiksviðinu sitja allir kennarar við
æðri skólastofnanir í bænum ásamt öðru
göfugmenni. í miðju skipar helzti dómari
í æðsta rétti öndvegi. Hann er nú æðsti
maður háskólaráðsins. Allir eru í há-
skólabúningum sínum, með marglitar
hettur á baki, eftir því, hve hátt þeir hafa
klifið í nafnbóta-stiga háskólans.
Skrifari háskólans les upp nöfn þeirra,
sem útskrifast frá hverjum skóla fyrir sig
Ganga þeir svo allir, hver á eftir öðrum,
meyjar fyrst og menn síðan, í skólakáp-
um sínum upp á leiksviðið og klappar þá
fólkið lof í lófa. Hátíðlega stendur þá
forstöðumaður þess skólans, sem hver
hópur er frá, á fætur, ávarpar dómarann
á latínu og segist leiða þessi ungmenni
fram fyrir hann, því þau sé álitin verðug
til að öðlast Baccalaureus Artium nafn-
bót háskólans. Krjúpa þau svo öll, hvert
á fætur öðru,á kné fyrir dómaranum, sem
með latneskum formála gefur þeim nafn-
bótina. Um leið og hver stendur á fætur
aftur, smeygir forstöðumaður skólans,
sem þeir eru frá, hettunni yfir háls þeim,
bryddri snóhvítu héraskinni. Námsmeyj-
um öllum er afhentur blómvöndur ogsvo
snúa allir aftur til sæta sinna undir dynj-
andi lófaklappi.
Þá koma lögfræðingar, læknar og lyf-
salar hver á fætur öðrum og öðlast hver
sína nafnbót. í almennu mentaskólum
fvlkisins — College-áeWá, eru þetta árið
ekki færri en 303; lögfræðis-nám stunda
35, læknisfræði 163; en í undir-búnings-