Breiðablik - 01.05.1907, Side 7

Breiðablik - 01.05.1907, Side 7
BEIÐABLIK. 187 SKÍRLÍFI ÞJÓDAR VORRAR. * T DAÐ er nýtt að heyra um það talað. Og þó eru líkleg'a fá umhugsunar- fifni þjóð vorri nauðsynlegri og sjálfsagð- ari en ein'mitt það. Hreinlífið er ein af æðstu hugsjónum hverrar þjóðar. Al- ment brot gegn því, ef til vill hættulegra fyrir lífsþrótt þjóðanna, en nokkuð annað. í vorum huga er það ekkert efunar- mál, að þegar við því máli er hreyft, hafa menn fyrir sér þjóðar vorrar raunalegasta löst — það, sem meira sýgur merg úr beinum hennar og eitrar blóð hennar en flest annað. En þeir kinnoka sér að tala um það, sem helzt ætti að gjöra það. Guðmundur Friðjónsson, skáld, hefir sannarlega gjört þarft verk með því alveg nýlega að vekja máls á þessu efni. Hann hefir gjört það með skýrum og skorinorð- um blaðagreinum. Fráleitt getur nokkur vafi um það verið í hugum rétthugs- andi manna, að hann hafi þar öldungis rétt fyrir sér. Auðvitað hefir hann talað ofurlítið einhliða, þar sem hann hefir að eins bent á kvenfólkið. Þar eiga sannarlega allir jafnan hlut að máli,— karlmennirnir ekki síður. Almenningsálitið í þeim efnum eins og öðrum skapast algjörlega af af- stöðu karlmanna. Það er þeirra skoðun, sem ræður. Nú er gengið í skrokk á Guðmundi og hann gjörður að vargi í véum. Hann hafi smánað kvenþjóðina. Hann hafi ausið hrópi og rógi á holl regin, eins og Eldir kvað um Loka Laufeyjarson. Mega þó allir vita.að ekkert getur honum geng- ið til nema gott eitt. Hann hugsar meir og alvarlegar um andleg mál þjóðar vorrar, maðurinn sá, en flestir aðrir, sem nú eru uppi. Er nauðsyn um þetta að tala? Já,meiri nauðsyn en um flest annað. Það þarf að safna nákvæmum skýrslum um siðferð- isástand þjóðarinnar. Nákvæma grein þarf að gjöra sér fyrir öllum orsökum, sem til óskírlífis kunna að vera, í löggjöf, í landsháttum, í lundarfari fólksins. Og það þarf að leitast við af alefli að fjar- lægja þessar orsakir,að eins miklu leyti og auðið er. Þó væri það að eins byrjan. Hrinda verður á stað öllum þeim öflum,er styrkja siðferðismeðvitundina. Með alvöru og nærgætni verður að sýna hinni yngri kynslóð fram á, hvernig þessi synd hrind- ir sál og líkama í meiri eymd og vol- æði, hamingjuleysi og ófarsæld en flest annað. Það þarf að gjörast á heimilun- um, í skólunum, í ræðu og riti, einslega og opinberlega. Ekki að eins einu sinni eða tvisvar, heldur stöðugt, svo að allir, ungir og gamlir, sé sívakandi og á varð- bergi. Með öðrum orðum : Nýtt almennings- álit þarf að myndast með þjóð vorri í þess- um efnum. Með nýju almenningsáliti hefir öðrum þjóðlesti verið hnekt — drykkjuskapnum. Og eins og það er almenningsálitið, sem gjört hefir þjóð vora bindindissama með tilliti til áfengis, eins víst er það almenningsálitið, sem gjörir hana bindindissama með tilliti til óskírlífis. Meinið er, að almenningsálit þjóðar vorrar er og hefir lengi verið álíka gallað í þessum efnum og það var fyrir þrjátíu árum með tiliti til áfengisnautnar. Það var þá eigi álitið sérlega saknæmt, þó flóð væri fullra manna í hverju kauptúni vetur og sumar, ár eftir ár. Nú er fagn- aðarrík breyting til batnaðar í því efni. Allir þeir, sem láta sér ant um heill og heiður þjóðar vorrar, ætti því í þessu vel- ferðarmáli að gjöra nákvæmlega hið sama og bindindismenn hafa gjört. Halda þeim ósóma, er hér loðir við líf þjóðarinnar,svo vakandi með samtökum og félagsskap, í ræðu og riti, með hverjum þeim hætti, sem hentast þykir,að nýtt almenningsálit rísi upp með þjóð vorri,sem verndar skír- ■ lífi hennar og gjörir hana að siðlátri þjóð

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.