Breiðablik - 01.05.1907, Síða 9
BREIÐABLIK.
Estella M. Thomson.
189
hóp,er þá kom. Arið 1897 kom G. til Winnipeg-,
byrjaði barnaskólanám hér og settist í ð.bekk og
hafði þó að eins í skóla gengið partafþrem vetr-
um áður. En svo varð hann um hríð að hætta
námi, þangað til hann byrjaði nám við Wesley-
College árið 1901. I neðsta bekk fekk hann þar
önnur verðlaun,að upphæð 15 dali,en síðan hæstu
verðlaun, 60 dali, á hverju ári og silfurmedalíu
nú um leið og hann útskrifaðist fyrir ágæta kunn-
áttu í grísku og latínu.
Hjörtur Jónasson Leó er tæddur 6. jan. 1875
að Hofi á Skagaströnd í Húnavatnssýslu, sonur
Jónasar Leó og Sæunnar Sigurðardóttur, sem nú
er nýlátin. Fluttust foreldrar hans hingað til
lands árið 1883, settust fyrst að í Nýja Islandi,en
fluttust þaðan aftur eftir nokkur ár og settust að
í Selkirk þar sem þau hafa dvalið síðan. I Gimli
skólann gekk Hjörtur fyrst nokkura mánuði, síð-
an hvarf hann til Winnipeg, gekk þar í lýðskól-
ann hálfan sjötta máuuð að eins og útskrifaðist
þó að þeim tíma liðnum úr 8. bekk. Við barna-
kenslu fekst hann svo næstu tvö ár,en las undir
þriðja flokks kennara-próf,sem hann svo lauk,og
hélt áfram að kenna tvö ár enn. Arið 1896 stund-
aði hann nám við lýðháskólann í Winnipeg í 6
Árni Stefánsson.
Jungfrú Estella Maud Thcirson er ís-
lenzk í móðurætt en á Kanadamann að föður.
Hét móðir hennar Jósefina Baldvinsdóttir,Helga-
sonar úr Húnavatnssýslu. Attu foreldrar hennar
heima í Parry Sound í Ontario-fylki; þar er Estella
fædd og þar gekk hún í lýðskóla,hélt síðan námi
sínu áfram við lýðháskóla í Toronto. Til Winni-
peg kom hún 1905 og settist í annan bekk um
jólaleyti og þótti vel gjört af henni að taka próf
um vorið upp úr bekknum. Hún gjörði nýju
málin að kjörnámsgrein og er þar prýðilega að
sér; leysti hún fullnaðarpróf sérlega vel af hendi,
þrátt fyrir töluverða vanheilsu, enda hefir hún
Ijómandi gáfur.
Guttormur Guttormsson er fæddur 10. des.
1880 í Krossavík við Vopnafjörð,sonur Guttorms
Þorsteinssonar, Guðmundssonar ríka,og Birgittu
Jósefsdóttur,sem látin er fyrir þrem árum. Bróðir
Guttorms er Stefán, sem fullnaðarpróf tók fyrir
.tveim árum með ágætis einkunn og heiðurspen-
ing’ úr silfri. Foreldrar þeirra bræðra fluttust
Jiingið lil Vesturheims árið 1893 með þeim stóra