Breiðablik - 01.05.1907, Page 10

Breiðablik - 01.05.1907, Page 10
BREIÐABLIK 190 FAGRAR HUGSANIR. 3. Þjóðlíf. Líf heillar þjóðar er, eins og- gefur að skilja, ærið margbreytilegt, og eigi unt að gera sér grein fyrir því til fulls, nema litið sé á allar hliðar jafnt, á þing og stjórn, á trúarbrögð og lífsskoð- an, á atvinnagreinar, híbýli og háttalag. Alt hefir þar í sjálfu sér jafna þýðingu: hinar æðstu og háleitustu hugsjónir og hinir auvirðilegustu smámunir, því hvorttveggja er runnið út af sömu rót,—af 'insta eðli þjóðarinnar. —Gullöld Islendinga. bls. 29—30. * 4. Máttur hins lifanda orðs. Þeir munu að líkindum vera færri nú ádögum, sem eigi hafa einhvern tíma æfinnar átt kost á að sannfærast um áhrif og mátt hins lifanda orðs á vörum snjallra ræðumanna. Fyrir því hafa auður og völd mátt lúta í lægra haldi. Og svo hyggjum vér, að einnig hafi verið hjá forfeðrum vorum. Eyra þjóðarinnar mun eigi síður þá en nú hafa verið opið fyrir áhrifum snjallrar ræðu. Strengir hjartans munu hafa titrað jafn-viðkvæmt þá og nú fyrir áhrifum æstra tilfinninga, og eng- mánuði og leysti þá kennara-prót annars flokks af hendi. Næsta vetur las hann kennarafræði við kennaraskólann og tók þar próf. Yorið eftir gekk hann undir fyrsta flokks kennarapróf. Var kennari við Selkirkskó'ann veturinn 1899-1900 og yfirkennari við Gimli-skólann næstu þrjú ár; kennari við Selkirk-skóla 1903—4. Gekk undir fyrsta árs College-próf yið Manitóba-háskólann um vorið; var innritaður við Wesley-College haustið eftir og leysti annars árs próf af hendi um vorið, með verðlaunum í íslenzku og stærð- fræði. Tvö síðustu árin hefir hann lesið stærð- fræði við háskólann, náði fyrra vorið hæstu verð- launum í þeirri grein og útskrifaðist nú í vor með silfur-medalíu háskólans. Þeir Stefán Guttorms- son og hann eru nú sjálfsagt allra Vestur-íslend- inga bezt að sér í stærðfræði. Allir þessir piltar starfa að einhverju leyti að safnaðar- og trúboðsmálum fyrir kirkjufélagið á komanda sumri.

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.