Breiðablik - 01.05.1907, Page 15

Breiðablik - 01.05.1907, Page 15
BREIÐABLIK. i95 féll á hendur hans, sem skulfu, ogf andlit læknisins, þar sem skuggarnir voru nú aö safnast. „Móöir mín vildi ætíö láta lesa þetta, þegar hún varð veik.“ Og Drumsheugh byrjaði: ,,í liúsi föðurs míns eru mörg híbýli.“ En læknirinn tók fram í. ,,Það er fagurt orð og móðir þín var heilög kona. En það er ekki fyrir mig og mína líka. Það er indælt, en eg þori ekki að eigna mér það. Láttu bókina aftur og láttu hana opnast sjálfkrafa; þá kemur þú ofan á nokkuð, sem eg hefi verið að lesa á hverju kveldi. “ Þá fann Drumsheugh líkinguna, þar sem meistarinn gefur oss álit guðs á farí- sea og iðrandi syndara og kom að orðun- um : ,, En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himinsjheldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, ver þú mér syndugum líknsamur. “ ,,Þetta gæti hafa verið ritað fyrir mig, Pétur, eða einhvern annan gamlan synd- ara, sem kominn er að fram og hefir ekk- ert fyrir sig að bera. Það var ekki auð- velt fyrir mig að komast til kirkju, en eg hefði líklega getað það, ef eg hefði lagt nóg á mig. Eg talaði oft á annan veg en eg átti að gjöra, eg hefði getað verið þýð- lyndari og ekki eins skapstyggur. Eg sé það alt nú. En of seint að lagfæra. Segja mættir þú fólki, að aumur hafi eg verið út af þessu, en eg vona, að almáttugur guð verði mér líknsamur. Gætir þú — flutt dálitla bæn, Pétur ?“ ,,Mig brestur orð,“ sagði Drumsheug'h í öngum sínunt. ,,Vilt þú,að viö sendum eftir presti ?“ ,,það er enginn tími til þess nú og eg vil heldur, að þú sjálfur---það, sem þérbýríhjarta, Pétur;sá almáttugi veit alt hitt sjálfur. “ Svo kraup Drumsheugh á kné og baðst fyrir með ntörgum hvíldum: „Almáttugi guð-----vertu ekki harður við Vilhjálm MacLure, því hann hefir ekki Verið harður við neinn hér í Drum- tochty. Vertu góður við hann eins og hann hefir verið góðurvið okkurí fjörutíu ár. Frammi fyrir þér erum vér syndarar. Fyrirgefðu honum það rangt, sem hann hefir gjört, og fær þú honum það ekki til skuldar. Hugsaðu um fólkið, sem hann hefir hjálpað — konurnar og börnin — og bjóð þú hann velkominn heirn, hann þarf svo sárt á því að halda eftir alt dagsverk- ið. Amen.“ „Þakka þér fyrir, Pétur, og góða nótt. Hjartans trúlyndi vinur, réttu mér hönd þína, því verið getur, að eg þekki þig ekki aftur. Nú ætla eg að fara með bæn- ina hennar móður minnar og sofna svo dúr, en þú fer ekki frá mér, fyrr en alt er búið. “ Svo hafði hann yfir þetta vers eins og hann hafði gjört á hverju kveldi alla æfi: I nótt, er sígur svefn á brá, mér sjálf'ur drottinn veri hjá. Ef, áður vakna, eg' bíð hel, eg öndu mína drotni fel. Þegar vindurinn feykti snjónum upp að glugganum í snöggri gusu, svaf hann vært; en alt í einu vaknaði hann í svefnin- um, ef svo má að orði komast. Einhver þurfti hans við. „Ert þú úr Urtach-dal?“ Og einhver ókunnug rödd sýndist að hafa svaraö honum.— “Er hún verri? Tekur hún mikið út ? Það er ekki álitlegt. Það var gott, að þú komst. Framdýrunum verður ekki lokið upp fyrir snjó; far þú í ■'kring, og þú kemst inn í eldhúsið; alt verður til á augnabliki. Haltu á ljósker- inu meðan eg söðla Mósu, og þú þarft ekki að koma fyrr en með morgni; eg þekki veginn. “ Svo hélt hann áfram í svefni líknarer- indum sínum og barðist um í storminum. „Það er ljóta nóttin, Mósa, og færðin þung. Getur þú séð fyrir fætur þér,grey- ið? Snjórinn gjörir mig örvita. Bíddu við, meðan eg þukla eftir vegarskiftum ;

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.