Breiðablik - 01.01.1913, Blaðsíða 16

Breiðablik - 01.01.1913, Blaðsíða 16
128 BREIÐABLIK ÆFINTÝRIÐ UM FRÚ SORG. Eftir HERMANN SUDERMANN. PA Ð var einhverju sinni móðir, sem gfóður guð hafði gefið son. En hún var svo bláfátæk og einmana.að hún hafði enga,til að halda honum undir skírn. Og hún andvarpaði og hugsaði: ,,Hvar get eg fengið guðmóður handa honum?“ Kveld eitt, um leið og húmið var að falla á, kom kona ein að húsum hennar. Hún var í gráum fötum og hafði vafið gráleitum dúk um höfuð sér. Hún sagði ,,Eg skal vera guðmóðir fyrir son þinn, og eg skal sjá um, að hann verði góður maður, og láti þig ekki deyja úr sulti. En þú verður að gefa mér sálu hans“. Þá setti hroll að móðurinni, og hún sagði: ,,Hver ert þú?“ ,,Eg er frú Sorg“, svaraði konan grá- klædda. Og móðirin grét. En af því hún svalt heilu hungri, gaf hún konunni sálu son- ar síns, og hún bar hann til skírnar. Og sonur hennar óx upp og lagði mik- ið á sig til að afla þeim viðurværis. En af því sem hann hafði enga sáþkendi hann hann heldur engis fagnaðar og engrar æsku, og oft leit hann móður sína með ásökun í auga, eins og vildi hann spyrja: ,,Móðir mín! Hvað hefir orðið af sálu minni?“ Þá varð móðirin sorgbitin, og gekk af stað til þess að leita honum sálar. Hún spurði stjörnurnar á himninum: ,,Viljið þið gefa honum sál?“ En þær sögðu: ,,Til þess er hann of lítilmótleg- ur!“ Og hún spurði blómin á heiðinni; þau sögðu: ,,Til þess er hann of sorgbitinn!“ Og hún spurði háu trén; þau sögðu: ,,Til þess er hanu of auðmjúkur!11 Og hún spurði höggormana slægu; þeir sögðu: ,,Til þess er hann of ein- faldur!“ Þá hélt hún grátandi leiðar sinnar. Og í skóginum kom til móts við hana ung og fögur kóngsdóttir og var hirðfóikið alt með henni. Og er hún sá konuna gráta, steig hún af hestbaki og tók hana með sér í kast- alann, sem allur var gerður úr gulli og gimsteinum. • Þar spurði hún: ,,Seg mér, hví græt- ur þú?“ Og móðirin sagði henni frá raunum sínum, að hún gæti eigi útvegað syni sínum neina sál og engan fögnuð og enga æsku. Þá sagði konungsdóttirin: ,,Eg má enga manneskju sjá gráta! Veiztu hvað? Eg skal gefa honum eigin sálu mína“. Þá féll móðirin fram fyrir henni og kysti hendur hennar. ,,En“, sagði kóngsdóttirin, ,,sjálfkrafa gjöri eg það ekki, hann verður að biðja mig um hana“. Þá gekk móðirin með henni til sonar síns. En frú Sorg hafði sveipað honum grárri slæðu um höfuð, svo hann var blindur og fekk eigi séð kóngsdótturina. Og móðirin bað: „Elskulegu frú Sorg, láttu hann nú lausan“. En Sorgin hló — og sá, sem sér hana hlæja, fær eigi tára bundist — ogsagði: ,,Hann verður sjálfur að ávinna sér frelsið“. „Hvernig má hann það?“ spurði móð- irin“. ,,Hann verður að fórna öllu, sem hann elskar“, sagði frú Sorg. Þá fyltist móðirin mikilli gremju og lagði sig fyrir og dó. En kóngsdóttirin bíður biðilsins enn þann dag í dag. Prentsmiðja Ólafs S. Thorgeirssonar 678 Sherbrooke St., Winnipeg.

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.