Frækorn - 01.10.1901, Blaðsíða 8
152
F R Æ K O R N.
af manni, sem lét sín „bráðabyrgð-
arlög“ koma í stað vilja þjóðarinnar.
Vinstri menn hafa oft verið á móti
þessari kirkjuráðstofnun, sem oft sýndi
sig harðla ófrjálslega í kirkjulegum
málum. Aðfarir hennar í málinu
gegn pastor Anton Jensen, Harboeyri,
og fleira er enn í fersku minni.
23 mánuði hefur búastríðið staðið
yfir. Hvað það hefur kostað Búa
í manntjóni er ekki kunnugt, en
hvað snertir Breta eru nákvæmar
skýrslur til. Bretar hafa alls misst
úr stríðinu 71,383 manns. Af þessum
eru um 50,000 sendir heim sjúkir
eða særðir, og margir af þeim eru auð-
vitað orðnir frískir aftur. Um 21,000
eru drepnir í Búastríðinu; af þeim
voru 800 foringjar.
— Einkennilegar tölur. „Kring-
sjaa“ tekur eftir „Frankfurter Zeitung"
þessar tölur, sem hér fara á eftfr:
1 X 9 -f 1 = 10
12 X 9 -f 2 = 110
123 X 9 -j- 3 = 1110
1234 X 9+4= 11110
o. s. frv.
1 x 9 -v- 9 = 0
12 X 9 -r 8 = 100
123 X 9 7 = 1100
1234 X 9 6 = 11100
— „Dagskrá 11“ nefnist nýtt blað,
sem Sigurður Júl. Jóhannesson er
byrjaður að gefa út í Selkirk, Mani-
toba.
— Professor Koch er farinn að halda
því fram, að tuberkulose (tæringí
smitti ekki frá kúm til manna.
Margir háttstandandi læknar eru samt
ekki sammála þessari kenningu, og
þeim þykir sennilegast, að hinn mikli
vísindamaður sé farinn út i gönur í
þessu máli.
— Astvaldur Gislason, kandidat í
guðfræði, kom með Vestu. Ætlar
hann að dvelja í Reykjavík.
Til allra lesenda ,Frækorna“.
Utg., sem nú er búsettur á Seyðisfirði,
biður alla þá, sem skrifa sér, að senda
bréf og sendingar með utanáskrift: D.
Östlund, Seyðisfirði.
Kaupendur í Reykjavík eru beðnir
um að snúa sér til herra Jóns B. Jóns-
sonar í Aldar-prentsmiðju, ef vanskil
skyldu verða á útsendingu blaðsins.
HAUKUR HINN UNGI,
heimilisblað með myndum, flytur ein-
göngu úrvals-sögur og fróðleik, spak-
mæli, skritlur og gátur. Kaupið
hann, áður en upplagið þrýtur.
y^~Gjalddagi ..Frækorna ' er I. okt.
FRÆKOKN
koma út h. 1. og 15. í hverjum mánuði,
kosta hér á landi 1 kr. 50 au., í Vest-
urheimi 60 cents. Borgist fyrir 1. okt.
Ursögn ógild nema komin sé til útg. fyrir
1. okt. og úrsegjandi sé skuldlaus fyrir
blaðið.
Nýir kaupendur og útsölumenn gefi
sig fram. Útg. gefur betri sölulaun
en önnur blöð gjöra.
ÚTO. OG ÁBYRGBARM.: DAVID 0ÍTLUND
ALD AR-PRENTSMIÐ JA.