Frækorn - 15.05.1902, Qupperneq 3

Frækorn - 15.05.1902, Qupperneq 3
59 útbreiddur föður-faðmurinn, sigur-kórón- an og konungshásætið á himnum, þar sem hann áður hafði setið ásamt með föður st'num. Þó varð honum það ekki eitt augnablik á að gleyma þeim, er hann nú ætlaði að yfirgefa. Pó að þeir svo gjarnan óskuðu að mega íylgjast með bonum á himnaför hans, þá var það þó betra að þeir yrðu hér eftir, til þess að leiðbeina syndurunum á veginn til him- insins. Með því móti mundi villu-myrki heimsins verða eytt og lausnarstarfi freis- arans haldið átram. Hann hafði í bæn sinni sagt við föð- ur sirn: »Ekki bið jeg, að þú takir þá úr heiminum, heldur að pú verndir þá íyrir hinu illa.« Og ernfremur, rétt áður en hann skildi við þá, gaf hann þeim þetta dýrðlcga fyrirheit: »Sjá, eg er með yður alla daga, allt til enda ver- aldarinnar.« Þegar þeir nálguðust Betaníu, söfnuð- ust lærisveinarnirsaman t' kringum hann: og sem hann stóð þar og horfði á þá, var scm undarlegt ljósský hyldi ásjónu hans. Hann breiddi út faðminn, hót upp hendur hendur sfnar og blessaði þá, — en meðan á því stóð varð hann numinn frá þeim. En er lærisveinarnir stóðu eftir undrandi óg slörðu til himins á eft- ir s'num uppnnmda meistara, sáu þeir hann hjúpast hvítu skýi, svo þcir misstu sjónar á honum. t’eir gátu ekki haft augun af þeim stað, þar sem þeir síðast höfðu séð sinn hjart- fólgna ieiðtoga og kennara, En er þeir stóðu þar og störðu til himins heyrðu þeir rödd þar hjá þeim; og er þeir litu við, sjá, þá stóðu hjá þeim tveir menn t' hvítum klæðum, er fiuttu þeim þetta hug- hreystandi erindi : ♦t'essi Jesús, sem uppnumitin er frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.« Svo sem kunnugt er, fæddist Kristur í auðvirðilegri jötu í Betlehem; hann tók sér sjálfur mannlegt cðli. — En með Hísstaifi sínu hér vann hann fullkominn sigur. Hann var blýðinn og auðsvipur sfnum jarðnesku foreldrum og vann með Jósep að timbursmiði. A ferðum sínum reyndi hann oft hvað líkamleg þreyta er, og hann vakti oft heilar nætur við bæna- gjörð. Af meðaumkun mettaði hann hinn hungraða mannfjölda; — hann iæknaði sjúka og lífgaði dtuða; og þó — varð hann útskúfaður, — húðsttýktur — kross- lestur. En að lokum steig hann upp í manns gervi sínu, til þess að setjast guði til hægri handar á himnum. d’ K. K. Þú hlýtur að deyja maður. Ein rödd er ógnar, ógnar sterk, — hver endurkveður staður —, hún hindrar oft hið hugða verk þann hryggir sem er glaður; hún boðar dóm, þeim — utan ef —, sem af sér sleit ei synda vef, hún heyrist Hfsins hvert við skref: Þú hlýtu’r aðdeyja maður. O, lífið manns, það líður fljótt, sem lækjarstraumur hraður, og æsku tíð, sem ellinótt fæst enginn griðastaður; þar vinir tryggða binda bönd þar búið reisir starfsöm hönd eins hcyrist — já um haf og lönd — Þú hlýtu’r aðdeyja maður. Jón Jónsson. Spurningabálkur. Sp.: I 6. tbl. Frækorna er því haldið íram í greininni um innblástur biblíunnar, að Jesús hafi verið skírður árið-26-*—27 e. Kr. Eg sé það Hka, að tíminn í Dan. 9, 25. 25. kemur vel heim við það. En mér er spurn, hvort þetta sé rétt, að Jesús hafi verið skírður það ár. Mér er kunnugt um, að sumir enskir krónologar1 1 í hinui ensku biblíu eru áratölur settar við viðburðina (í röndinni). Skírn Krists er þar sett til 26— 27 e. Kr. og aðrir viðburðir samkvæmt því.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.