Frækorn - 15.05.1902, Page 7

Frækorn - 15.05.1902, Page 7
63 valdur, þið verð jeg að lýsa til- hæfulausar illkvittuisgetsakir höf. í minn garð. Eg lagði aðaláherzluna á það, að við þyrftum að koma að bindindishlynntum mönnum á þetta þing, vegna þess, að rnjög líklegt væri, að þeir yrðu endur- kosnir við næstu kosningar, ef þeir ynnu þjóðinni það gagn á þessu þingi, sem vænzt er af þeim, og þá skóðun hafa merkari menn en »bindindismaðurinn« er. flJSvo hef eg ekki fleira að athuga við grein þessa, en að eins benda á það, sanngjörnum mönnum til yfirvegunar, hvor okkar, eg eða »bindindismaðurinn«, hafi gert mál þetta að flokksmáli. Eins verð eg að halda, að höf. sé ekki einlægur bindindismaður, þó hann þykist vera það, og hann hafi því ekki almennilega þorað að láta sjájframaní brenni- vínsandiitið á sér, m;ð því að birta nafn sitt, sem hefði þó verið hreinskilnislegra af þessum eldrauða ættjarðarvini og »heimastjórnarmanni«. Seyðisfirði U/B 1902. Sigurj. Jóhannsson. Fréttabálkur ÍSINN farinn, vonandi fyrir fullt og allt. Skip hafa verið hér mörg undan- farandi daga. I dag kom Egil. Lítið af fréttum, sem ekki hefur áður verið getið um í blöðunum. DE WITT TALMAGE, frægasti prestur heimsins, síðan Spurgeon dó, er látinn í Washington, 70 ára að aldri. Þráðlausa FIRÐRITUNIN. Á fé- lagsfundi síðast í febiúar lýsti Marconi því yfir, að það væri með öllu tilhæfu- laust, að fregnir, sem hann sendi, gætu borist öðrum í hendur en réttum viðtak- anda. Að vísu er það svo, að þegar þráðlaust rafskeyti fer á .stað, þá berst það jafnt í allar áttir, alveg eins og þeg- ar steini er kastað í miðja lygna tjörn, þá berst straumbylgjan út í jöfnutn hring í allar áttir. En hvert senditól er stilt á sérstakan hátt, og [ekkert viðtökutól getur markað skeytið (Morse-stöfum),nema það viðtökutól, sem nákvæmlega er sam- stilt við senditólið. ' FINNAR neita harðlega að gera her- þjónustu, síðan yfirstjórn hersins er lögð Rússum í hendur. VERKFALL mikið í Kaupmannahöfn meðal verkmanna viðskipsvinnu, sérlega við Fríhöfnina, þegar Egil fór. BUAR berjast vasklega. Fyrir nokkru misstu Bretar 3 foringja, 38 menn féllu, 5 höfðingar og 72 dátar voru særðir, en um 520 menn úr Bretahernum vantar og eru líklega fallnir. Búar hertóka líka Methuen lávarð, einn af reyndustu hers- höfðingjum Breta, og aðstoðarforingja hans, Paris major. HR. ÓLAFUR; HJALTESTEÐ, fyrv. verzlunarþjónn hjá Thomsen kaupm. í Reykjavík, hefur nokkurn tíma ’undanfar- andi verið að starfa að því að búa út síhreyfivél (Perpetuum mobile). 1 haust.er leið hugsaði hann að hafa lcyst þessa þraut, seir alheitiisins vélameistarar hingað til hafa ekki getað gert. — Hann fór með uppfundinguna til Kaupmannahafnar; þegar þangað kotn, féll verk hans í heild sinni í gegn. En um einn hlut vé'arinnar, pumpu, þykir svo mikils vert, að sögn, að manninum haía verið boðnar 50’ þús. krónur fyrir einkaleyfi til að selja hana, en það ekki látið fallt að sinni fyrir minna en 100 þús. LYFJABUÐIN hér í bænum var i því ástandi, þegar fyrverandi lyfsali skildi við hana í haust, að naumast voru til algenustu og allra nauðsynlegustu meðul, enda fremur óhirtnislegur frágangur á því litla, sem til var. Hinn nýi Iyfsali, hr. Erik Erichsen, sem kom hingað og tók við lyfjabúðinni um áramótin, hefir því átt mjög erfitt með að fullnægja óskum manna um meðala- kaup, enda ekki getað sinnt nærri öllum

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.