Frækorn - 05.11.1903, Blaðsíða 3

Frækorn - 05.11.1903, Blaðsíða 3
FRÆKORN. Quðs musteri i. „Þá opnaðist guðs musteri á himni, og sátt- málsörk drottins birtist í hans musteri; urðu þá eidingar, hvellir, reiðarþrumur, jarðskjálfti og mikið hagl." Opinb. 11,19. Pegar vér nú höfum valið texta vorn nr Opinberunarbókinni, óskum vér að biðja les- endurna að hlusta með athygli til þess, sem vér viljum segja. Því sú skoðun, að Opinber- unarbókin sé óskiljanlegur leyndardómur, er alveg ástæðulaus. Nei, bókin er þvert á móti opinberun og hefnr aldrei verið innsigluð. Því svo er að orði kveðið: „innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar, því tíminn er nálægur. „Opinb. 22, 10. Um hana er enn fremur sagt: „sæll er sá, sein les þessi spádómsorð og þeir, sem heyra þau og geyma það, sem í þeim er skrifað, því tíminn er nálægur." Opinb. 1, 3. I fyrsta Iagi viljum vér benda á, hvað þetta musteri er, og í öðru Iagi, hvernig það verður opnað. — Guðs musteri er hans bústaður’ Sjálfur er Guð musteri. Opinb.21 22. Ogenn- fremur hans bústaður á himni og þau hjörtu, er hann býr í með sínum heilaga anda. Guðs musteri er annaðhvort opið fyrir straumum náðarinnar til mannanna eða opið fyrir hegningu yfir þeim, sem hafa hafnað náð hans. Vér viljum í fyrstunni íhuga musterið í tilliti til hins fyrnefnda. í*að, að musterið er opið, táknar, að frá því opinberast guðdómur hans, vilji, eiginleikar og réttlæti tíl þess að veita mönnum þekkingu á honum. Sá, sem hefur lært að þekkja guð, sér musterið opið. Að þetta sé hin rétta þýðing þess, að musterið verður opnað, sjáum vér af því, að það var sáttmálsörk guðs, sem varð sýnileg frá hinu opna musteri, og það var sáttmálinn, sem var í örkinni, hin tíu boðorð, er opinbera veru guðs og eru mælikvarði fyrir hans rétt- »47 læti, sem varð sýnilegur. Hin 10 boðorðguðs eru því sáttmálinn í nýja testamentinu eins vel og í hinu gamla. „Hinn nýi sáttmáli" er ekki stofnaður með betri Iögum, heldur með betri fyrirheitum, því að guðs lög eru full- korrlin og því óumbreytanleg. Sáttmálinn er fólginn í tvennu, sem sé; fyrirheitin og lögin (boðorð guðs). Og fyrir trúna á fyrirheitin er það, að maðurinn getur undirgengist að hlýða lögum guðs. I Kristi sjá menn himininn opinn og skoða inn í musteri guðs. Hann er dyrnar í fyllstu merkingu þessa orðs. Hann kom til þess að opna veginn gegnum forljaldið inn í hið allra- helgasta í helgidóminum, sem liann opnaði oss sem nýjan og lifandi veg. Hann kom til þess að opinbera föðurinn, til þess að gera lögmál hans mikið og dýrðlegt og gefa mönnum aftur lykil þekkingarinnar. Kristur er ímynd guðs. Og fagnaðarerindið er opinberun guðs laga og réttlætis. I’að er, ef svo mætti segja, lokið á örkinni. Og trúin á fagnaðarerindið hefur í för með sér, að innihald arkarinnar eða lögmá! guðs verðtir skrifað í hjartanu. Á þessu má þekkja hið sanna fagnaðarerindi. Texti vor talar samt í sérstökum skilningi um, að guðs musteri verðttr opnað. Sambandið sýnir, að það, að musterið opnast, á sér stað við enda hins evangeliska tímabils. Musterið virðist eftir þessu að vera opið bæði við upp- haf hins evangeliska tímabils og við enda þess, en að það hafi verið lokað á tímanum þar á milli. Það er þá einhver, sem hefttr lokað musterinu; en það er ekki drottinn, heldur honum andstætt vald. Þetta hefur páfadæmið eða kaþólska kirkjan gert. — Hún hefur lokað musterinu með því að taka frá mönnum lykil þekkingarinnar eins og Gyðingarnir forðum og sett þá t'tt í myrkttr og hjátrú heiðindómsins. Að vísu hefur hún ýmsa aðstoðarmenn í öðrum fölskum trúarbrögðum, svo sem Muhameds- trúnni, sem í Op. 9,2 er Iíkt við reyk, er leggur upp og formyrkvar sólina og loftið og þannig

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.