Frækorn - 26.08.1904, Page 10
138
FRÆKORN.
sjálfan mig að syndara, og eg syndg-
aði, af því að eg var fæddur syndari.
Syndir mínar gerðu mig ekki að synd-
ara. Epli á tré gera ekki tréð að
eplatré. Það var eplatré í 3 ár áð-
ur en það bar epli. Pað bar epli, af
því að það var eplatré. i-annig gerðu
ekki syndir þínar þig að syndara, en
þú syndgaðir vegna þess að þú varst
fæddur syndari. Frh.
Skírnin — hvernig hún á að
fara fram
Stanley, enskur dómkirkjuprestur,
segir þannig frá um aðferðina við
skírnina:
»1. Skírnin var í upphafi framkvæmd
með niðurdýfingu'eða greftrun í vatni,
af því að þetta fyrirkomulag sýndi ljós-
lega þýðingu skírnarinnar.
»2. Það orð, sem Kristur viðhafði
um skírnina, þýðir niðurdýfing.
»3. Kristur sjálfur var skírður nið-
urdýfingarskírn í vatni.
»4. Postularnir þektu aðeins þessa
skírnaraðferð.
»5. í hinni fyrstu kristnu kirkju
framkvæmdist ætíð skírnin með nið-
urdýfingu.
»6. í þrettán aldir var þessi aðferð
mjög almenn meðal kristinna manna.
»7. Þegar yfiraustur fór aðtíðkast í
stað niðurdýfingar, mætti þessi aðferð
mjög öflugri mótspyrnu.
»8. Jafnvel í köldum löndum, eins
og t. d. Rússlandi, hefir yfiraustur
orðið fyrir afarmiklum mótmælum, og
það jafnvel á seinni tímum.
»9. í orði er niðurdýfingin enn í gildi
í ensku ríkiskirkjunni. Elísabet ogját-
varður VI. voru skírð niðurdýfingar-
skírn. Kirkjuhandbókin skipar fyrir,
að það eigi að »dýfa« börnunum nið-
ur í vatnið, en ekki ausa þau vatni,
nema sérstök ástæða sé fyrir því að
víkja frá reglunni.
»10. Breytingin frá niðurdýfingu til
yfirausturs er meiri en sú breyting, er
rómversk-kaþólska kirkjan hefir gjört
í tilliti til kvöldmáltíðar drottins, þar
sem brauðinu að eins, en ekki víninu
er útbýtt.«
Sú eina sanna, rétta.
í litlu trúfræðisriti, er maður hér í
bæ, að nafni Samúel O. Jóhnson, gef-
ur út og selur, standa í júlíblaðinu
þessi orð um
»Barndómssögu fesú Krists.«
»Bók þessi, sem gefin var út í fyrra
vor, er sú eina sanna, rétta saga, um
barndóm Jesú Krists.«
Þegar vér lásum þessi orð, kom oss
sú spurning í huga:
Getur það verið, að maðurinn sem
þetta skrifar, viti það ekki, að hann
er hér að fara með ósatt mál? Eða
getur það verið, að hann blátt áfram
v/ifi segja ósatt?
Af þeirri viðkynningu, sem vér höf-
um af manninum, getum vér ekki
trúað því, að hið síðara gæti verið
mögulegt, og hljótum því að álíta, að
hann viti ekki betur.
Eins og áður er tekið fram í »Fræ-
kornum« er þessi »barndómssaga«
samin eftir hinum »apokryfisku« (huldu
óekta) guðspjöllum, er mynduðust
um líf Jesú framan af öldunum. Rit
þessi voru aldrei álítin áreiðanleg og
jafnast aldrei á við rit nýja testament-
isins; hefði svo verið, þá væru þau í
nýja testamentinu. En auglýsarinn
þykist ekki að eins vilja jafna »barn-
dómssögunni« við nýja test., heldur
setur hann hana yfir það. Það er
ýmislegt í nýja test., sem ekki kemur
heim við »barndómssöguna«, ogeigi
hún nú að vera »sú eina sanna, rétta«,
eins og S. O. J. segir, þá fer að vand-
ast málið!
Vér álítum alls engan skaða skeðan