Frækorn - 13.10.1904, Síða 2

Frækorn - 13.10.1904, Síða 2
162 FRÆKORN. Kirkjan Kirkjan er guðs ríki, segja margir hinir andlegu leiðtogar vorra tíma. En þar sem kirkjan er ríkiskirkja, þar, sem allir menn, trúaðir og van- trúaðir heyra kirkjunni til, þar er hún ekki frekar guðs ríki en satans. Þar hefir hún mist sjónar af tilgangi sín- um. Þar er ekki lengur mismunur á henni og heiminum. Kristur seg- ir um þá, sem í sannleika heyra kirkju hans til: »Þeir eru ekki af heiminum.« Jóh. 17, 14 — 16. Af þessu er Ijóst, að drottinn hefir ekki sína kirkju í slíku sambandi við heiminn. Kirkjan, sem slík ríkisstofn- un, er ekki Krists stofnun. Og það, hvernig slíkt kirkjufélag stendur gagn- vart kenningu ritningarinnar, er ekki nein sönnun með eða móti þessari kenningu. Ef mark á að taka á því, þá er afstaða slíkrar kirkju oftast nær hinu ranga heldur en hinu rétta. Sann- leikurinn er sjaldan fjöldans megin. Söfnuður Krists, hvar er hann? Hvar er það guðs ríki, sem vér nefnum »kirkja« ? Er Jesús var spurður að því af fari- seunum, hvenær guðs ríki mundi koma, svaraði hann þeim: »Guðsríki kemur ekki svo, að á því beri; og ekki verður sagt: sjá, það er þar, eða það er þar, því guðs ríki er hið innra í yður.« Kaþólskir gleyma þessum orðum Krists, er þeir benda á sína kirkju- sögu og halda, að kaþólska kirkjan sé guðs riki og að hún ein sé Krists kirkja, og réttlætir hún á þann hátt villur sínar og eins hitt, hversu anti- kristilega hún hefir breytt móti mikl- um fjölda manna, sem í einlægni vildi heldur fylgja orðum drottins en orð- um hennar. »Kirkjan«, »kirkjan!« hún er þeim meir en orðið guðs lifandi. En hvað segir svo sagan um mynd- un þessarar kirkju? Hún vitnar það ótvírætt, að fjöldinn af mönnum, sem fóru í hana, hafi verið óumskorinn á hjörtum og eyrum,« og hafi gengið í kirkjuna ýmist vegna nauðungar eða fégirndar. Og hverjar aðrar geta þá afleiðing- arnar verið af slíku háttalagi? Ekki les maður »vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum.« »Af þeirra ávöxtum skuluð þérþekkja þá,« segir Kristur. Gildir þetta um einstaklinga, þá gildir það vissulega líka um kirkjur. Sú kirkja, sem um margar aldir með djöfullegri grimd myrti og píndi guðs börn fyrir það, að þau vildu heldur fylgja boðorðum drottins, heldur en boðorðum hennar, sú kirkja var og er vissulega ekki Krists kirkja, og kenningar hennar heldur ekki af guðlegum uppruna. En hvar er þá Krists kirkja, spyrð þú? Lúther svarar: »Þar, sem guðs orð og sakramentin réttilega eru um hönd höfð,« og rétt er það vafalaust. Og hver og einn, sem guðs orði hlýðir í einlægni og af alhuga, hann heyrir þessum söfnuði drottins til, hvort sem mennirnir kannast við hann eða ekki, því ,drottinn þekkir sína.« Og það er oss nóg. Lúther segir: »Jeg trúi því, að á jörðunni sé til heilagur smár flokkur og söfnuður af heilögum mönnum einum, undir einu höfði, Kristi, saman kallaður af heilög- um Anda, með sömu trú, sama hug- arfari og sömu skoðun, með marg- breyttum gáfum, en samhuga í kær- leikanum, án rígs og flokkadrátta. Af honum er einnig eg hluti og með- limur, sem hefi aðgang að og er hlut- takandi í öllum gæðum hans, snúinn til hans og orðinn innlífaður í honum fyrir heilagan anda, með því að eg hefi heyrt og heyri enn þá guðs orð, en það er byrjunin til að komast í hann.« — Lúthers store Katekismus, norsk útg., bls. 104. Lúther tilheyrði samfélagi heilagra, þessari sömu kirkju drottins, sem hinn mikli siðbótarmaður í ofan tilfærðum orðum sínum hefir lýst; hann heyrði henni til, þegar hann hann var dæmd- ur xSalandi og óferjandi af hinu ka-

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.