Frækorn - 13.10.1904, Blaðsíða 6

Frækorn - 13.10.1904, Blaðsíða 6
166 F R Æ K Ö R N. Að Jesús hér ekki talar um ungbörn, sést greinilega á spurningu Nikodemusar: „Hvernig getur maður fæðst, þá hann er orðinn gam- all?“ Ef þessi orð Jesú eiga við skírnina, þá eiga þau við skírn fullorðinna manna. Um endurfæðing þeirra er verið að tala. Enginn getur neitað því. Og enginn getur heldur neitað, að guð eigi nóga vegi til frelsunar hin- um saklausu börnum aðra en skírnina. Annars er sennilegast, að orð Jesú í Jóh. 3, 5. eigi alls ekki við skírnina, heldur aðeinsvið endurfæðing ínanna fyrir verkun heilags anda. Andinn er hér nefndur til að tákna lífið, hitt nýa líf, sem á að byrja hjá hverjum, sem vill ná inngöngu í guðs ríki. „Andinn er það, sem lífgar", segir Jesús. Og vatnið er nefnt til að tákna hina hreinsandi náð drottins. Þetta hefði Nikodemus átt að þekkja, því orð- ið í gamla testámentinu talar þegar um þessa umbreytingu — án skírnar. í Esek. 36, 25., 26. segir drottinn: „Eg vil stökkva hreinu vatni á yður, svo þér skuluð verða hreinir; eg vil hreinsa yður af öllum yðar óhreinindum og skurðgoðum; eg vil gefa yður nýtt hjarta og koma nýjum anda f yðar brjóst; eg vil taka steinhjartað úr brjósti yðar og gefa yður aftur annað af holdi." Hérer í þessum teksta talað bæði um vatn og anda, og ef orð Jesú eru skilin í ljósi þessara orða, þá er eðlilegt, að Jesú spurði Nikodem- us: „Ertu lærimeistari Oyðinga, og veizt ekki þetta?" Þessa endurfæðingu fyrir guðs lífgandi anda og hreinsandi náð, sem orðið líkir við vatn, hefði hann (Nikodemus) átt að þekkja. En að hann sem iærimeistari Oyðinga hefði átt að þekkja leyndardóm hinnar kristilegu skírnar, það hefði verið ósanngjarnt að ætla honum. Skírnin er mjög greinilega skipuð í orðum Krists, og menn geta bezt skilið kenninguna um hana án þess að taka þá staði henni til stuðn- ings, semjekki tala um hana. ------------------- Særtin. Þótt bœnin hafi engin orð, í andvarpi hún berst frá storð til hárra . himinsala, og sœkir þangað lif og Ijós, því líkt, j sem þerri dögg af rós til djúpra geislum dala. A.J. ýloarp. Til útg. »Frœkorna«. Beri þín „Frœkorn“ fagran þroska: lifgrös lista og liljur dáða, Baldursbrár bliðra kosta og heima-njóla helgrar trúar! Bjóði þau bláber barna munnum, en yngisfólkí eyrarrósir; fifil og sóley svinnum og meyjum, en hrútaber hrumum körlum! Matth. Jochumsson. Sögur og smávegis um og eftir D- L. Moody. VII. £æknirinn og aðalsmaðurinn. Þegar eg árið 1867 dvaldi í Lund- únum, heyrði eg sögu, sem hafði á- hrif á mig. Ungur, franskur aðalsmað- ur var staddur þar, að leita sér lækn- ishjálpar. Hann færði lækninum bréf frá Napóleon III., Frakklands-keisara, sem hafði mikið álit á hinum unga aðalsmanni. Læknirinn gjörði sér alt far um að hjálpa hinum unga manni. Þegar hann nú var að spyrja hann á ýmsa vegu um heilsufar hans, komst hann að því, að þungt farg lá á sálu hans. »Hafið þér orðið fyrir nokkru sérstöku tjóni«?, spurði læknirinn. Það er án efa eitt- hvað, sem eykur yður óró og hug- sýki.«'

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.