Frækorn - 31.01.1905, Page 11

Frækorn - 31.01.1905, Page 11
FRÆKORN 10 elding hafi orðin í Öpinb. 13, 18. komið hon- um til hugár. Hann tók upp ritblý og skrif- áði upp orðin, sem stóðu á húfu páfans, og taldi saman talnagildi þeirra, og fékk þá út töl- Una 666, sem orðið segir að sé tala dýrsins. Á myndinni stendur: „Söndag"; það er sett þar til þess að tákna vald kaþólsku kirkj- unnar. „Söndag" þýðir dagur sólarinnar- Spyrji máður, hvaða merki eða sönnun ka- þólska kirkjan hefir sett á vaid sitt, þá svarar hún: „Einmitt það, að hún hafi breytt sabbats" deginum í sunnudag, og á það fallast mót- mælendur og komast þannig beinlínis í mót- sögn við sjálfa sig, þar sem þeir halda sunnu- daginn stranglega helgan, og vanhelga þó flesta aðra helgidaga, sem þessi sama kirkja hefir innleitt." - Abridgement of Christian Doct- rine. „Sunnudagshald mótmælenda er dýrkun, sem þeir, sjáfum sér ósamkvæmir, veita valdi hinnar rómversk-kaþólsku kirkju." — Plain Talk about the Protestantism to-day. Les í sambandi hér með Opinb. 14, 9- 12. Úr höfuðstaðnum. Fríkirkjan hér i Reykjavík er um þessar mundir að aukast svo stórkostlega, að jafn vel er útlit fyrir, að hún muni geta orðið stærsti söfnuður landsins, og það innan skamms. Kirkjan (húsið) er svo altof ónóg, að oft verða margir að snúa heim án þess að geta komið inn. Söfnuðurinn hefir því nýskeð ákvarð- að stækka kirkjuna þannig næsta sumar, að hún verði langstærsta kirkja landsins, 35álnirað lengd. Til húss- ins verður vandað sem mest að föng eru á. Ef spurt er um, hverjar ástæðurnar séu fyrir þessari stórvægilegu fjölgun fríkiikjusafnaðirins, þá eru þær vafa- laust fleiri: 1) Gjald: Sá, sem í þjóðkirkju er, verður að borga það, sem lög rík- isins ákveða; í fríkirkjunni er spúrt um, hve mikið hver geti tekið að sér að gjalda; alveg gjaldfríir eru menn ekki, eitthvert lág-mark mun fríkirkjan halda, en 2) Rað minsta, sem þar er tekið gilt, er þó fyrir margan lægra en hin lögákveðnu þjóðkirkjugjöld. Rað geti því verið sparnaður að vera í fríkirkj- unni. 3) Prestur fríkirkjusafnaðarins er an- nálaður mælskumaður, og margir þeir, sem jafnan heyra til hans, munu sjálf- sagt heldur vilja vera í kirkju þeirri, sem hann veitir forstöðu. Hvað snertir andlegar ástæður fyrir þessum straumi úr þjóðkirkjunni yfir í fríkirkjuna, þá getum vér ekki gert ! eins mikið úr þeim, eins og sumir | gera. Kenningar fríkirkjunnar eru í engu frábrugðnar kenningum þjóð- kirkjunnar, þótt maður skyldi ætla, að það þó væri fríkirkjunnar hlutverk að laga ýmislegt í þá átt. Sama má segja um kirkjusiðina. Hvað öllu þessu líður, þá gleðjumst vér yfir því, að hreyfing á sér stað, að böndin losna, gömlu vana-böndin, sem binda svo ótrúlega fast stundum. Vonandi verður fríkirkjuhreyfingin f höfuðstaðnum til þess að flýta fyrir því, að aðskilnaður ríkis og kirkju innan skamms komist á hér á landi, og þá væri sannarlega ekki til lítils unnið. Vatnsveíta í Reykjavík er vonandi væntanleg, áður en langt um líður. Um tíma hafa verið gerðar rannsóknir í Eskihlíð nálægt bænum, borað og fundið vatn, sem álitið er að muni verða bæði gott og nægilegt handa bænum, og margfalt ódýrara en að leiða vatnið úr Elliðaánum, eins og áður var um hugsað.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.