Frækorn - 15.03.1905, Síða 10

Frækorn - 15.03.1905, Síða 10
50 FRÆKORN einstaklinga heildarinnar og neyðir þá ti! þess að segja skilið við hana. Lygi og svik er það afl, er heldur mönn- unum saman, en sannleikurinn frelsar sérhvern lítinn hluta af þessari sam- loðun mannanna. En eigi verður sannleikurinn mönnunum ljós, fyr en þeir fara að vinna í þjónustu sann- ieikans, og rjúfa þetta svikasamband með því að varpa ljósi yfir meðvit- und hvers manns, og losa hvern ein- stakan á fætur öðrum við þá heild, sem sameinuð er fyrir fullting svik- seminnar. Og þannig hefir því nú verið hátt- að í meira en átján hundruð ár. Rað hófst, þegar boðskapurinn um Krist var boðaður mannkyninu, og það mun halda þannig áfram, uns það, eins og Kristur hefir sagt, »er alt komið fram» (Matt. 5, 18). Kirkja sú, er þeir menn voru í, er hugðu, að þeir gætu komið mönn- unum í eina heild, með hátíðlegum staðhæfingum um, að þeir einir réðu yfir sannleikanum, er fyrir löngu dauð. En sú kirkja, er þeir menn eru í, er sameinast hafa í eina heild, ekki með loforðum og smurningum, held- ur með því að vinna í þjónustu sann- leikans og kærleikans, — hún hefir altaf verið til og mun altaf halda á- fram að vera til. Nú sem fyr eru ekki í þessari kirkju menn, sem hrópa: »Herra, herra!« og breyta þó rang- lega, heldur þeir menn, sem »gera vilja föður míns, sem er á himnum* (Matt. 7, 21-24). Meðlimir þessarar kirkju vita, að líf jpeirra er »gleðr , þegar þeir slíta ekki samfélagið við mannsins son, og að »gleöi« þeirra aðeins getur að engu orðið, með því að þeir fylgi ekki boðorðum Krists, og þessvegna geta meðlimir þessarar kirkju ekki látið hjá Hða að rækja þessi boðorð eða kenna öðrum að rækja þau. Hvort sem nú, sem stendur, eru til margir eða fáir menn, sem svo er háttað um, þá eru þeir þó sú kirkja, sem eigi verður unnin og sem allir menn munu hneigjast að. »Vertu ekki hrædd, litla hjörð! því að föður yðar hefir þóknast að gefa yður sitt ríki« (Lúk. 12, 32). 2rot úr aldarhætti. 1. Cal trúlausa of/átungsins. Eg er maður og leik mér Ijúft lífsnautnir við, sem þörfin krefur. Heilsan er góð, eg hugsa ei djúpt, hamingjan því mig örmuúi vefur. Frjdls eg d minum ferðum er framknúinn lífs d gleði vegi, eins og í lofti leikur sér litli fuglinn ú sumardegi. Eitthvað ef rís ú móli mér, met egþað eins og rakka gjdlfur; langt frd mér aídrei lukkan fer, lifskjörum mínum rœð og sjdlfur, Trúarbrögð ei mig Irufla frekt, tel eg það mesta heimsku og villur, hugsa um þœr er hœttulegt, hjartveikra manna drauma grillur. Enginn skal mér þd telja trú, til sé líf annað betra en þetta, heimskingum einum hœfir sú hugsun frá hinu sanna og rétia. Upplýsíng sú er alveg nóg um þetta, sem að reynslan gefur: enginn, sem frá oss eitt sinn dó, aftur lifandi komið hefur. Skynsemi hef eg skarpa til skyldurnar rekja, og vel mér hegða Öðrum eg geri oft i vil, enginn þarf rnér um slikt að bregða. Ætlunarverk mín skýrt eg skil, skeika því aldrei heíms við röllin. Eins og flugeldur fróns um þil fljótur er eg á gliðruböllin. Sjónleika alla sæki eg vel, sá er mér vegur aldrei þröngur, Ijúfasta yndi lífs iníns tel, leiknar þá eru „Afturgöngur“.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.