Frækorn - 15.03.1905, Side 15
FRÆKORN
55
Dönvigs björgunar-dufl.
fslenzku blöðin hafa flutt fregnir
um þessa uppfundningu hins norska
skipstjóra.
Oss er ánægja að geta flutt mynd
af duflinu. Pað hefir vakið mikið um-
tal. Eftir þeim tilraunum, sem gerðar
hafa verið í Noregi, munu sjómenn
þar alment álíta að sér sé borgið, hafi
þeir björgunardufl Dönvigs með sér
á sjóinn. Rað er úr stáli og svo traust
að það bilar ekki í hvaða stormi sem
er. Það er ætlast til. að það geti orð-
ið mönnum sérstaklega að gagni, þar
sem björgunarbátar reynast ónógirí
gtormi og sjógangi. Rað mun geta
rúmað hér um bil 12 til 15 menn
ásamt nægum forða til fleiri daga.
F*að virðist vera sjálfsagt fyrir út-
gerðarmenn og sjómenn, hér á landi,
að reyna þetta björgunaráhald á ís-
lenzkum skipum. Vilji ekki útgerð-
armennirnir leggja út í þann kostnað,
sem af því leiðir, þá ættu sjómanna-
félögin að taka höndum saman um
slíka tilraun. Mannslífin eru of dýr-
mæt til þess að fara forgörðum svo
tugum skiftir árlega, hér hjá oss, sé
á annað borð nokkur kostur að af-
stýra því.