Frækorn - 15.03.1905, Blaðsíða 11

Frækorn - 15.03.1905, Blaðsíða 11
FRÆKORN 51 likamínn kaldur iiggi ndr, lífi eg samt með Jesú Kristi. Bakkus mér jafnan bœtir þrek, beiskju lifsins því kviði engri, eg af hans dreyra teiga tek, tilvera mín svo verði lengri. Lindin hans er mitt lyftiafl lífs míns á hverjum gleðidegi, þýtt við munaðar því eg tafl þakkir honum og lofgjörð segi. Síðasti nœr mig sígur d svefn í alkunnu dauðans siriði Bakkusar míns eg bergi þá bragðgóðan drykk og engu kvíði. 11. Cai trúaða æskumannsirts. Eg er maður og leik mér Ijúft lífsnautnir við í andans heimi, heldur þó að eg hugsi djúpt himnaföðurnum aldrei gleymi. Víðlika frjáls á ferð eg er fram um andlega himinvegi, eins og í lofti leikur sér litli fuglinn á sumardegi. Hér þegar gjöra móti mer margbreyttar rísa lífsins öldur, leita eg hjálpar þá hjá þér, þrieini guð, mitt líf og skjöldur, lífið mitt bœði og lukka hér Ijósasta með sér ber þann vottinn, altsaman gefið er frá þér, ■ alvaldi mikli himnadrottinn. Þurfandi’ og veikan þrátt mig finn. því skal eg aldrei, aldrei neita, af eigin mœtti eg ekkert vinn, ávalt þarf drottins hjálpar leita. Ef að eg sneiði illu hjá, œsku minnar um daga bjarta, gamall efalaust get eg þá guði þjónað með hreinu hjarta. Enginn skal mér þá telja trú, tilvera mín og líf hér endi, jeg þó að falli' á jarðar brú járnkaldur fyrir dauðans hendi skal mig því ekkert skelfa frá, sköfnung bláa þó dauðinn hristi, Get eg því engan gaum né agt glaðvœrðar nautn á heimsins engi. Hann hefir eigið líf út lagt, lífið endalaust svo eg fengi. Syndanna þúnga, sem til vann sektarinnar með gjörðum mínum, fyrir mig borgað hefir hann heilögum lífs með dreyra sinum. Við þá kœrleikans eðla eik anda minn bönd i náð hans þyrstu, dag hvern víð perlu dfra leik. Droitinn minn það er Jesús Kristur. Mig þegar dauðans framkvœmd frek flytur af þessum jarðar grunni, andlega þá eg til mín tek teiga lifs úr hans náðar brunni. Svbj. J. Hefnd Indíánans. Hina gullvægu reglu: »Ait, sem þér viljið að mennirnir gjðri yður, það skuluð þér einn- ig þeim gera", er að finna í fjallræðu frelsara vors og eiga allir að breyta eftir henni, sem játa, að þeir breyti eftir Kristi. En ef vérekki erum í sannleika guðs börn, getum vér aldrei hlýtt boðorði þessu, sem vera ber. Sagan skýrir frá því, að rómverski keisarinn Severus hafi orðið svo gagntekinn af hinum siðferðislega hreinleik og fegurð þessa boðorðs, að hann skipaði að láta hina gullvægu reglu standa sem áletrun á öllum opinberum hús- um sem hann létreisa. Pað er hægt að segja frá mörgum atburðum, þar sem menningar- lausir heiðingjar og viltir írúflokkar hafa með breytni sinni g)ört mörgum skömm, sem kall- ast kristnir, sem hafa á séryfirskin guðhræðsl- unnar, en afneita henriar krafti með orðum og gjörðum. Vér ætlum hér að skýra frá einum slíkum atburði: Fyrir mörgum árum, lá snyrtilegt og fagurt heimili sem ungur bóndi átti í einu af vestlæg- ari ríkjunum í ‘Nroður-Ameríku, þétt við yztu

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.