Frækorn - 04.01.1906, Side 1
VII. ÁRG. REYKJAVÍK 4. JAN. 1906. 1. TBL.
Alvaldi guð, þln mikla mildi
mér hefir blessun veiit d ný,
ó hvað eg feginn verða vildi
verkfœri þínum höndum i
einhverjum hjdlpa', er eymdir þjá,
aðstoðar þér að leita hjá.
Hjd þér má örugt hœli finna,
harðviðri lifs þó geysi strið;
trúfasti lœknir meina minna
min hefir gætt frd œsku-tíð,
og öll þá mannleg aðstoð þraut,
andlegan frá þér styrk eg hlaut.
Ljúft er mérþigað lofa’ ogprisa,
líknsami faðir dag 'og nótt,
þótt það sé mér um megn að lýsa
miskunnarverka þinna gnótt,
upp sem að hefja anda minn
I eilífan friðar bústað þinn.
Arndis Sigurðardóttir.
^ -<5V -
Jesús Kristur boðar hið þóknaniega
ár drottins.
jesús Kristur er í gær og í dag og
að eilífu einn og hinn sami.
Endurreisnarskeiöið.
Guð hefir fyrirbúið mönnunum ti4
frelsis öll þau náðarmeðul, sem mögu-
legt er, að hann geti veitt í samræmi
við sitt heilaga eðli, réttlæti og kær-
leika, og án þess að svifta manninn
frjálsræði sínu. Sérílagi hefir hann í
heilagri ritningu sett oss fyrir sjónir
alvarlegustu viðvaranir og hræðileg-
ustu ógnir á aðra hlið, ef vér höldum
áfram í syndunum; og á hina hlið
hefir hann kallað oss með kærleiks-
ríkri aðlaðan og dýrustu fyrirheitum.
Guð hefir fyrirheitið að endurreisa
alla hluti.
»Takið því sinnaskifti og snúið yð-
ur, svo að syndir yðar verði fyrir-
gefnar, svo að endurlifgunartímar komi
frá augliti drottins, og hann sendi
þann yður fyrirhugaða Jesúm Krist,
sem á að halda himninum alt til þess
tima, að alt endurskapast, sem guð
hefir talað um fyrir munn allra sinna
heilögu spámanna frá öndverðu.
Post.gj. 3, 19 — 21.
í upphafi var alt, sem guð skapaði,
harla gott. 1. Mós. 1, 31. Engin
sorg, sjúkdómur eða böl þektist á
allri jörðunni. Adam var hreinn og
fölskvalaus; hann ríkti sem konung-
ur yfir jörðunni með öllum hennar
I her. Á meðan hann ásamt Efu
konu sinni elskaði guð og hlýdd'i
í honum, naut hann fylsta unaðar í