Frækorn


Frækorn - 07.06.1906, Blaðsíða 2

Frækorn - 07.06.1906, Blaðsíða 2
178 FRÆKORN muntu aldrei lifa í hlýðni við guð. Vinir mínir, þó þér ekki lærið annað í dag þá reynið að líkjast meistara yðar í þessu, að gleðjast ekki við hrós heims- ins, og hryggjast heldur ekki þótt hann%. ámæli yður; hið eina fyrir yður að hugsa um er þetta : er verk mitt guði þóknan- legt, — gefur hann mér vitnisburð, — fæ eg heiður hjá honum? Þetta er leyndar- dómurinn við það líf, sem helgað er guði, að menn taka ekki vitnisburð eða heiður af nokkrum öðrum. Þetta mundi vernda oss frá að gjöra margt sem vér erum í vafa um að rétt sé og sumir hafa með höndum svo lengi að það verður meginregla í lífi þeirra. Hversu oft freistumst vér ekki til að víkja af veginum til þess að þóknast þeim, sem oss þykir vænt um. Margir álíta að það sé hættulegt fyrir prédikara að segja slíkt, af því hann með þessu hreki marga frá sér, sem annars mundu verða honum til mikillar hjálpar við trúboðsstarfsemi hans. En vér þurfum engra, nema drottins hjálp. Látum oss ekki sækjast eftir heiðri hjá nokkrum öðrum en guði; en verum að- gætnir og lifum þannig að vér sífelt get- um haft hans vitnisburð. Guðs dýrð. Virðum fyrir oss tvö dæmi, sem af- mála kærleika Krists til föðursins. Jóh. 17, 4. »Eg hef lokið því verki, sem þú fékst mér að vinna.< Hann sýndi kærleika sinn til föðursins, ekki einungis með því að byrja guðs verk, heldur einn- ig með því að fullkomna það. Hvar fullkomnaði hann það? svarið erjóh. 19, 30; En er Jesús hafði edikið til sín tek- ið, sagði hann: »F*að er fullkomnað,« og hann hneigði höfuðið og fól guði anda sinn. A þennan hátt fullkomnaði hann verk föðursins á krossinum. Eg og þú byrjum á guðs verki og eitthvað þemur í veginn, en vér vinnum það samt sem áður. Mikil sjálfsafneitun ligg- ur fyrir oss, en vér gefumst þó ekki upp, en að lokum —- hvað er það sem blasir við okkur? Krossinn. Eigum við að geta haldið stríðið út til enda, er það einungis fyrir kraft krossins Krists. Lengra en það komumst vér ekki. Jesús hefir sýnt oss veginn. Regar hann byrjaði göngu sína fékk hann í fyrstunni hrós, þegar á leið, mætti hann tortrygni, síðan var breiddur út ósannur orðrómur um hann, svo kom veruleg ofsókn. En hann hélt áfram alt til kross- ins og stóð stöðugur, þar til hann dó á honum og sagði: >það er fullkomnað.« Hér sjáum vér hvað vér þurfum — þann kærleika, sem fullkomnar það verk, er guð hefir fengið oss að vinna, jafnvel þó það ætti að fullkomnast á krossinum. Enn er ein opinberun á kærleika hans til föðursins — hin helzta af þeim öllum, hana finnurn vér á tveim stöðum, hjá Jóh. 7, 18. og 17, 4. »Hver sem talar af sjálfum sér, sá leitar eigin lofdýrðar, en sá sem leitar þeim heiðurs, sem sendi hann, sá er sannorður og prettalaus.« — Eg hefi gjört þig dýrðlegan á jörðunni, eg hefi lokið því verki, sem þú fékst mér að vinna.« — Petta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: »Faðir! tíminn er kominn, gjör son þinn dýrð- legan svo að sonurinn einnig geti gjört þig dýrðlegan . Kærleiki Krists til guðs, kom fram í því, að leita einungis hans dýrðar. Hann hafði elnungis einn tilgang með alt sem hann gjörði — guðs dýrð. Hann bað um að guð mætti verða dýrðlegur. Hann leið og dó til að gjöra guð dýrðlegan. Þetta var í raun og veru einfalt líf. Ein- ungis ein ráðandi hugsun gegnum alt lífið — að gjöra guð dýrðlegan. Framh. --------<•••■------

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.