Frækorn - 24.12.1907, Qupperneq 5
FRÆKORN
383
Bænavika Evangelisks Bandalags 1908.
5.-11. Janúar 1908.
Vér flytjum nú þegar dagskrá bæna-
vikunnar og vonum, að hluttakan nú
verði meiri en fyrri.
F*ar sem bæna-hald og samkomur
hefir farið fram hér á landi á liðn-
um árum samkvæmt fyrirsögn Banda-
lagsins, hefir mikil blessun af því
hlotist.
Og eitt, sem ekki er hvað minst,
hlýtur að leiða af hluttökunni í bæna-
vikunni: Rað er viðurkenningin um,
að allir sanntrúaðir menn eru
eitt í Kristi, eru bræður, enda þótt
nokkur meiningamunur geti verið
um einhver atriði. Sú tilfinning þarf
sannarlega að þroskast hér hjá oss.
Evangeliska Bandalagið er félag af
trúuðum mönnum í öllum löndum
og af ýmsum kirkjudeildum.
Hér á landi eru meðlimir: Hall-
grímur biskup Sveinsson, S. A. Oísla-
son, cand theol, Davíd Östlund trú-
boði og Arthur Gook trúboði.
Ritst. »Fræk.«
1. Allir kristilegir letðtogar og starfsmenn
beðnir um sem fyrsi að gera ráðstafan-
ir til þess, að guðs bðrn komi daglega
saman til sameiginlegs bœnahalds i þess-
ari viku, og ennfremur, að boðsbréfið verði
útbreitt sem viðast. Mœist er bróðurlega
til þess, að kennimenn prédiki út af þeim
textum, sem stungið hefir verið upp á, og
leiði athygli tilheyrenda sinna að bœna-
vikunni.
2. Óskað er eftir, að stuttar skýrslur um
samkomurnar og árangurinn af þeim
verði sendur ritara Bandalagsins, til
birtingar i „Evangelical Christendom".
Áskrift til ritarqns er: General Seeretary
of the Ev. Alliance, 7 Adam street, Sirand,
London, England.
Til allra þeirra, sem hvervetna ákalla
nafn drottins vors Jesú Krists, vors
og þeirra drottinn!
Elskaðir bræður í Jesú Kristi.
Áraskiftin eru ný köllun til vor um
að biðja, og í viðurkenning um þetta
sendir hið Evangelíska Bandalag út
boð til yðar um að sameina yður við
alla þá, »sem á sérhverjum stað ákalla
nafn drottins vors Jesú Krists«, með
því að helga viku þessa (5. —11. jan.
1908) til þess sérstaklega að leita
drottins.
Það er ekki hægt að gera of mikið
úr nauðsyninni á því fyrir söfnuð
Krists að hafa slíka sameiginlega
bænatíð, því að alstaðar eru skýr
merki þess, að ástandið er slíkt, að
eina hjálpin er að menn öðlist
meiri kraft heilags anda — en þessi
gjöffæst einungismeð því að komast
í nánari sameinigu við drottin vorn
og frelsara Jesúm Krist.
Hinn tiltölulega lítli árangur af
kristilegri starfseini, hinar lágu kröf-
ur, sem fólk gerir með tilliti til kristi-
legs lífernis, og hin vaxandi lítils-
virðing fyrir guðs orði, guðlegum
uppruna og myndugleika þess, og
fyrir degi drottins — alt þetta bend-
ir Ijóslega á, að vér þurfum að sjá
og reyna kraft heilags anda. Það er
heilagur andi, og hann einn, sem get-
ur helgað oss og veitt oss kraft í
starfsemi vorri, og enginn nemahann
getur blásið öllum trúuðum í brjóst
þá hjartans einingu og þann sam-
vinnuanda, sem er hinn ótvíræðasti
vitnisburður um drottin gagnvart
heiminum, sem lítur til hinna trúuðu.