Frækorn


Frækorn - 24.12.1907, Blaðsíða 6

Frækorn - 24.12.1907, Blaðsíða 6
394 FRÆKORN Vakandi söfnuður mun vænta til- komu drottins og leitast við að vekja heiminn og frelsa hann með fagnaðar- erindinu. Pess vegna hljóta teiknin á nálægð tilkomu hans og hin mikla neyð ekki-kristinna og nafnkristinna þjóða að gera áskorun þessa ti! sam- eiginlegrar bænár ei^n átakanlegri. Og þegar vér þannig söfnumst til þess að ákalla guð, skulum vér minn- ast þess vel, að vér þurfum ekki að sigra neinn óvilja frá guðs hálfu, heid- ur aðeins að samverka með honum, sem er viljugur og máttugur »að gjöra fram yfir alt, það, sem vér biðj- um eða skynjum.« Hversu auðug að eilífum afleiðingum getur því ekki þessi bænavika orðið, ef vér ekki að- eins leitum og öðlumst fyllingu guðs anda, heldur líka felum sjálfa oss, anda, sál og líkama, honum, þannig, að hann megi stjórna oss og leiða oss til hvers konar þjónustu sem hann megi kalla oss til í útbreiðslu fagnaðarerindisins. Við erum, kærir bræður, yðaríkær- leika drottins vors Jesú Krists, R. Hon. Lord Polwarth forseti. Mr. H. Martyn Gooch ritari. (Auk þess er í enska frumritinu mikilí fjöldi af helstu Bandalagsmönnum út um heiminn, en þeim nöfnum er slept hér sak- ir rúmleysis. — Þýð.) Ræðtmxtar og sambænaefni. Sunnudaginn 5.janúar. Rceðutextar: »Kenn þú oss, herra, að biðja.« Lúk. 11, 1. »Hingað til hafið þér enkis beðið í mínu nafni; biðjið, og þér nmnuð öðl- ast.« Jóh. 16, 24. »Látum oss því með djörfung nálgast náðarstólinn.« Heb. 4, 16. »Og er þeir höfðu beðist fyrir . . ., urðu þeir allir fullir af heilögum anda, og kendu guðs orð með djörfung.« Pgb. 4, 31. Mánudaginn 6. janúar. Þakkargjörð og auðmýking. Þakkargjörð fyrir alla náð á liðna tímanum, og fyrir sérstaka blessun í sam- bandi við bænaviku síðasta árs; fyrir aukna löngun hjá mörgum til þess að gera guð dýrðlegan í heilögu líferni, og fyrir áhuga á því að boða fagnaðarer- indið; fyrir þá blessun, sem fylgir al- mennum friði í heiminum; fyrir alla þá, sem kallaðir hafa verið héðan úr heimi í trausti og ótta drottins. Auðmýking vegna ófullkomleika vors bæði sem einstaklinga og félags, og hve oss vantar á að ná því marki, sem guð hef- ir sett oss bæði fyrir líf og starf; fyrir flokkadrætti og stríð, sem enn sést í söfn- uðunum; fyrir þá óvirðing, sem margir gera orði guðs og nafni Krists, þótt þeir beri nafn hans. Dœn um lifandi reynd á hinu dýr- mæta blóði Krists og krafti þess til að veita frið og hreinsa sálir; um nýja op- inberun anda og kraftar; um meiri dýrð handa nafni drottins vors Jesú Krists í og með fólki hans, og um fljóta, per- sónulega endurkomu hans. Sálm. 95. — Sálm. 100. Dan. 9, 16. -19. Róm. 7, 18.-25. - Fil. 4, 4,- 9. - 1. Jóh. 1, 5.-10. Pridjudaginn y.janúar. Ailsherjar-kirkjan: Lofgjörð og bœn fyrir „likamanum eina,“ sem Kristur er höfuð á. Lofgjörð fyrir vaxandi bróðernistilfinn- ingu meðal þeirra, er eiga hann sem drottin; fyrir sérhvert merki upp á ein-

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.