Frækorn - 24.12.1907, Blaðsíða 9
FRÆKORN
397
Leystur ur fangelsinu.
(Pgb. 12.)
Pétur postuli er settur ífangelsi. Hann
er ekki sorgbitinn eða örvæntingarfullur.
Hann er glaður yfir því að hafa rækt
skyldu sína og boðað náðarlærdóm
Krists til frelsunar mönnum; hann kveið
ekki ókomna tímanum, því hann vissi,
að Jesús var að tilbúa stað handa Iæri-
sveinum sínum og ætlaði svo að sækja
þá, svo þeir yrðu þar, sem hann væri.
Hann var glaður og fagnandi, þó hann
þýrfti að mæta ofsóknum. Hann vissi,
að þeir, sem líða með Jesú, munu einn-
ig verða gerðir vegsamlegir með honum.
Ó, hvað Pétur var hamingjusamur, jafn-
vel í fangelsinu, þar sem 16 stríðsmenn
áttu að gæta hans, af því hann þekti
Jesúm og elskaði hann! Hann hafði
nóg til að hugsa^um og gleðjast yfir
þarna í fangelsinu. Hann treysti drotni
sínum af öllu hjarta og svaf rólegur
milli tveggja stríðsmanna nóttina áður
en Heródes ætlaði að láta leiða hann fram.
Alt í einu Ijómaði birta um húsið og
engill drottins stóð sýnilegur við hlið
Péturs og vakti hann; samstundis duttu
af honum fjötrarnir, og engillinn bauð
honum að girða sig, binda á sig skó,
taka á sig yfirhöínina og fylgja sér út.
Pétur gjörði eins og honum var sagt,
en hélt, að hann sæi sýn, engin tálmun
varð á vegi þeirra, járnhliðið, sem án
efa hefir verið ramlega læst, lauk sér
sjálft upp fyrir þeim, þeir gengu dálítin
spöl, en svo
hvarf engill-
inn.
Pegar Pét-
ur kom til
sjálfs sín, sá
hann,að guð
hafði sent
engil til að
frelsa hann
úr höndum
Heródesar.
Hann fór
síðan til vina
sinna, sem
höfðu safnast
saman og
báðutil guðs
án afláts fyrir
honum.
Peir fengu
bæn ' sína
uppfylta og glöddust mjög við komu
hans, en hann sagði þeim nákvæmlega
frá, á hvern hátt drottinn hefði frelsað
sig.
»Ef þér eruð stöðugir í mér og mín
orð hafa stað hjá yður, þá megið þér
biðja hvers þér viljið, og það mun yður
veitast.« Jóh. 15, 7.
6'. J
Betra er að vera félaus en vinalaus.