Frækorn - 01.03.1910, Blaðsíða 5

Frækorn - 01.03.1910, Blaðsíða 5
F R Æ K O R N 29 Vatnsllóð í Paris. Ole Bull. Ole Bull — 100 ára afmæli. 5. febr. 1910 voru 100 ár liðin trá fæðingu Ole Bornemann Hulls. Hann dó fyrir nær 30 árum, 17. ág, 1<380. En orðstír lians lifir enn, og þessa 100 ára afmælis var víða minst. Ole Bull var upp alinn í Bergen, en Irægð sína hlaut hann á ferðum víða um lönd. Siðari hluta æfi sinnar var hann lengstum í Ame- ríku. Einu sinni ætlaði hann að stofna þar norska nýlendu, sem liann nefndi »01eana«, með sérstök u stj órnarfy rirkom u 1 a gi, en þetta mistókst, og hafði hann þó varið aleigu sinni til þess að boma þeirri hugmynd fram. En bonum græddist lljótl fé aftur. A hverju ári hafði hann komið óeim lil Noregs, þótt hann væri búsettur í Ameríku, og bústað atli hann skamt frá Bergen, sem beitir Lysöen. þar dó hann. Aorðmenn hafa reist honum tagra myndastyttu í Bergen, af henni kemur mynd liér ásamt andlitsmynd af Ole Bull. Mynda- styttan er frá 1902. Vatnsflóð á Frakklandi. Um siðustu mánaðamót (jan. —febr.) var ákaflegt vatnsflóð á Frakklandi. Seinefljótið hefir vaxið um ffeiri álnir og skaðar orðið fjarskalegir,aðallega í París, svo sagt er, að þeir nemi þús- und miljónum franka. Á inyndinni, sem liér er sýnd, sjást menn á ferli á tilbúinni »stétt«, er reisa varð á götunum til þess að menn kæmust leiðar sinnar. Síðan hríðversnaði svo, að víða varð að fara á bátum um göturnar. Margar brýr voru höggnar af Seine-fljótinu til þess að greiða vatninu rás. Inn í þinghúsin og dómsmálaráðaneytið rann vatn, einkum inn í kjallarana og skemdi það rafmagnsvélarnar og miðstöðvarhitunina, svo að þing- menn urðu að silja i kulda við steinoliuljós. Simfregnir 0. febr. sögðu Seine hafa fallið 3,6 metrum (um fd/ý alin). Vatnsflóð í Paris. Ráðuneytið franska ætlar að sækja um stórt ríkislán til að bæla úr tjóninu.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.