Gjallandi - 01.04.1907, Blaðsíða 2

Gjallandi - 01.04.1907, Blaðsíða 2
2 GJALLANDI Stefna og tilgangur „Gjallanda“. Fyrir nokkru kom oss til hugar að gefa út blað það, er hér kemur fyrir almeuuiuíssjóuir, og „OjallancUx nefnist. Stefna hans er, að hafa afskifti af öllum þeim málum, er hann til spyr, eða hefir þekking á, og getur yfir komist. Tilgangur hans er, að vera „fyrir fólkið", og vonum vér að það takist, og „Gjallandi“ vor verði skemtinn og ræðinn og nái alþýðuhylli og þá er tilganginum náð. vGjallandiu. Nafnið bendir á, að hann ætlar ekki að fara í launkofa með það. er hann veit og hefir þekking á. Vonum vér, er hann hefir byrjað á „gjalli“ sínu, að bergmál- ið undir taki, og hljóðið berist berg af bergi, og stall afstalli, og má þá segja, að hljóðalaust hafi hanu eigi í heiminn fæðst. Eigi ætlum vér að ábyrgjast, að hann sé bráðnauðsynleg- ur inn á hvert heimili á Islandi, en það er víst, að hann er eins nauðsynlegur sem allflest þau kblöð, sem segjast vera nauðsynlegust. „Gjallandi1* kemur út eftir hentugleikum kaupenda hans, nefnil.: eftir því sem hann er betur keyptur, eftir því kemur hann oftar út. En ef hann selst illa, því peninga kostar hann, þá getum vér skotið því að lesendum hans, að hann er ekki ófeigur. Um verð á „Gjallanda“ er það að segja, að þaðerekki ákveðið, og kann vel að vera að dagprísar verði á honum, að hann stígi í verði með degi hverjum, en að verð hans lækki, frá því upphaflega, kemur ekki til mála, og er því bezt að kaupa hann sem fyrst. Stefna og tilgangur „Gjallanda“ er, „að vera ekki við eina fjölina feldur“. Vér vonum hann verði kær gestur íslendingum, börnum, konum og körlum, yfir höfuð að tala, og verði þeim til fróð- leiks og skemtunar. Með þá ósk og von leggjum vér út á djúpið og birtum hið fyrsta blað hans.

x

Gjallandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gjallandi
https://timarit.is/publication/185

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.