Gjallandi - 01.04.1907, Side 7
GJALLANDI
„Yalurinn41.
Isfirzki „hræfuglinn“ er í 28. tbl. 1. árg. (vonandi þeim
síðasta) að finna að prentun á „Skólablaðinn" En betra væri
„hræfuglinum“ að plokka bjálkann úr auga sínn, en að leita
að flís í auga „Skólablaðsins". Ekkert íslenzkt blað er ver
prentað en „hræfuglinn", en það láta þó allir sér á sama
standa, því enginn les hann hvort sem er. í sama tbl. og
sömu grein er hræfugliun að drita á „Bjarma“ og ferst hon-
um það illa, en það verður ætíð bót í máli „að ómerk eru
ómaga orðin“. Annars er „hræfuglinn“ til flestra hluta óbrúk-
anlegur, þó eru dæmi til þess að reynt hafi verið að nota
hann á salernum. En eftir ástæðunum, er varla von á að
„hræfuglinn“ sé betri, því hvernig er hægt að ætlast til þess
af „aumingja stráknum“ að hann geti ritað nokkra grein
með viti, þegar þess er gætt, að hrokinn og sjálfsálitið skip-
ar öndvegið í dagfari hans.
Nýtt kvennablað
virðist „Þjóðhvellur1- vera orðinn, öllu heldur ábyrgðar-
maður hans.
Ritstjðri „Gjallanda“
vill leiða athygli heilbrigðsisnefndar Reykjavíkur, að nátt-
úrufegurðinni og rósailmnum, í portinu við húsið nr. 4íLækj-
argötu. Yæri það eitthvafl þægilegra og notalegra fyrir nefnd-
ina að þefa af jurtum þeim er þar vaxa, en að neyðast til
að þurfa sí og æ að vera með nefið ofan í hverri saltmetis-
kyrnu hér í bænum.
„Fjallkonan“ stýrislaus.
„Nú er af sem áður var“ þegar „Fjallkonan“ var í hönd-
um beztu manna. Hún hefir ekki átt neina sældardaga
síðan andarnir tóku við henni. Þó birti yfir henni sem
snöggvast hérna á dögunum ; en skammgóð reyndist birtan sú.
Líklega dregst hún nú aftur inn í andamyrkrið. Málbein.
Fegursta sjónin.
Hjá Ingólfshvoli, sá eg sýn fegursta, tveim útlendingum
lenti saman, þetta mátti ekki svo til ganga, svo Latur hélt,
en Bani barði og braut.