Alþýðublaðið - 09.05.1963, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.05.1963, Blaðsíða 2
 | «nat]írsr: Gisll J. Astþórssop (áb? <.» benedikt Gröndal.—ABstoðarrltstjóri j ■iörgvlu GuCmundsson - Fréttastjórl: Sigvaldi Hjálmarsson. — Simar: ; JS900 — 14 302 — 14 903. Auglýsingasími: 14 908 — Aösetur: Alþýðuhúsið. j — Pren'smifja Alþýöublaösins, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 65.00 , A mánuði. t laLsuiulu kr. 4 00 eint. Otgefandl: AlþýðUflokkurinn - Erfiðleikar kommúnista ALDREI munu fcommúnistar hafa átt eins erf- j itt uppdráttar fyrir neinar kosningar eins og ein- anitt nú. Lengi vel var íalveg óvíst, að 'kommúnist- <ar mundu geta boðið fram við kosningamar, þar , leð allt logaði í deilum og ófriði í herbúðum þeirra. eevintýrið var á enda. Bandalag kommúnista við Kommúnistum var það Ijóst, að Alþýðubandalags- j Hannibalista hafði mistekizt. Og nú reið á að fá nýja bandamenn til þess að gera nýja tilraun tiíl að t afstýra fylgishruni kommúnista. Kommúnistar %roru hræddir við kosningamar og treystu sér ekki ’ til þess að bjóða fram einir. En 'hivers vegna óttast kommúnistar kosning- ; farnar? Þeir óttast þær vegna þess, að almenningur fiér á 'landi hefur fyrir löngu gert sér það Ijóst, að fcommúnistadeildin hér er aðeins útibú frá heims- | kommúnismanum og lýtur algerlega boði mann- tanna frá Moskvu. Uppreisnin í Ungverjalandi 1&56 og afhjúpanimar á glæpaverkum Stalins , opnuðu augu margra fylgismanna kommúnista íyrir því, hvílík ofbéldisstefna það er, sem íslenzk- £r kommúni'star fylgja. Og það gekk fram af mörg j tum fylgjendum Sósíafistaflokksins hér hve snar- : Ui-indir foringjar íslenzkra kommúnista virtust - vera. Á sama tíma og ýmsir erlendir kommúnista- foringjar gagnrýndu ástandið í Sovétríkjunum þögðu þeir Einar og Brynjólfur þunnu hljóði. Það var þegar farið að halla undan fæti fyrir icommúnistum fyrir þingkosningarnar 1956 og fyr* frsjáaúlegt, að þeir mundu tapa fylgi. Þá kom Hannibal þeim til hjálpar og ýmsir létu blekkjast «m stund. En í kosningunum 1959 misstu komm- únistar allt aftur, er þeir höfðu unnið 1956 og meira til. Menn höfðu þá séð í gegnum hinn nýja hjúp kommúnista. Bæjarstjórnarkosningarnar sl. ár stað festu þetta enn og kommúnistum varð það enn ljós ar en áður, að þeir gætu ekki gengið til kosninga án þess að breiða yfir sig nýjan hjúp. Og loks tókst Þeim að véla tvo uppgefna foringja Þjóðvamar- flokksins, þá Gils Guðmundsson og Berg Sigur- fojörnsson til fylgis við sig. Þeir foringjar kommún ísta, er stóðu fyrir samkomulaginu við Þjóðvörn, þóttust hafa staðið sig vel. En Sósíalistafélag Reykjavíkur var á öðru máli. Það felldi að hafa nokkurn þjóðvamarmann á framboðslista komm- únista í Reykjaivík. En miðstjórn Sósialistaflokks- ins- hundsaði algerlega afstöðu flokksdeildarinnar. Engum er þó ljósara en kommúnistum sjálf- •um, að hið nýja bandalag safnar ekki um sig neinu fylgi. Það nýtur ekki einu sinni trausts í flokks- félögum kommúnista og þjóðvarnarmanna. Og þeir’ sem utan standa láta ekki blekkjast. <fl HANNES Á HORNINU í BLAÐINU SUNNLENDINGUR segir Guðmundur Guðmundsson Vík í Mýrdal: „Þá eru trygging- arnar ómetanlegar fyrir verkafólk- ið. Ég só eliki hvernig fólkið hefði komist af án tryggingabóta, og nú er komin í framkvæmd sú gamla krafa að landið verði eitt verðlags- svæði. Þetta eru ómetanlegar kjara bætur. Mór skilst að það muni um eftirlaun verkamannsins í dag, og mig hefði munað um fjölskyldu- bætur með mínum níu börnum. Ætli þær séu ekki í ár yfir 2700 kr. á mánuði og hefðu því numið um 32.000 krónum á ári fyrir mig. Og þetta kemur til viðbótar við kaupið, sem er alls staðar jafnt..“ ÞETTA ERU ATIIYGLISVERÐ cg lærdómsrík orð, sögð af djúp- stæðri reynslu manns, sem lifað hefur tvenna tímanú, barizt á- fram bjargarlítill og stuðningslaus með stóran bárnahóp, en um leið starfað sleitulaust áratugum saman að því að koma fram umb. á kjörum alþýðufólksins, og sér nú árangui'- inn án þess að hafa notið ávaxtanna meðan erfiðleikarnir voru mestir, en fagnar árangrinum og hvetur til áframhaldandi Baráttu. Á HVERJU GETA MENN byggt skoðanir sínar og afstöðu til op'ti- berra mála öðru en bláköldum staðreyndum reynslunnar sjálfrar Þegar reynslan talar, þá duga eng- in hróþ, cngar getsakir, engin biaðaskrif, hvorki iast né rógur. Hver og einn getur í einrúmi kann að reynsluna — og dregiö sínar á- lyktanir af henni. Það hefur tekið langan tíma að korna þessum ör- yggisbótum á fyrir fóikið. Fyrst varð að vinna bug á vantrú og tregðu, ótta við nýtt skipulag og hræðslu að ástæðulausu. OG ÞEGAR fyrsta áfanganum var náð, að fá löggjafarsamkomuna til að samþykkja tryggingakerfið í sinni upprunaíegu næsta ófull- komnu mynd, þá hófst baráttan stig af stigi við að fullkomna það og endurbæta, — og sú barátta stendur enn. í samvinnu við Sjálf- stæðisflokkinn, sem óhugsanleg var fyrir tiltölulega fáum árum, hefur nú tekist að stíga stærsta skrefið til þess að gera trygging- arnar nógu ifullkomnar. ENN STENDUR ÞESSI BAR- ÁTTA. Þó að tryggingarnar hafi aldrei nálgast þaö meir en nú að verða að þeim róttar- og kjarabót- um, sem ætlast er til að þær verði þá þarf enn um að bæta, — og AI- þýðuflokkurinn ætlar sér, ef hann fær afl til, að vinna markvisst að því á r/jslu árum. Það þarf að hækka fjölskyldubæturnar, ör- orkubæturnar, þannig að þær verði raunveruleg laun, án þess þó að tekin sé ábyrgðin af fólkinu til i dæmis með f jölskyldubötunum. SLÍKT KERFI, sem er í raun og veru framkvæmd jafnaðarsteín- unnar í þýðingarmiklu atriði, /erð ur ekki byggt upp á stuttum tíma. Það eru nú liðin tæp þrjátíu ár síðan fyrsti vísirinn að trygging- unum var lögfestur. Síðan heíúr kerfið verið að byggjast upp. Guð- mundur Guðmundsson hefur gert samanburð og birt hann í blaöi. Þetta getum við öll. Og þeir, :>em nú eru á miðjum aldri geta gert sinn samanburð síðar og fagnað ár- angrinum en þó því aðeins að Al- þýðuflokkurinn njóti stuðnings þess fólks, sem hann er að vinna fyrir og hefur unnið fyrir. Ef hann nýtur ekki þessa stuðnings, þá getur hann ekki komið vilja sin- um og stefnu fram. Hannes á horninn, DALVÍK DALVÍK FLOKKSKAFFI verður haldið í veitingastofu útibús KEA á Dalvík föstudaginn 10. maí kl, 8,30 e. h. Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra, Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður, Friðjón Skarphéðinsson ■ alþingismaður og Bragi Sigurjónsson ritstjóri munu sitja kvöldkaffi þetta og svara fyrir- spumum flokksmanna. ALÞÝÐUFLOKKURINN. DALV8K DALVÍK g S. maí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐI0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.