Alþýðublaðið - 15.05.1963, Blaðsíða 8
Dr. Martin Luther King (lengst til vinstri) í hópi fulltrúa á ráðstefnu um trúarbrögð og kynþátta-
mái, sem haldin var í Chicago. Nunnm-nar eru frá Chicago, hvítklæddi maðurinn er Indverji,
lengst við hægri er prestur frá Suðurríkjunum.
MARTIN LUTHER KING
Þetta hófst í desember 1955
í höfuðstað Alabama, Montgo-
mery, er lítið atvik í strætis-
vagni, sem blökkumönnum var
meinaður aðgangur að, varð
neistinn, sem varð til þess, að
blökkuménn tóku höndum sam
an um að nota ekki strætis-
vagna bæjarins. Fljótlega kom
í ljós, að nauðsynlegt var fyr-
ir biökkumennina, sem bjuggu
á víð og dreif í Montgomery
og höfðu engin sameiginleg sam
tök með sér, að útvega aðgerð
inni fasta forystu ef halda ætti
henni áfram í framtíðinni.
Innflytjandinn King varð
fyrir valinu. Hann hafði komið
frá Norðurríkjunum tæpu ári
áður að loknu guðfræðinámi.
Ungi presturinn og prestsson-
urinn frá Atlanta, Georgia,
reyndist dugmikill foringi.
Hann kom ekki einungis í veg
fyrir mcð ræðum, sem mikil
áhrif höfðu, að hatur og beiskja
gripi negrana, og afstýrði því,
að ögrunum yrði svarað með
valdi, heldur sýndi hann einn-
ig, að hann hafði til að bera
mikla kænsku.
Níundi hver negri í Mont-
gomery, en þeir voru 50 þús.
talsins, ferðuðust ekki mcð
strætisvögnum borgarinnar í
eitt ár. Atvik þetta vakti mikla
athygli hvarvetna í Bandaríkj-
unum og einnig erlendis. Stræt
isvagnafyrirtækið var fjárhags-
Iega borið ofurliði, og þegar
hæstiréttur lýsti því yfir ao
lokum, að kynþáttaaðskilnaður
á strætisvögnunum væri ólög-
legur, var King orðinn lands-
þekktur maður.
Strætisvagnamálið hefur síð
an verið fyrirmynd hinnar svo-
kölluðu „nýju hreyfingar'
blökkumanna í suðurríkjunum.
Sú aðferð Gandhis, að mót-
mæla án þess að beita valdi,
hefur verið fyrirmynd hinna
svonefndu „sit-in“ eða „setu“
mótmæla í kaffihúsum, „frels
isferðanna", sem einkpm hafa
beinzt gegn kynþáttaaðskilnaði
á strætisvagnabiðstöðum og
íleiri aðgerða, en jafnframt
hefur Kirtg lagað aðferð Gandh
is í hendi sér.
Flestar aðgerða þessara eru
runnar undan rifjum hópa,
sem Kir.g íi'.heyrir ekki, en
hann hefur alltaf verið við þær
riðinn, og þegar ofstækisfyllstu
kynþáttahatararnir úr hópi
hvítra telja slg sjá King að baki
þeirra allra, kunna þeir að
hafa nokkuð til síns máls.
Því að margt bendir til þess,
að „nýja hreyfingin“ sé í
leyni samhæfðari en hún virð-
ist vera, að forystan sé í raun-
mi»«iie ii i ii nnni——
inni sameinuð í samtökunum,
seún King hefur grundvallað og
er formaður fyrir „The South
e^n Christian Ledership.“
'Það er gömul hefð, að helztu
foringjar blökkumanna í suð-
urríkjunum séu prestar. Kirkj-
an var upphaflega einu félags-
samtökin sem blökkumenn
fengu að taka virkan þátt í. En
allt fram á síðustu ár voru prest
arnir af gamla skólanum alls
ráðandi. Þeir töldu það einu
skyldu sína, að boða fagnaðar-
erindið. Oft hjálpuðu þeir í
rauninni hvítu mönnunum með
starfi sínu að fá blökkumenn-
ina til þess að sætta sig við
auðmýkjandi hlutskipti sitt.
King er helzti fulltrúi blökku
mannaprestanna af nýja skól-
anum. Þeir eru yfirleitt ung-
ir, og nú eru þeir foringjar
„nýju hreyfingarinnar" víðast
hvar í suðurríkjunum. Þeir
telja það skyldu sína sem and-
legra leiðtoga félaga sinna af
sama uppruna, að leiða þá fram
til jafnréttis eins fljótt og unnt
er.
Til þessa hefur þeim tekizt
að fá mikinn fjölda negra til
virkrar þátttöku í árangurs-
ríkri, aðdáunarverðri og frið-
samlegri baráttu undir góðum
aga. Það er undir hvitum and-
stæðingum þeirra komið, hvort
hægt verður að heyja barátt-
una áfram í friði.
(Arbeiderbladet).
MAÐÚR I FRÉTTUNUM
SIGGA V8GGA OG TELVEHAN
BAPTISTAPRESTURINN
Martin Luther King hefur ver
ið víðkunnur foringi blökku-
manna í Bandaríkjunum um
árabil þótt hann sé aðeins 34
ára að aldri. Hann hefur ver-
ið ákveðinn og óbifanlegur for
ingi í baráttu negranna án
valdbeitingar fyrir jafnrétti í
þjóðfélaginu. Honum skýtur
65 BRAl
STÝRIMA
alltaf upp þegar aðgerð eftir
forskrift hans er hafin, eins og
nú í Birmingham, Alabama.
llann stappar stálinu í þá, sem
taka þátt í mótmælaaðgerðum,
og talar máli þeirra við yfir-
völd hvítu mannanna.
Stýrimannaskólanum var sagt,
upp hinn 11. þ.m. kl. 10 f.h.
Áður en skólastjóri, Jónas Sig-
urðsson, flutti skýrslu um starf
kólans á skólaárinu, minntist hann
þeirra, sem látizt höfðu af slys-
förum á sjó og í lofti og ennfrem
ur nokkurra manna úr Bjómanna-
stétt, er látizt höfðu síðan skól-
var sagt upp sl. vor og braut
skráðust höfðu frá honum.
Þá gat skólastjóri þess, að 70 ár
væru liðin frá því að fyrsta próf
var haldið við skólann, en það var
í marz 1893 og hafði þá skólinn
starfað í tvo vetur f rá því hann var
settur í fyrsta sinn.
Að þessu sinni luku 10 nemend-
ur farmannaprófi og 55 fiskimanna
prófi. í farmannaprófinu hlptu 6
nemendur 1. einkunn og 4 2. eink-
unn.
í fiskimannaprófinu hlutu 4 ág.
einkunn, 37 1. einkunn, 12 2. eink-
unn og 2 3. einkunn.
Bókaverðlaun úr Verðlauna- og
styrktarsjóði Páls Halldórssonar
fyrrv. skólastjóra, hlutu 4 fiski-
menn, þeir: Davíð Gunnlaugsson,
Eymar Ingvarsson, Gunnar Hall-
grímsson og Þorleifur Valdimars-
son, sem allir höfðu hlotið ág.
einkunn.
í janúar sl. voru brautskráðir
fr áskólanum 24 nemendur með
minna fiskimannaprófi og 22 frá
námskeiðum hans úti á landi.
Hæstu einkunn við farmannapróf
hlaut Þórður Ingibergsson 7,01, við
fiskimannapróf Davíð Guðlaftgsson
7,55, og við minna fiskimannapróf
í Reykjavik þeir Lúkas Kárason
og Þórólfur Sveinsson 7,17. Hæsta
einkunn er 8.
Eftir að skólastjóri haíði af-
hent skírteini, ávarpaði hann
nemendur og ræddi tim ábyrgð
og skyldur yfirmanna á skipum.
Sérstaklega brýndi hann fyrir
þeim gætnj og fyrirhyggju á sjó
í vondum og tvísýnum veðrum.
Ennfremur ræddi hann nokkuð um
nýjar og eldri siglingaaðfcrðir og
tæki. Brýndi hann fyrir þeim að
verða ekki algerlega háðir hinum
nýju tækjum, heldur viðhalda
jafnframt eldri aðferðum, þó að
nýju tækin séu ágæt og ómetan-
ileg til öryggis við siglingar.
8 15. maí 1963 — ALÞÝ0UBLAÐIÐ