Alþýðublaðið - 15.05.1963, Side 15

Alþýðublaðið - 15.05.1963, Side 15
allviss um, að hann mundi myrða Rimu, en á meðan var tvennt til um það, hvort Vasari hlypi á brott eða ekki. Ef hann gerði það, þá var sá möguleiki til, að Rima færi með honum, svo að Wilbur kæmi að húsinu tómu. Hins vegar gat verið, að Vasari yfirgæfi Rimu, og Wilb- ur fyndi hana. Og svo gat líka svo farið, að Vasari flýði ekki, lieldur yrði kyrr hjá Rimu, og þá mundi Wilbur fá nokkra mót spyrnu. Sem morðáætlun var þetta út í hött, en sem gáta bauð þetta upp á marga möguleika. Svo marga, að þetta var eins ^pg að kasta upp um eitthvað. Allavega var þetta ekki iengur á mínu valdi. Ég var búinn að undirbúa allt og yrði nú að biða úrslitanna. Ég slökkti ljósið og fór inn í svefnherbergi. Tóma rúmið við hliðina á mér kom mér til að hugsa um Saritu. Mig langaði til að biðja fyrir henni, en ég fann ekki orðin. Ég fór upp í, en slökkti ekki ljósið. Samvizkan vill verða beittari í myrkri. i SJÖUNDI KAFLI I I. Klukkan rúmlega sex næsta morgun ók ég niður að brúar- stæðinu. Það var þegar byrjað að vinna og ég skiptist á nokkrum orðum við verkstjórann. Jack hafði af- kastað feikimiklu síðan ég fór. Það var búið að hreinsa burtu jarðveginn beggja vegna árinn- ar. Það var þegar búið að reka niður nokkra staura. Ég gekk um og horfði á menn ina vinna í svo sem tíu mínút- ur, en sá þá hvíta og svarta Thrunderbirdinn hans Jacks koma á fleygiferð niður hæðina. Hann stanzaði rétt hjá mér, steig út úr bílnum, gekk til mín og skapgott andlitið á lionum bókstaflega gliðnaði í sundur í brosi. „Hæ, Jeff! Gaman að sjá þig. Allt í lagi?“ Ég tók í höndina á honum. „Já, allt í lagi svo er ég með svolítið, sem kemur þér á óvart. Ég get fengið allt það stál, sem við þurfum fyrir tveim prósent minna en lægsta tilboð, sem við höfum fengið til þessa.“ Hann starði á mig. „Ætlarðu að segja mér,.að þú hafir verið að vinna á meðan þú varst í burtu? Ég hélt, að þú hefðir farið í einkaerindum“. „Ég er alltaf að vinna“, sagði ég. „Hvemig lízt þér á þetta, Jack? Við spömm tuttugu og fimm þúsund“. „Mér lízt vel á það! Segðu mér frá þessu“. Við töluðum um viðskipti í næstu tuttugu mínúturnar, síð- an sagði hann. „Við þurftum að tala um þetta við verktakana okk ar, Jeff. Þetta eru góðar fréttir. Heyrðu, ég þarf að gera smáveg is hér, og svo kem ég á skrif- stofuna. Sé þig þá“. Hann gekk með mér yfir að bílnum mínum. „Og Sarita?" spurði hann. „Fréttirnar eru góðar“, sagði ég. „Ég fer til dr. Zimmermans á morgun“. Ég sagði honum frá þvi, að læknirinn vildi gera annan upp- skurð. Hann lilustaði fullur samúðar, en ég sá, að brúin var honum efst í huga, og ég skildi það. „Það er fínt, Jeff,“ sagði harn „Jæja, ég held þá . . . ” „Já, ég fer á skrifstofuna", sagði ég. „Hvernig reynist Weston?" „Það er allt í lagi með hann, en þú kemur alveg á réttum tíma, Jeff. Hann þarf hjálp, og ég lief ekki tíma til að veita honum liana“. „Ég skal sjá um hann“. „Fínt. Jæja, sé þig um ellefu leytið," og hann fór burtu og hrópaði jafnframt á verkstjór- ann að koma. Þegar ég kom til skrifstofunn ar, leit ég á klukkuna í mælaborð inu. Hana vantaði kortér í átta fyrir hádegí. Eftir svo sem kort ér mundi Wilbur fá bréfið frá mér. Hvað mundi hann gera.’ Ég varð var vlð, að ég hafði skyndi lega svitnað í lófunum. Ég lagði bílnum og fór upp skrifstofuna, þar sem Weston og Klara voru þegar komin að verki. Þau heilsuðu mér og siðan fékk Klara mér heilan búnka af bréfum, skjölum, útreikningum og möppum. Ég settist og byrjaði að vinna. Það var ekki fyrr en tíu, er ég stanzaði til að kveikja mér í sígarettu, að ég mundi eftir Wilbur. Það var lest til Santa Barba klukkan tíu mínútur yfir tíu og ég fann til skyndilegrar löngunar til að vita, hvort hann hefði tekið hana. Ég var þegar búinn að skrifa heilmikið af athugasemdum handa Jack, og ég hefti þær nú saman og fleygði þeim yfir á skrifborðið til Westons. „Viltu vera svon vænn að fara með þetta niður eftir til Jacks", sagði ég. „Hann þarf á þessu að halda. Ég skal passa allt hér á meðan“. „Sjálfsagt-. Ég horfði á hann. Hann var laglegur strákur, á- kafur og með á nótunum. Sams konar unglingur og ég hefði viljað vera. Ég horfði á haon taka blöðin og flýta sér út. Ég horfði á hann með öfund. Ég ósk aði, að ég hefði verið eins og hann. Ef hann væri heppinn, mundi hann ekki fá eldheitt sprengjubrot framan í sig og þurfa að leggja mónuðum sam- an á spítala, hlusta á stunur og óp þeirra sjúklinga, sem ekki þoldu sársaukann. Hann mundi ekki skipta sér af silfurhærðum dópista með gullna rödd, sem gat drepið mann, án þess að depla auga. Hann mundi ekki lifa við ógnun um uppljóstrun, né held ur mundi hann leggja á ráð um morð . . . einn af hinum fáu heppnu, og ég öfundaði hann. Um leið og hann var farinn tók ég upp símann og bað Klöru um línu út. Þegar ég fékk hana hringdi ég í landssímann og gaf stúlkunni númerið á And erson Hotel. Hún sagði að ég þyrfti aS bíða, hún mundi hringja aftur. Ég sat og reykt> og svitnaði. Ég varð að bíða í tíu íangar og taugatrckkjandi mínútur, áður en ég fékk samband. Sama kæruleysislega kvenn- mannsröddin svaraði: „Já? Hvað viljið þér?“ „Ég vil fá að tala við Wilbur", sagði ég. „Þér getið það ekki. Hann er farinn“. Hjarlað í mér kipptist svolit- ið til. „Eigið þér við, að hann sé farinn af hótelinu?" „Hvað lialdið þér, að ég meini annað?“ „Vitið þér hvert hann fór?“ „Nei, og hef heldur engan á- huga á því“, sagði hún og lagði símtólið á. Ég lagði símann frá mér og tók upp vasaklút og þurrkaði mér um lófana og andlitið. Svo að hann var farinn, en hafði hann farið til Santa Barba? Ef hann hafði gert það, gat hann ekki verið kominn þangað fyrr en eftir klukkan tvö. Ég fann skyndilega til ofsalegrar þarfar til að stöðva þetta aUt saman. Það eina, sem ég þurfti að gera var að hringja til Rimu og að- vara hana. t i Hárlakk Just wonderful Hárlakk Shbbh VfRItUNIN^aer <Z^>Í | 'r‘ " SAMEINAR MARGA KOSTi: FAGURT ÚTUT. ORKU. TRAUSTIBKA' RÓMAÐA AKSTURSHÆFNI OG LÁGT VEROi TÉHHNESHA BIFBEIÐAUMBOÐIÐ VOHARSTH*TI K.SÍMI J7SSI TECTYL er ryðvöra. ielL a NÝKOMIÐ Hvítt terylene, slétt og plyseruð, Einnig 5 aðrir litir af sléttu terylene. » Eigum enn 27 krónu SOKKANA Bankastræti 3. 1 A. Verzluiim Snót !J' Yesturgötu 17. % f r* 1 - ) | GRANNARNIR Guð, mamma, hvað þú ert klúr. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 15. maí 1963

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.