Alþýðublaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 3
Gilchrist á í vanda enn DJAKARTA, 21. maí. — Sendi herra Breta á íslandi í „þorska- stríðinn”, Andrew Gilchrist, sem nú er sendiherra í Djakarta, hef- ur orðið fyrir svipnðum aðsúg þar og í sendiráðinu í Reykjavík um árið þegar hann fór með hund sinn á göngutúr og lék sekkja- pípumúsík af hljómlpötum — og ástæðan er ekki ósvipuð. Það var í dag að efnt var til mótmælaaðgerða fyrir utan brezka sendiráðið í Djakarta vegna meintrar skotárásar brezks herskips á indónesískt varðskip í fyrra mánuði. Rauðir fánar voru á lofti og spjöld með kröfum um að brezk- ar eignir yrðu gerðar upptækar. Mörg hundruð flutningaverka- menn stóðu fyrir mótmælaaðgerð 46 ný fiskiskip í ár Um síðustu áramót voiu í smíðum 46 ný fiskiskip íyrir íslendinga, samtals ura 316 milljón króna virði. 3 5 skip voru í smíðum erlendis, þar af 6 í Danmörku. 5 í Svíþjóð, 21 í Noregi og 1 í HoUand'. En 13 skip voru í smíðum innanlambJ Flestir hinna nýju báta verða stærri en áður hefur tiðkazt eða 100-250 lestir Er því hér um að ræða stærri aukningu á fiskiskipaflota okkar íslendinga en tala skipanna £in gefur okk ur til kynna. Vegna hættrar gjaldeyrisstöðu hefur verið unnt að gefa innflutning fiski skipa frjálsan og þarf nú ekki nein leyfi eins og áður fyrir nýjum skipum. Það er því ekki lengur háð nólitiskum leyfis- veitingum hvort þessi eöa hinn fær að kaupa bát, hcldur frjálst öllum og fá allir þá hjálp, sem fiskveiðisjóður veitir sam- kvæmt Iögum. Af framansögðu er ljóst, að í sjávarútvcgsmáía- ráðherratíð Emils Jáissnnar hefur verið mikil gróska í út- vegsmálum. unum, og gerðu þeir ljóst, að mót um sögum. mælunum yrði haldið áfram í stórum stíl ef Bretar hættu ekki meintum hryðjuverkum gegn indó nesískum borgurum í Norður- Bomeó. Auk árásarinnar á varðskipið var því mótmælt, að árás hefði verið gerð á skrifstofu indónes- íska flugfélagsins í Hong Kong. í mótmælaskjali, sem Gilchrist sendiherra var afhent, var þess einnig krafizt, að Bretar bæðu Indónesa fyrirgefningar á hinni meintu sprengjuárás og flugfé- laginu yrðu greiddar skaðabætur. Flutningaverkamennirnir hafa neitað að vinna f. brezk fyrir- tæki, þ. á. m. flugfélög, i um viku tíma. Andrew Gilchrist sendiherra bar til baka staðhæfingarnar um skotárás á indónesískt skip og sagði, að hvorki Bretum né Indó- nesum væri gerður greiði með slík NAT O-fundur Ottawa í dag Neyðarástand í TYRKLANDI WMWWWHMWMWWWWW Takið þátt í kostnaðinum Ankara, 21. maí. (NTB-Reuter). Stjórnin í Tyrklandi lýsti í dag yfir neyðarástandi í Ankara, Ist- anbul og Izmir eftir hina mis- lieppnuðu tilraun til stjórnarbylt- ingar í gærkvöldi. Margir hafa verið handteknir. Cooper sæmdur heiðursmerki Washington, 21. maí. (NTB-Reuter). Geimfarinn Gordon Cooper majór var sæmdur æðsta heiðurs- merki bandarísku geimferðastofn- unarinnar við hátíðlega athöfn í Hvíta húsinu í dag. Að hátíðahöldunum loknum fögnuðu 250 þús. manns geimfar- anum og fjölskyldu hans er þau óku til þingliússins, þar sem geim- farinn sagði frá ferð sinni. Kennedy sagði m. a. að enn væru ónumin lönd ókönnuð og að fyrir 1970 hefðu Bandaríkjamenn sent mann til tunglsins. Bannað er að fara úr landi eða ferðast til landsins meðan neyðar- ástandið gildir. Aðeins ein Luft- hansa-flugvél fær með sérstöku leyfi að fara frá flugvellinum í Ankara á þessum tíma. Öldunga- deildin hefur verið kvödd saman til fundar í kvöld. Neyðarástandið nær sem fyrr seeir +il Izmiro, en þar eru aðal bækistöðvar landhers Suðaustur- Asíubandalagsins. Sjö hermenn biðu bana í bylt- ingartilrauninni misheppnuðu í gærkvöldi, en 23 aðrir særðust. Það voru foringjaefni úr her- skólanum sem reyndu að steypa núverandi stjóm landsins undir forystu hins afdánkaða ofursta Talie Aydemir. Útgöngubann hefur verið sett á í Ankara og Istanbul frá mið- nætti til kl. 5 að morgni (staðar- tími). 23 liðsforingjar munu hafa verið handteknir í Ankara í dag og 50 í Istanbul, þar á meðal nokkrir hershöfðingjar. Hafinn er undirbúningur undir stofnun sérstaks dómstóls, sem á að fjalla um mál hinna handteknu. Búizt er við að nokkrir hinna handteknu verði dæmdir til dauða. KOSTNAÐUR við kosn- ingaundirhúning allan hefur stórlega vaxið. Alþýðuflokk- urinn á nú eins og áður í erfiðleikum með að mæta þessum aukna kostnaði og hefur ekki til annarra að flv.ia f þeim efnum en flokksfólks og velunnara flokksins. Fjáröflunamefnd flokks- ins skorar hér með á alla þá sem stuðla vilja að kosn ingasigri A-Iistans, að leggja fram fé, hver eftir sinni getu. Munið að ekkert fram Iag er svo lítið, að ekki komi að góðum notum. Flokksskriftsofurnar í Alþýðuhúsinu veita þakk- samlega öllum fjárframlög- um móttöku. Fjáröflunarnefndin. Ottawa. (NTB-Reuter). Viðhorf manna fyrir ráðherra fund NATO, sem hefst í Ottawa í dag, virðist almennt vera það, að ekkl skuli láta skoðanaágreining setja svip sinn á viðræðurnar. Á sviði efnahagsmálanna, en þar snúast vandamálin um samskipti EBE og Breta, getur ekkert áunn- izt í svipinn, og sennilega mun EBE-málið lítt bera á góma á fundinum. Varðandi aðalmálið, I samvinnuna á sviði kjamorku- jvama, og kjamorkuvopn hinna einstöku ríkja, hefur málunum þokað eins langt áfram í undir- búningsviðræðum og framast er hægt. Sendinefndir hinna ýmsu landa, en formenn þeirra eru aðallega utanríkis- og landvamaráðherrar, eru mættar í höfuðborg Kanada. í dag hafa ráðherramir haldið marga fundi, svo og sendinefnd- irnar. Keppt á föstu- og laugardag! ★London. (NTB-Reuter). Rússar hafa lagt til í orðsend- ingum til Bandarikjanna og Bret- lands að komið verði á kjaraorku- vopnalausu svæði á Miðjarðarhafs svæðinu. í orðsendingunum er lagt tU, að komið verði á ein- hverri tegund afvopnunar á þessu svæði. FEGURÐARSAMKEPPNIN v.ifS I ur haldin í súlnasal Hótel Sögu dagrana 24.og 25. þ.m. Fyrra kvöldið sem er föstudagskvöld, verður úr- slitakcppnin háð. Þá keppa sex, stúlkur til úrslita. Einnig verða skemmtiatriði þetta kvölil og dansað verður til kl. 1 e.m. Daginn eftir, laugardag, munu stúlkurnar, ef veður leyfir, aka í skrautvögnum um nokkrat götur í Reykjavík. í Hótel Sögu fara svo Vokaúrrl^ Fam um kvöldið og krýningar. Skemtiatriði verða og dinsað til kl. 2 e.m. Ilíjómsveit Svavars Gests mun leika. Sjónvarp að verður frá keppninni. Verðlaunin verða margvíslegar utanferðir og þátttaka í fegurðar keppnum erlendis, ásamt kjóium ferðalögum o.fl. Týndir enn! EKKERT hefur enn spurzt til ungu mannanna tveggja, sem horfnir eru. Er búlð að leita mjög gaumgæfilega alls staðar þar sem trillan ætti að geta verið og er tal- ið fullvíst, að hún sé ekki lengur ofansjávar. í gær- morgun flaug Örn Ingólfs- son flugmaður á lítilli flug- vél um leitarsvæðið, en varð einskis var. í nótt leitaði flokkur manna frá Mjólkur- stöðinni, en þar vann Jón Björnsson. Leit þeirra var | einnig árangurslaus. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. maí 1963 ;3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.