Alþýðublaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 22.05.1963, Blaðsíða 15
/ • / „Ég er yfir þessari rannsókn". Kann teygði úr löngum og sver um fótunum. „Ég sé ekki neina ástæðu til að koma náunga í klándur, þó að hann fari á kvennafar.“ Feitt andlitið á hon um var skyndilega farið að brosa: það var þó líkara glotti en brosi. „Ég vildi ganga úr skugga um, að þér hefðuð ekki komið neitt nálægt dauða henn ar, og ég er viss um það“. Bros- glottið breikkaði. „Þér getið prís að yður sælan fyrir, að ég er að láta af störfum í mánaðarlokin. Það gæti verið, að ég væri ekki svona mjúkur á manninn, ef ég væri ekki um það bil að setjast í helgan stein. Þér múnduð kannski eklci halda það af því að horfa á mig, en ég er að verða sextugur, og þá er tími til kom inn fyrir mann að láta af störf um“. Það var eitthvað við hann, sem mér geðjaðist ekki að. Ég gat ekki gert mér grein fyrir því, hvað það var, en ég tortryggði hann. Skyndilega virtist hann ekki lengur vera lögreglumaður. Hann var maður, sem hafði lok ið verki sínu og var nú í loft- tómu rúmi. Ég hataði að hafa hann í íbúðinni. „Nei, ég mundi ekki hafa trú að því, lögregluforingi“, sagði ég. „Jæja, þakka yður íyrir.“ ' „Við beitum dómgreind okkar í fjárkúgunarmálum". Hann glotti aftur. „Það er mikið um þau. Náungar, sem gera sig að bölvuðum ösnum með einhverri hóru og lenda ^vo í klandri. Þér voruð heppinn, herra Hálliday, að Mandon stakk upp í hana.“ „Iiún var fjárkúgari", sagði ég. „Hvert sem er af fórnarlömb um hennar hefði getað drepið liana. Hafið þér hugsað út í það?“ „Mandon drap hana. Það er enginn efi á því“. Ég var að því kominn að segja honum frá Wilbur, en ég gerði það ekki. Ef ég blándaði Wilbur í þetta, hlyti sagan um ránið í kvikmyndaverinu og morðið á varðmanninum að koma í ljós, og þá væri úti um mig. „Jæja, þakka yður aftur, for- ingi.“ Hann stóð á fætur. „Það er állt í lagi, herra Halli day. Þér heyrið ekki neitt rneira um þetta“. Hann leit á /nig, hálít bros og hálft glott á andlitinu. „En auðvitað, ef þér eruð svona þakklátur, þá gæti verið allt i í'álkiun á nuvvrii Iilnðsiilu stail lagi að gefa smápening í íþrótta- sjóð lögreglunnar: datt það bara í hug, herra Halliday, ekki einu sinni uppástunga.“ Ég starði á hann. „Já, já, auðvitað“. Ég tók-upp veskið. „Hverju munduð þér stinga upp á lögregluforingi?" „Hvað sem þér viljið“. Litlu augun voru skyndilega orðin gráðug. „Hvað um hundrað doll ara?“ Ég fékk honum tuttugu og fimm dollara seðla. „Ég skal senda yður kvittun. Strákamir munu sannarlega kunna að meta þetta.“ Seðlamir hurfu niður í sasa hans. „Takk, herra Halliday.“ Svo vitlaus var ég ekki. „Þér þurfið ekki að senda mér kvittun. Ég vildi helzt ekki fá hana.“ Brosglottið breikkaði. „Alveg eins og þér viljið, herra Halliday. Jæja, allt í lagi — tákk.“ Ég horfði á eftir honum fara. Ég hafði verið heppinn, næst- um of heppinn. En hvað, ef þeir næðu Vas- ari? NÍUNDI KAFLI I. Síðdegis næsta dag, er ég var að vinnu í skrifstofunni kom Klara inn til mín og sagði, að herra Terrell væri að spyrja eft- ir mér. Augnablik eða syo kom ég nafniriu ekki fyrir mig, svo mundi ég, að hann var eigandi hússins á Simeonhæð, sem Sar- itu hafði langað svo mjög í, og það virtist hafa verið langt í fortíðinni. Ég ýtti pappímum á skrif- borðinu til hliðar og sagði Klöru að vísa honum inn. Terrell var maður um sextíu og þriggja eða fjögurra ára að aldri, feitlaginn og glaðlegur: Hann leit út eins og góðviljað- ur og velrauður biskup. f „Herra Halliday”, sagði hann um leið og við heilsuðumst, „ég heyrði, að Sarita mundi koma af spítalanum í næstu viku. Ég er hér með tillögu, sem þér kynnuð að hafa á- huga á”. Ég bauð honum sæti. „Hvaða tillaga er það, herra Terrell?" „Það varð ekkert úr sölunni á húsinu mínu. Kaupandinn hefur fundið eitthvað nær Vinnustað sínum. Við Jijóhin ætluðum til Miami í lok vikunnar. Ég veit, að Sarita vildi ólm eign- ast það. Ég ætla að stinga upp á, að þið takið við því, eins og það stendur, fyrir málamynda leigu: til dæmis tuttugu dollara á viku, þar til hún frískast. Svo, ef ykk- ur geðjast að því, þá gætuð þið kannski tekið það aftur til at- hugunar að kaupa það, en það er undir ykkur komið. Okkur konu minni geðjast mjög vel að Sar- itu, og við teljum, að það mundi veita henni mikla ánægju að fara þangað beint af spítalanum. Hvað segið þér?” Augnablik gat ég ekki trúað mínum eigln augum, síðan stökk ég á fætur og þreif í höndina á honum. „Þetta er dásamleg hugmynd! Ég get ekki nógsamlega þakkað yður! Auðvitað tek ég þessu! En nú skal ég segja yður, hvað ég vil gera. Ég skrifa nú þegar á- vísun upp á tíu þúsund dollara, og um leið og ég er búinn að losa mig við þessa uppskurði og læknareikninga, skal ég greiða afganginn. Það er frágengið!” -Og þannig komum við því fyrir. Ég sagði Saritu ekki frá því. Mig langaði til a ðsiá svipinn á henni, þegar siúkrabíllinn stanz- aði úti fyrir liúsi Terrells. Helen Mathison hjálpaði mér við að koma persónulegum mun- um okkar í nýja hú'sið. Við höfð- um sex heila daga til að útbúa liúsið, áður en Sarita útskrifað- ist af heilsuhælinu. Ég vann langan vinnudag á skrifstofunni, eyddi kvöldunum í nýja húsinu en þó að ég hefði svo mikið að gera datt mér alltaf við og við í hug Ed Vasari og hugsaði margt. Á hverjum morgni leit ég yfir blöðin til að ganga úr skugga um, að hann hefði ekki náðst, en það virtist enginn áhugi vera á morð- inu. Síðustu dagana hafði ekki verið minnzt á það í blöðunum. Loks rann upp dagurinn, er Sarita átti að fara af hælinu. Ég tók mér frí siðdegis. Helen ók mér þangað út eftir og skildi mig eftir. Ég ætlaði að sitja i sjúkra- bílnum hjá Saritu. Hún var borin út á sjúkrabör- um. Hjúkrunarkonan, sem ætl- aði að verða hjá okkur, kom með henni. Sarita brosti áköf til mín um leið og börunum var rennt inn í sjúkrabílinn. Hjúkrunarkonan og ekillinn sátu fram í og ég settist hjá henni „Jæja, þá er það búið!” sagði ég, þegar sjúkrabillinn ók af stað og ég tók í höndina á henni. „Það verður allt í lagi með þig upp frá þessu, elskan. Þú veizt ■ hve ég hef hlakkað til að fara . með þig heim”. „Ég verð fljótlega komln á stjá aftur, Jeff”, sagði hún og , þrýsti hönd mína. „Ég skal gera , þig hamingjusaman aftur”. Húa ésiöfrp) Fer Yel með hendurnar, ilmar þægilega ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. maí 1963 15

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.