Alþýðublaðið - 28.05.1963, Blaðsíða 3
Moro reynir mynd-
un Ítalíustiórnar
Róm, 27. maí
(NTB —Reuter)
Forsætisráðherraefnið Aldo Moro
átti í dagr í nokkrum pólitískum
ALDO MORO
samningaumleitunum. Moro reynir
myndun nýrrar vinstri stjórnar á
Ítalíu.
Moro, sem er 46 ára gamall og
úr Kristilega demókrataflokknum,
ræddi við foringja þeirra tveggja
flokka, sem standa að samsteypu-
stjórninni ásamt Kristilega demó-
ki'ataflokknum, Giuseppe Saragat
TECTYL
er ryðvöm.
«'////
S^OáJ^L
Einangrunargler
Framleitt emungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega
Korkiðjan h.f.
Skúlaeötn f>7
Sími 23200.
Siguroeir Sigurjónsson
hae ■ "''‘ttqrlögmaður
Má' inesskrifstofa
Óíinsirnti) 4 Síml 11043.
úr Jafnaðarmannaflokknum og
Oronzo Reale úr Lýðveldisflokkn-
um.
Seinna ræddi Moro einnig við
foringja sósíalista, Pietro Nenni.
Hann þarf á stuðningi Nenni-sósi-
alista að halda, ef hann á að geta
fengið meirihlutastuðning á þingi.
Stjórn Fanfanis sagði af sér
fyrir 11 dögum vegna úrslita
kosninganna 28. apríl.
Pietro Nenni sagði eftir sam-
ræðúrnar við Moro í dag, að verk-
efni Moros væri síður en svo auð-
velt.
Fréttamenn í Róm segja, að erf-
iðasta verkefnið verði viðræðumar
við sósíalista.
Kenyatta sig-
urstranglegur
Nairobi, 27. maí
(NTB Reuter)
AÐALRITARI Þjóðernis-
flokks Afríkumanna í Kenya
(KANU)), Tom Mboya, kynnti
í dag Jomo Kenyatta fyrir
-miklum mannfjölda, sem
næsta forsætisráðherra Ke-
nya. Þegar kosningatölurnar
tóku að streyma inn virtist
örug’gara að Mboya mundi
reynast sannspár. Kynningin
átti sér stað fyrir utan kjör-
stað nokkurn.
Samkvæmt úrslitum þeim,
sem voru kunn síðdegis í dag,
hafði flokkur Kenyatta tryggt
sér 31 þingsæti, Lýðræðis-
sambandið (KADU) 16, Þjóð
■ arflokkurinn 4 og óháðir 4.
Kosið er um 94 sæti af 117 á
þjóðþinginu.
MHMMMMMMMUMIMMMMI
SKOMMU eftir hádegi á
sunnudag varð hörmulegt
slys við Múla á Suðurlands-
braut. Maður á hesti varð
þar fyrir jeppabifreið með
þeim afleiðingum, að aflífa
varð hestinn, en maðurinn
fótbrotnaði og hlant fleiri
meiðsli. Hesturinn mun
skyndilega hafa hlaupið iun
á veginn í veg fyrir bílintt,
og varð áreksturmn mjög
harður eins og sjá má á neðri
myndinni. Efri myndin er af
bílnum og hestinum. Hestur-
inn meiddist hörmulega
mikið, m. a. brotnuðu þrir
fætur hans og höfuðið var
allt sundur skorið. Þetta er
enn ein áminning til þeirra,
sem hafa skepnuhald í bæj-
arlandinu.
HRAUNPRÝÐI
SLYSAVARNADEILDIN Hraun-
prýði hafði sinn almenna fjáröfl-
unardag 10. maí síðastliðinn,
sem gekk með afbrigðum vel. Bæj-
arbúar sýndu, sem ætíð áður vel-
vilja sinn til slysavamastarfsem-
innar og hafa tekjur dagsins aldr-
ei verið eins miklar og í þetta sinn.
Þá bárust deildifini góðar gjafir.
Skipverjar á Ms. Arnamesinu
sendu 2 þús. kr. með beztu óskum,
Hraunprýði til handa. K«. Eyjólf-
ur Eyfells listmálari og frú hans
afhentu deildinni að gjöf fallegt
málverk af Hellisgerði. Lét Eyj-
ólfur þess getið að málverkið væri
gefið í tilefni af því að um þessar
mundir voru liðin 55 ár síðan hon-
um var bjargað úr sjávarhóska út
af Loftstaðaströndum.
Sagðist hann hafa valið þessa
mynd vegna þess að Ingvar heit-
inn Gunnarsson hefði verið mikill
vinur sinn og verk Ingvars í Hell-
isgerði bæru ótvírætt vitni um
elju hans við að prýða hraunið.
Frú Jensína Egilsdóttir færðu
deildinni fagra blómakörfu, sem
skreytt var á mjög táknrænan
hátt.
Eins og undanfarin ár gaf bæj-
arbíó ágóða af níu sýningu þenn-
an dag. Einnig voru mörg fýrir-
tæki í bænum, sem greiddu mjög
rausnarlega fyrir kaffi vinnufólks-
ins. Allar þessar höfðinglegu gjaf-
ir þakkar Hraunprýði innilega og
sendir bæjarbúum öllum sinar
beztu þakkir fyrir mikinn stuðn-
ing og vinarhug og ámar þeim
allra heilla og blessunar.
Sjómaöurinn
Framh. af l. sfðu
ferðis blóðvatn og súrefnistæki.
Nokkru eftir að vélin var lögð af
stað hætti hjarta mannsins að
slá í annað sinn. Enn tókst læknin-
um að lífga William við, em
skömmu seinna hætti hjartað að
slá í þriðja sinn en þá tókst ekki
að lífgá manninn við aftur. Björn
hélt ferð sinni áfram tU Reykja-
víkur. Lík WUliam Loran rerður
sent til Englands í dag eða á
morgun.
Togarinn, sem kom með marni-
inn til Neskaupstaðar, heitir Saint
St. Chad. Yfirlæknirinn á sjúkra-
húsinu heitir Jón Árnason.
Kvörtun frá Ala- I athugasemd vegna
bama visað á bug
Washington, 27. maí
(NTB—Reuter)
IIÆSTIRÉTTUR Bandaríkjanna
vísaði í dag á bug kæru frá ríkis-
stjóranum í Alabama, George
Wallase, þess efnis, að Kennedy
forseti hefði brotið stjórnarskrána
þegar hann sendi sambandsher-
sveitir tU ríkisins Alabama í sam-
bandi við kynþáttaóeirðirnar þar.
Wallace ríkisstjóri fór þess á
leit við réttinn, að hann gæfi þann
úrskurð, að forsetinn hefði ekki
haft rétt til að fela sambandsher-
sveitunum að halda uppi lögum og
reglu í Birmingham, Alabama.
Úrskurður Hæstaréttar var
stuttur. Hann var á þá leið, að
rétturinn hefði vísað á bug tilmæl-
um ríkisstjórans um að leggja
fram kæru.
Hæstiréttur kvað einnig í dag
upp úrskurð þess efnis, að þegar
í stað verði að binda enda á kyn-
þáttaaðskilnað í almenningsgörð-
um og útileikvöngum, m. a. í bæn
um Memphis í Tennessee.
FRÉTTAR ITIMANUM
VINSAMLEGA birtið eftirfarandi athugascmd.
í forsíðugrein í dagblaðinu Tíinanum s. 1. sunnudag,
undir fyrirsögninni „Bretar Viija nú komast inn í fiskiðaoð-
inn okkar“ segir m. a.:
„Brezkir fisksöluhringar hafa Iengi haft áhuga á að kom
ast inn í fiskiönað á íslandi og eins og kunnugt er hefur
Ross auðhringnum þegar tekist að teygja anga sína hing-
að með fyrirtækinu Atlantor h.f.’-
Hér er um algera missögn að ræða. Atlantor h.f. selur
verulegt magn af frystum fiski til Ross. Hins vegar á Ross
ekkert í Atlantor h.f., sem er algerlega íslenzkt fyrirtæki.
Atlantor h.f. er jafn óháð Ross eins og öðrum viðskipta-
vinum sínum í hinum ýmsu löndum.
Með þökk fyrir birtinguna.
f. h. ATLANTOR H.F.
Magnús Z. Sigurðsson.
tMMHMMMtMttHMtHHMtMMtMMMtMWUMtMMMtMIMM
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 28. maí 1963 3