Alþýðublaðið - 28.05.1963, Blaðsíða 11
YFIRLÝSING FRÁ
FRJÁLSÍÞRÖTTADEILD ÍR
í TILEFNI af fréttatilkynningu
Frjálsíþróttadeildar KR um fyrir-
hugaða keppni KR gegn úrvali úr
öllum öðrum íþróttaféiögum lands
ins, sem birtist í blöðum og útvarpi
á uppstigningardag, leyfir stjóm
Frjálsíþróttadeildar ÍR sér að taka
fram eftirfarandi:
1. Frjálsíþróttadeild ÍR er
mótfallin keppni í þessu formi.
2. Þegar um keppni tveggja
aðila er að ræða, finnst stjóm
Frjálsíþróttadeildar ÍR nauðsyn-
legt að keppnisaðilar ræði fyrir-
komulag slíkrar keppni, þó svo að
hægt væri að komast að samkomu
lagi um einhverskonar stigakeppni,
annaðhvort milli eins félaga og úr-
vals úr öðrum, eða keppni tveggja
félaga, telur stjó’-p Fri'álsíþrótta-
deildar ÍR, að dagamir 12. —13.
júní séu mjög óheppilegir. Frjáls-
HWMWWMWWWIWWWW
3 heimsmet
Á MÓTI í Bandaríkj. um
helgina voru sett þr jú heims
met í frjálsíþróttum. Stern
berg stökk 5,05 m. á stöng.
Gamla metið átti Pennel, —
5,04 m. Plummer hljóp 440
yds á 44,9 sek. og loks setti
boðhlaupssveit heimsmet í
2ja mílna boðhlaupi, hljóp á
7.18,9 mín.
íþróttamót út á landi fara yfirleitt
ekki fram fyrir 17. júni og því er
Útilokað að velja lið nú, ef miða
Skal við afrek á þessu ári, en telja
verður vafasamt að velja menn í
keppnislið, ef valið er eftir afreka
skrá ársins á undan.
3. Frjálsíþróttadeild ÍR hef-
ur nú sem hingað til áhuga á
stigakeppni milli KR og ÍR í frjáls-
um íþróttum, enda hafa forystu-
menn félaganna rætt um siíka
keppni í vor.
Með þökk fyrir birtinguna.
Frjálsíþróttadeild ÍR
VALUR VANN
KR 3:0
FIMMTI leikur íslandsmótsins I
knattspyrnu fór fram á Laugar-
dalsvellinum í gærkvöldí og átt-
ust við Valur og Kív. — Valur
vann með þremur mörkum gegn
engu. í hálfleik var staðan 1:0
Fram
Framh. af 10 síðu
í leikbyrjun eða svo, fengu
Keflvíkingar aukaspyrnu ú víta-
teigslínu Fram, spyrnan var var-
in en rétt á eftir tókst þeim skyndi-
lega að skapa sér vígstöðu á ný'
og skora, en markið var dæmt, sett
úr rangstöðu. Eins var það á síð-
ustu sekúndum leiksins, að Fram
átti skyndilega fast skot að marki
en meðan boltinn var á leiðinni
flautaði dómarinn af, en snöttur-
inn hafnaði viðstöðu’aust í netinu
Var þetta eiginiega einasta glæsi-
lega skot Fram í leikuum, en pað
fór forgörðum vegna tímaþreng-
ingar:
Haukur Óskarsson. dæmdi leik-
inn af kostgæfni. — E.B.
Davíð sigraöi
GuÖmund
í GÆRKVÖLDI fór fram 1500 m.
skíðisund íslandsmótsins. ÚrsUt(
urðu þau, að Davíð Valgarðsson,
ÍBK varð íslandsmeistari, synfci á
19:50,3 mín., sem er glæsiiegt
drengjamet og næstbezti tími Is-
lendings frá upphafi. Annar varð
Guðmundur Gíslason, ÍR á 20:13,
0 mín.
Þá fór einnig fram úrslitsleik-
ur Sundkn:<ttleik,smóts íslands.
Ármann sigraði KR með 7:1 og
varð íslandsmeistari.
SKIPAUTG€RB RIKISIN
M. s. Esja
austur um land í hringferð 4.
júní.
Vörumóttaka í dag til Fáskrúðs
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarð
ar, Norðfjarðar og Seyðisfjarðar.
Farseðlar seldir á föstudag.
Áðalskoðun bifreiða í
Gullbringusýslu sunnan Hafnarfjarðar
Aðalskoðun bifréiða í Gullbringusýslu sunnan Hafnar-
fjarðar fer fram sem hér segir:
Gerðahreppur:
Þriðjudaginn 28. mai
Miðvikudaginn 29. maí
Skoðunin fer fram við barnaskólann í Gerðum.
Miðneshreppur.
Fimmtudaginn 30. maí
Föstudaginn 31. maí
Skoðunin fer fram við barnaskólann í Sandgerði.
Njarðvíkurhreppur og Hafnarhreppur:
Þriðjudaginn 4. júní
Miðvikudaginn 5. júní
Fimmtudaginn 6. júní
Skoðunin fer fram við samkomuhús Njarðvíkurhr.
(Krossinum).
Vatnslej’sustrandarhreppur:
, Föstudaginn 7. júní við frystihúsið.
Grindavíkurhreppur:
Mánudaginn 10. júní
Þriðjudaginn 11. júní
Skoðunin fer fram við barnaskólann í Grindavík.
Bifreiðaskoðunin fer fram ofangreinda daga frá kl. 9'
—12 og 13 — 16.30.
Við skoðun ber að greiða bifreiðaskatt og sýna skilríki fyr-
ir því að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi
og fullgild ökuskírteini skulu lögð fram.
Vanræksla á að færa bifreið til skoðunar á áður auglýst-
um tíma varða ábyrgð skv. umferðarlögum nr. 26 1958 og
verður bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst.
Geti bifreiðaeigandi eða umráðamaður bifreiðar ekki fær$ v
hana til skoðunar á áður auglýstum tíma, ber honum að
tilkynna það bréflega.
aDsi
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 28. maí 1963 H
Eigendur reiðhjóla með hjálparvél eru sérstaklega áminnt-
ir um að færa reiðhjól sín til skoðunar.
Þetta tilkynnist hér með öllum, sem hlut eiga að máli.
Skoðun bifreiða annars staðar í umræminu verður aug-
lýst síðar.
Lögreglustjórinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 24/5 1963.
BJÖRN SVEINBJÖRNSSON.
settur.
Auglýsrngasíminn eT 149 06
B>deild Skeifunnar selur í dag
og á morgun, lítið gölluð eldhús-
borð og stóla með miklum
afslætti.
B - deild Skeifunnar
Kjörgarði. Sími 16975.
Athygli er vakin á því að umdæmismerki bifreiða skulu
vera vel læsileg og er því þeim, er þurfa að endurnýja
númeraspjöld bifreiða sinna ráðlagt að gera svo nú þegar.
Þeir sem hafa útvarpsviðtæki í bifreiðum sínum skulu víð
skoðun sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda.