Alþýðublaðið - 28.05.1963, Side 4

Alþýðublaðið - 28.05.1963, Side 4
 FRAMBJÖÐANOI í T ALBANNI EINKENNILEGASTA fyrirbæri kosningabar- áttunnar að þessu sinni er tvímælalaust meðferð kommúnista á Bergi Sigurbjörnssyni. Hann fær ekki að láta til sín heyra á fundum Alþýðubanda- lagsins — er í talbanni. Samt skipar Bergur f jórða sætið á framboðslista Alþýðubandalagsins í Reykjávík, en kommúnistar kunna ekki að meta hann betur en þetta. Til er fræg þjóðsaga um óhreinu börnin hennar Evu. Bergur er ó- hreina barnið á lista Alþýðubandalagsins. Ástæðan er vitaskuld sú, að Bergur á aðeins að vera ginningarfáni í kosningabaráttunni. En Kommúnistunum í Alþýðubandalaginu fannst ó- sköp lítið til um valið. Þeir munu aldrei hafa samþykkt framboð Bergs, en settu nafn hans á listann með því skilyrði, að hann steinþegði og hefðist ekki að. Og þetta er illmannleg fyrir- litning af hálfu kommúnista, þvl að Bergur er jafnan fús að tala og Iáta til sín taka I von um mannvirðingar. Slysahættan. KOMMUNISTAR óttast þrennt af hálfu Bergs, ef hann kemst í ræðustól fyrir kosningarnar: 1) Hann er vís með að valda þvi slysi að reyna að hafa brot af sjálfstæðri skoðun um eitt- hvert atriði, sem kæmi kommúnistum illa. 2) Hann kynni að ávarpa gamla þjóðvarnar- menn, en þar með væri vonin um stuðning sér- livers þeirra við Alþýðubandalagið fokin út í veður og vind. 3) Óbreyttir liðsmenn kommúnista eru svo andvígir Bergi í fjórða sæli listans, að þeir væru vísir með að hrópa hann niður á opinberum fundi. Vegna þessa hafa Brynjólfur Bjarnason og Kristinn E. Andrésson sett Berg Sigurbjömsson I talbann. Hins vegar sætta þeir sig ágætlega við ræðuhöld Gils Guðmundssonar. Þeim dettur ekki I hug, að hann valdi neinu því slysi, sem hent gæti Berg. Þetta er líkast rússneska heila- þvottinum. En Bergur sleppur við þá meðferð. Kommúnistum finnst ekki taka því að fara höndum um höfúðið á honum. Laun svikanna. brölti Bergs Sigurbjörnssonar við kommúnista. En sjálfsagt fylgist hann með því I talbanninu, að þjóðvarnaratkvæðin, sem verzla átti með, koma alls ekki I leitirnar. Tíu fyrrverandi stjórn- endur Þjóðvarnarflokksins hafa opinberlega for- dæmt þá ráðabreytni Gils og Bergs að gerast handbendi kommúnista. Flokksfélag þjóðvarn- armanna I kjördæmi Gils hefur sagt skilið við hann. Vistin hjá kommúnistum þykir dálítið ann- að en nýja siðgæðið, sem þjóðvamarmenn vildu og þráðu, meðan flokkur þeirra var og hét. Og nú finnst gömlum þjóðvarnarmönnum táknrænt, að Bergur skuli orðinn pólitískur fangi komm- únlsta fyrir kosningar. Laun svikanna láta ekki á sér standa. Nýlega gerðist sá atburður, að kommúnisti og fyrrverandi þjóðvarnarmaður hittust á föm- um vegi og tóku tal saman. Þjóðvarnarmaðurinn spurði kommúnistann, hvort ekki ætti að leggja mikla áherzlu á það í kosningahríðinni, að Bergur Sigurbjömsson skipaði baráttusæti Al- þýðubandalagsins í Reykjavík. Kommúnistanum brá í brún, en sagði svo: Blessaður talaðu var- lega — þetta má enginn heyra nefnt! Þá svar- aði þjóðvarnarmaðurinn: Mér liggur þetta auð- vitað I léttu rúmi, bví að ekki kýs ég ykkur. Heilindin. MINNING GUÐRÚN GEORGSDÓTTIR ÞESSI ER ÞÁ árangurinn af samfylkingar- ÞJOÐVARNARFLOKKURINN saknaði iðu- lega heilinda í íslenzkum stjórnmálum, þegar málsvarar hans sögðu gömlu flokkunum svoköll- uðu til syndanna. Nú hafa Gils og Bergur reynt heilindi kommúnista. Gils er sendur út um bæi og sveitir eins og hlýðinn og þjálfaður rúss- neskur geimfari, en Bergur situr í pólitískri fangabúð og sést ekki eða heyrist. Þessi urðu þá endalok Þjóðvamarflokksins, því að hann er vitaskuld úr sögunni fyrir atbeina þeirra tví- menninganna. Forlög hans urðu hin sömu og Alfinns álfakóngs, sem féll í hendur óvin- anna fyrir klaufaskap sinna eigin þegna. Munurinn er hins vegar sá, að það var ekki Þjóðvarnarflokkurinn, sem féll í hendur komm- únista — heldur bara Gils Guðmundsson og Bergur Sigurbjömsson. Hlutverk þeirra í kosn- ingabaráttunni er sama ólánið og hennti Al- finn. HERJÓLFUR. HVERFISSTJORAFUNDIR I KVOLD Allir hverfisstjórar Alþýðuflokksinsí Reykjavík eiga að mæta á um- dæmisskrifstofum sínum í kvöld, þriðjudag, kl. 8. Nauðsynlegt er að hverfisstjórar mæti vel og stundvíslega. SJÁLFBOÐALIÐAR. — A-listann í Reykjavík vantar mikinn fjölda sjálfboðaliða á kjördag. Þeir sem vildu sinna slíkum störfum eru heðnir að gera aðvart hið fyrsta í síma 15020, 16724, 19570 eða á umdæmis- skrifstofurnar, BÍLAR. — Þeir híleigendur, sem myndu vilja aka fyrir A-listann á kjördag, eru beðnir að gera aðvart hið fyrsta í síma 15020, 16724, 19570. Guðrún Georgsdóttir andaðist í sjúkrahúsi Hvítabandsins 21. apríl, I og var útför hennar gerð fáum j dögum síðar. Sú von hrást, að ! henni efldist þróttur með nýjú vori og hækkantíi söl. Mein heuaar reyndist banvænt. ■ Guðrún heitin var Snæfelling- ! ur að uppruna, fæddist í Ólafsvík 26. júlí 1908 og ólst upp þar vestra, en foreldrar tiennar voru Jónína Jónsdóttir og Georg Jón- asson. Ung lagði svo Guðrún leið sína hingað til Reykjavíkur i at- vinnuleit ásamt systur sinm, og hér var henni síðan ætlað að lifa og starfa. Hún giftiit 11. janúar 1930 Þörarni Vilhjálmssyni. sem þá var sjómaður á vegum land- helgisgæzlunnar, en ntfur nú um langt skeið verið verkamaður hjá Slippfélaginu í Reykjavík. Bjuggu- þau á ýmsum stöðum í bænum, en lengst að Lokastig 28A, og all- mörg síðustu árin að Hlíðargerði 16 í Sogamýri. Guðrún og Þórannn eignuðust sjö börn, og eru þau þessi: Guðmunda Þóranua, sem er heima 1 föðurgarði; Þórður Guð- jón, sjómaður í Reykja/ík: Guðný Jónína, húsfreyja á Hellissandi; Jó- hanna Margrét, húsfreyja í Svefr,- eyjum á. Breiðafirði; Guðríi.a Val- ný, húsfreyja í Reykjavík, Elín Val- dís, húsfreyja í Reykjavfs, og Jón- as, sjómaður til heimilis hjá föð- ur sínum. Einnig ólu þau upp dótturson sinn, Jón Þóri Gunnar. Ómegð þeirra hjóna var þann- ig mikil og auðvitað oft hait í ári, .sér í lagi á dögum atvinnuleysis- |ins og kreppunnar, ei: Guðrún og Þórarinn gerðust einctaklega samhent í Iifsbaráttunni og dugn- aður þeirra hlaut að teljast frá- jbær. Ég kynntist þeim og heimili þeirra á öndverðum stríðsárunum. Þá var gott og gaman aö koma að Lokastíg 28A, og ekki reyndist minna um vert að heiiusækja þau í Hlíðargerði 16. Nú er húsfreyjan þar horfin sjónum, en eftjr iifir ; minning ísienzkrar atorkukonu, sem alltaí bnuð erfiðleikura byrg- :inn og aldtei missti kjarkinn. I Guðrún Georgsdóttir var atgerv- jiskona, fríð -ýnum, djatfleg 1 fasi og framgöngu og mikili vinnufork- ’ur, meðan hún naut neilso. Illutu allir að undrast umsyií hennar, enda bar heimilið myndarskap hús- freyjunnar órækt vitni. Guðrún var um margt athyglisverð kona og minnisstæð. Hún var ómyrk í máli og kvað iðulega fast að orði sagði hiklaust skoðun sina, hver sem á heyrði eða hlut átti að máii. og lét sér aldrei detta í hug að una ofríki eða ranglæd. Víst þótti hún stórlynd og kannski einþykk, ef henni hljóp kapp í kiuti, en hún var líka hreinskíptin og mikill vinur vina sinna. Guðrún var glað- lynd í skapi, forvitin um menn og málefni og svo mælsk, að henni j varð naumast orðs vant í frásögn eða samræðu. Og sannariega var hjartað heitt og höndin öriát, ef hugga þurfti eða hjálpa cggja eða styrkja. Ég veit ekki, hvort mátti sín meira í fari hennar, atgervið eða hjartalagið, en mér fannst mik- ið til um hvort tveggja. Guðrún var í stuttu máli sagt ágæt kona. Nú virtist frægur sigur unninn, börnin uppkomin, lífsbaráttan orð- in sæmilega auðveld og góð fram- tíð í vændum. En Guðrúnu var ekki ætlað að njóta þessa. Allt í •••*+■*—einu kenndi liún meins. og bala- vonin brást. Astvinir hennar og kunningjar gerðu ser í hugarlund að úr myndi rætast, þegar nýtt sumar kæmi til sögunnar en slík óskhyggja reyndist fányt. Þrek Guðrúnar og Iífsgleði dvínaði smám saman, unz henni veittist líkn dauðans. Þar með er lokið enn einni hetjusögu í.-rlenzkra al- þýðukvenna. Guðrún Georgsdóttir var svipmikill fulltrúi þeirra, Þungur harmur er kveðinn að manni hennar og börnum, og hóp- ur ættingja og vina drúpir höíði á kveðjustund, en samt finnst mér táknrænt, að ævi þessarar eftir- minnilegu konu skyldi ljúka á þennan hátt. Guðrún neitm var þannig skapi farin og sliku þreki gædd, að henni hæfði mun betur að brotna en bogna. Helgi Sæmundsson Kveðja írá ást- vmum Hér þá lífsins lciðir skilja, lítum við um gengin spor. Eiginkona og elskuð móðir, okkur flutti sól og vor* Hetja sönn í stóru starfi stóðstu rík af mildi og ást. Hugljúf gafst til heilia öðrum hjartans auð, sem hvergi brást. Eiginkona ástrík varstu, ætíð sönn í gleði og' þraut. Samleið okkar sólskinsdagur, sókn á bjaríri gæfubraut. Móðurhönd og hjartað heita hópinn stóra leiddi sinn fram til þroska, í fóniura öllum fegurst sýndir kærleik þinn. Ömmubörnin elsku þinni aldrei munu gleyma hér. Ótal fagrar unaðsstundir áttum við í faðmi þér. Ástvinirnir allir þökkum allt hið liðna á kveðjustund. Trúin vennir viðkvæm lijörtu, vonin björt um endurfund. 28. maí 1963 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.