Alþýðublaðið - 28.05.1963, Side 10
r
**
pa «b ■>' ■
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
Akrones sigrabi
Akureyri í skemmti-
legum leik 3 gegn I
A AKRANESI léku ÍA og ÍBA.
Enn reyndust heimamenn þungir
f skauti heimsækjendum. Aftur
féllu bæði stigin í skaut Akurnes-
ingum, sem segja má að sigruðu
glæsilega, eftir fjörugan og el.ki
mjög ójafnan leik, þrátt fyrir úr-
slitin. Einkum þó fyrri hálfleikur-
inn, en þá tókst Akureyringum að
halda allvel cil jafns við Akurnes-
ingana, og það svo að þeim hluta
leiksing lauk án þess að mark
ræri skorað. Að svo fór, geta norð-
anmenn fyrst og íremst þakkað
hinum bráðsnjalla markverði sín-
um, Einari Helgasyni, sem sýndi
yfirleitt öruggan leik j markinu,
en þó hvað beztan er mest á reið,
en.það var er Ajíurnesingar fengu,
sér tildæmda vítaspyrnu snemma
í hálfleiknum, og Ríkharður fram
kvæmdi með firnaföstu skoti, en
Einar varði af miklum fræknleik.
í' síðari hálfleiknum tók hins
vegar brátt að halla á þá norðan-
menn og hlóðust á þá þrjú mörk
hvert af öðru án þess að þeir
fengju rönd við reist. Fyrstur skor
aði Ingvar Elíasson, þá Skúli Há-
konarson og loks Ríkharður Jons-
son. Máttu svo norðanmenn við una
3:0 þar til aðeins tvær mínvitur
voru eftir af leiknum er Skúla
Ágústssyni tókst að rétta erlítið
við hlut þeirra, með því að senda
knöttinn í netið með góðu skoti.
Dómari í leiknum var Jörundur
Þorsteinsson.
Eins og er eru Fram og ÍA í for-
ystu mótsins með tvo sigra bvort
og fjögur stig, munurinn er aðeins
sá að Akurnesingar hafa orðið að
vinna fyrir sínum mörkum og sigr
um sjálfir, en Fram hefur í bæði
skiptin fengið sinn hlut afhentan
af viðkomandi mótherjum borinn
fram á silfurbakka sjálfsmarkanna.
mWMMWWWMWWMWW
|ÞESSI mynd er tekin í ensku
[ knattspyrnunni leik Liver-
í pool og Tottenham. Það er
ÍDyson, sem er að skjóta, en
iboltinn fór fram hjá. Totten-
jham vann samt leikinn með
17-2.
Keflvíkingar sækja að marki Fr am, en Geir tekst aö verja.
ENN SIGRAÐIFRAM
- NÚ KEFLAVÍK 1:0
FRAM og ÍBK léku á sunnudag-
inn. Leikurinn fór fram á Laug-
ardalsvellinum í frekar óhagsfæðu
veðri. Allsterk gola var og gekk
á með regnskúrum. Ánorfendur
voiu með færra móti.
ÍBK átti völ á marki og kaus
að leika undan golunni, sem stóð
beint á markið og var næsti hag-
stæð.
Leiknum lauk með þvi að Fram
hlaut bæði stigin á sjálfsmarki
ÍBK, sem kom er aðeins voru tvær
mínutur liðnar af eíðari hálfleik.
Miðframvörðurinn hugðist skalla
frá, en knötturinn hrökk aftur af
höfðinu á honum og i fallegum
boga, yfir markvörðinn, sem kom-
inn var út í teiginn, og óvcrjandi
inn í markið.
Fleiri mörk voru ekki gerð, svo
að á þessum mistökum hrifsaði
Fram til sín bæði stigiti. Sagan
endurtók sig hér eins og gegn ÍBA
á dögunum, en Fram hlaut þá
bæði stigin með sama hætti. Má
segja að lánið elti Fram en láti
mótherjana í friði. Fjögur stig í
tveim. leikjum án þess .18 þurfa
fyrir því að hafa að skora sjáífur,
er næsta einstæit. En liversu margt
óvænt getur ekki skeð í knatt-
spyrnunni. Kannske eigum við eft
ir að „upplifa" það að Fram haldi
IslandsméistaratigninDi á tómum
ejálfsmórkum mótherjanm, eins
og nú horfir virðist stefna svo.
Já, hver veit hvað skeður?
Þó leikurinn í heild væri kannski
ekki rismikill brá fyrir allgóðum
tUþrifum annað slagið, og mörk
beggja voru n^’krum sinnum í
bráðri hættu. Þannig bjargaði mið-
framvörður Fram, Haildór Lúð-
víksson, eltt sinn á línu góðu skoti
frá Karli Hermannssyni v. úth.
ÍBK, einnig bjargaöi v. bakv. ÍBK
á línu góðu skor.i Baldvins Bald-
vinssonar miðheria Frara. Kr þetta
fyrsti leikur Baldvins £ vor, en
með tilkomu hans í Framtiðið hefir
framlína þess fengið nýtt lif. Bald-
vin er „typiskur“ miðherji. Eld-
snar og fljótur og lætur ekki blut
Meistaraflokkur ÍBK
til Danmerkur
STJÓRN ÍBK hefur á undanföm-
um árum staðið i •.bréfaskriftum
við vinabæi Keflavíkur á Norður-
löndum. Sumarið 1961 var þessum
málum þannig komið að ákveðin
var ferð til vinabæjanna í Noregi
og Danmörku, en á siðustu stundu
varð að hætta við þá ferð vegna
forfalla í liði okkar. Sl. haust var
afto hafinn undirbúningur að
þessari ferð og og er ferð þessi nú
ákveðin. Verður farið utan 18. á-
gúst og leiknir 3 leikir í Dan-
mörku.
ÍÞRÓTTASVÆÐDD
AÐSTAÐA til íþróttaiðkana er
hvergi nærri góð í Keflavík. Hefur
á imdanföraum ársþingum verið
skorað á bæjarstjórn að flýta fram
kvæmdum við íþróttasvæðið meir
en gert hefur verið. Þrátt fyrir
þessar áskoranir hefur fram-
kvæmdum miðað mjög hægt og er
nú svo komið að til stórvandræða
horfir. Stjórn ÍBK boðaði til við-
ræðufundar um sl. áramót bæjar-
stjóra og íþróttavallarnefnd um
þessi mál. Varð niðurstaða þess
fundar mjög jákvæð og standa lík-
ur til að framkvæmdum verði
hraðað mjög við íþróttasvæðið
þegar í sumar.
sinn fyrr en í fulla bnefana. Hann
átti þátt í nokki-um næsta upplégð
um tækifærum fyrir Iram, en
sem þó komu ekki að notum vegna
linlegrar samstöðu rreðiierja hans
í framlínunni. Lið ÍBK var heldur
þungt á sér til að bvrja með, en
sóttj sig er á leið og í seinni hálf-
leiknum, er það léK gegn vir.dinum,'
átti það oft ágæt tilþrif og mögu-
leika til að skora, þó ekki tækist.
Það var efirtektarvert að bæði lið-
in léku m’ui betur gegn vindinum
en undan honum, en eina cg fyrr
segir stóö vindurinn beint á markið
Hvorugt þeirra reyndi þó að not-
færa sér hinn ..biásandr byr“ með
markspyrnum af leugra færi. Kefði
slíkt þó átt að gefa góða raun. í
stað þess var reynt að leika með
stuttu spili inn é markteig og pota
þaðan á markið. Þetta mistókst
yfirleitt, svo að liver rólrjiartil-
raunin af anna-ri fór meira og
minna út um þúfur á báða bóga.
Hing vegar náðu liðin betri tökum
á leik sínum ge;>> vindinum
Er stutt var á leik'nn liðið áítu
þeir Baldur Schenng og Karl
Hermannsson v.uth. ÍBK saman
skallaeinvíga njeð þeim afieiðing-
um að báðir meiddust, Baldur svo
að hann varð að yfírgefa völiinn,
en Karl gat hald.ð áfram eftir að
hafa verið plástraður.
Framh. á 11. siða
'»WMWWM%WWWWmMWW
STAÐAN
STAÐAN í I. deild íslands-
mótsins knattspyrnu að
Ioknum leik KR og Vais í gaer
kvöldi:
AJkranes
Frana
Valur
ÍBk
ÍBA
KR
2 2 0 0 4 5-2
2 2 0 0 4 2-0
1 1 0 0 2 3-0
1 0 0 1 0 0-1
2 0 0 2 0 1-4
2 0 0 2 0 1-5
WWMMMMMWIWWWMMWW
28. maí 1963
ALÞÍÐUBLAÐIÐ