Alþýðublaðið - 15.06.1963, Blaðsíða 10
i
IX. mót Norrænna
íþróttafréttarit-
ara háð í Finnl.
Ritstjóri: ðRN EIÐSSON
★ Franski spjótkastarinn Mac-
quct, sem átti beztan árangur
allra spjótkastara í heiminum
1961, er 'hánn setti franskt met og
kastaði 83,36 m. hefur nú ákveðið
að hætta allri keppni.
★ ENGLENDINGÚRINN John
Boulter, sem er lítt þekktur,
jafnaði fýrir skömmu Evrópumet-
ið í 880 yds hlaupi, tími 1.47.8.
★ HINN þekkti ungverski þjálf-
ari Igloy mun vera væntanleg-
ur til Finnlands um miðjan júlí,
en hann ætlar að þjálfa langhlaup
ara landsins um tíma.
Frjálsar íþróttir
í Vestmannaeyjum
Þessi mynd er tekin á ritstjórnarskrifstofum stærsta dagblaðsins í Ábo, en það heitir Turun Sanomat. Á myndinni eru nokkr-
ir norrænir íþróttablaðamenn í góðu skapi.
Á MIÐVIKUDAG hélt Týr í Vest-
mannaeyjum innanfélagsmót í
frjálsmn íþróttum. Keppt var að-
eins í tveim greinum. Heígi Sig-
urlásson sigraði í 100 m. hlaupi
unglinga á 11,8 sek., en Adolf Ósk-
arsson í spjótkasti með 56,20 m.
Ólafur Óskarsson kastaði 43.70 m.
en hann er enn unglingur. Hall-
grímur Jónsson kringlukastari, sem
nú er fluttur báferlum til Vest-
mannaeyja mun keppa fyrir Týr
í sumar.
Níunda mót norrænna íþrótta-
blaðamanna fór að þessu sinni
fram dagana 4. til 8. júní sl. í borg
unum Helsingfors og Ábo í Finn-
landi. Þrír fyrstu dagarnir voru í
Helsingfors, en tveir þeir síðustu
í Ábo.
TVEIR ÍSLENDINGAR
SAMTÖK íslenzkra íþróttafrétta-
manna áttu tvo fulltrúa á mótinu,
þá Sigurð Sigurðsson og Öni Eiðs-
son, en alls sóttu um 60 norrænir
iþróttablaðamenn mótið. Auk þess
sóttu þrír pólskir íþróttablaða-
menn þetta 9. mót norrænna í-
þróttablaðamanna sem áheyrnar-
fulltrúar, en þeir höfðu heyrt tal-
að um þessi norrænu mót á fund-
um alþjóðasamtakanna og langaði
að kynnast þeim nánar. Til stóð,
að þeir kæmu til Reykjavíkur í
fyrra, en úr því gat ekki orðið.
ÞIN GSETNIN G
ÞINGIÐ hófst þriðjudaginn 4.
júní eins og fyrr segir, en forseti
Finnska íþróttablaðamannasam-
bandsins, Stig Haggblom frá Huv-
udstadbladet setti það með stuttri
ræðu.
Mörg erindi og merkileg voru
flutt á ráðstefnunni, en þeirra
verður getið síðar hér á íþrótta-
síðunni.
SIGURÐUR FORSETI
Síðasta dag mótsins var Sigurð- j
ur Sigurðsson þingforseti, og það
féll í hans hlut að þakka Finnun--
Framh. á 11. síðn I
ÞESSI mynd var tekin er
Peter Snell sigraði í mílu-
hlaupinu í Compton á dög-
unum, en sex menn hlupu á
betri tima en 4 mín.
Tími Snell var 3:55.4.
Sidlo ekki af baki dottinn:
Kastaði 80,97
i ★ HINN gamalkunni spjót-kast-
ari Janusz Sidlo, sem varð Evr-
ópumeistari í Stokkhólmi, en hef-
ur mistekist á stórmótum síðustu
árin, virðist vera að ná sér á strik
aftur. Fyrir nokkrum vikum síð-
an kastaði hann 79,64 m., en á
smámóti í vikunni kastaði liann
yfir 80 m. eða 80.97 m.
10 15... júní 1963 — ALþÝÐUBLAÐIÐ
■ í'Í .ufo '-J ‘