Alþýðublaðið - 17.07.1963, Page 5
* Á
£|
i
und hafa nú
1 Á fundi Eæjarsij'1- ir Hafnar-
fjarðar í gær, var genr.ið frá á-
lagningu útsvara fyrir árið X9C3,
og var samþykkt eftifarandi íil-
laga:
Bæjarráð samþykkir að leggja
til við bæjarstjórn að fjárhagsá-
ætlun bæjarsjóðs fvrir árið 1963
breytist þannig: „í gjaldalið á-
ætlunarinnar komi nýr liður, sem
verði 16. liður: Óráöstafaður vekju
afgangur (ráðstafist af bæjar-
stjórn síðar á árinu) 2 millj. 150
þús. kr. Jafnframt breytist tekju-
hlið áætlunarinnar, 9. liður, staf-
liður A. í kr. 23 millj. og 904 þús.“
Fyrir liggja upplýsingar um, að
útsvörin muni geta orðið — auk
800 kr. frádragsins — 10% lægri
heldur en lögákveðinn útsvarsstigi
segi til um, og jafnframt muni
unnt, að fella niður öll útsvör und-
ir kr. 1000.
Áður hafa lægstu útsvör í Hafn
arfirði verið 500 kr., en nú verður i
samkvæmt þessari samþykkt, ;
ckki greidd lægri útsvör en 1000 1
kr. Hinn óráðstafaði tekjuafgang-
ur mun verða notaður m.a. til
þess að koma í veg fyrir, að verk
legar framkvæmdir þurfi að drag
ast saman, þrátt fyrir hækkun
kaupgjalds, og jafnframt til að
mæta þeim hækkunum, sem vænt
anlega verða á launum bæjar-'
starfsfólks í Hafnarfirði í kjölfar !
kjaradóms.
Nokkrar umræður urðu um
þessa tillögu, en hún var samþykkt
með 7 atkv. gegn tveim. Á þessum
fundi var einnig kjörin nfulltrúi
í Brunabótafélag íslands, og kjör
inn var Emil Jónsson ráðherra og
til vara Hafsteinn Baldvinsson,
bæjarstjóri.
synt í kaupstööum
Þann 13. þ.m. var þátttaka í Nor
rænu Sundkeppninni í kaupstöðum
orðin þessi:
Keflavík 400 Hafnarfjörður 1060
Reykjavík 8200, Akranes 620, ísa
fjörður 580, Saíuðárkrókur 320,
Siglufjörður 500, Ólafsfjörður 200
Akureyri 900, Húsavík 300, Seyð-
isfjörður 210, Neskaupstaður 320
Vestmannaeyjar 640.
Alls í sundstöðum kaupstaðanna
14250 þátttakendur. Árið 1954
syntu um 26600 í kaupstöðum, svo
að góðar horfur eru, að í ár verði
farið fram úr þeirri tölu.
Verra er að veita yfirlit um
framkvæmd keppninnar úti í sýsl
unum, en eftir því sem næst verður
komist munu rúmlega 6 þús. hafa
synt 200 m. og er það rúmur helm
ingur þess fjölda, sem synti 1954
þegar þátttakan var mest. í sýslum
syntu þá um 11.500
Vegna þess, hve sundlaugarekst
ur er víða erfiður í litlum kaup-
túnum og til sveita, og sundstaðir
opnir skemmri tíma en í kaupstöð
um þá veltur einmitt nú yfir há-
sumarið miklu að fólkið utan kaup
staðanna grípi þau tækifæri sem
gefast til að skreppa í laugar.
Um þetta leyti mun hafa tekizt
að ná helmingi þess fjölda sem veit
ir íslandi 50% aukningu frá grund
vallartölunni 28084
Frá framkvæmdanefndinni
Myndin sýnir Hallgrímskirkju
á næstu tveim árum.
í Reykjavík. Þverstrikið sýnir turnhæð þá, sem áformað er að byggjíj,
Hallgrím:
fullbygg
m
UNDANFARIÐ hefur verið unnið
af kappi við Hallgrímskirkju á
Skólavörðuhæð. Unnið er eftir ný-
gerðri framkvæmdaáætlun Teikni-
stofu Húsameistara ríkisins og
Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd-
sen. Samkvæmt þeirri áætlun
verður neðsti hluti allrar turn-
Olíufélagið h.f. fær nýjan olíubát:
Stálvík smíðar 170
tonna stálfiskiskip
Olíufélaginu h.f. var í gær af-!
hentur nýr bátur, Lágafell, sem
er smíðaður í Stál'vík h.f. í
Garðahreppi, og er annar bátur
sömu tegundar og stærðar, sein
þetta nýja fyrirtæki hefur byggt
Innan skamms verður Iagður
kjölur að nýju stálfiskiskipi í Stál
vík, 170 tonna skip fyrir Hraðfrysti
húsið Jökla í Keflavík, en það
verður jafnframt stærsta stálfiski,
skip, sem byggt hefur verið á ís-
landi.
Reykjavík verður heimahöfn
Lágafells, en hlutverk þess verður
fyrst og fremst, að afgreiða gas-
olíu til viðskiptavina Olíufélags-
ins, sem stunda síldveiðar fyrir
Norður- og Austurlandi á sumrinu.
Ennfremur getur báturinn afgreitt
smurningsolíu og neyzluvatn til
skipanna, þegar þess þarf með.
, Fyírrji hluta verfíðarinnar er
! gert ráð fyrir, að báturinn verði
staðsettur fyrir Norðurlandi, en
að hann muni síðar fara til Seyð-
isfjarðar Olíufélagið vill með
þessu auka þá þjónustu, sem það
veitir með Bláfelli og Haskell. Síld
I veiðiskipin losna við með þessu, að
sigla til hafnar til að taka olíu.
Lágafell er búið öllum nauðsyn
Framh. á 11. síðu.
byggingarinnar reistur á næstu
tveim árum, en gólfflötur þeirrar
byggingar er um 610 fermetrar
eða þrefalt meiri en í kapellu kirkj
unnar sem verið hefur í notkun
undanfarin 15 ár.
Við framhaldsbyggingu sjálfs
kirkjuskipsins kemur að því, að
kapellan raskist og verður ónot-
hæf til guðsþjónustu halds. Er því
ákveðið, að fullgera í hinni vænt-
anlegu turnbyggingu nýtt húsnæði
fyrir Hallgrímssöfnuð, sem leyst
getur kapelluna af hólmi, þegar
þar að kemur. Auk þess verður
þarna innréttað félagsheimili fyrir
söfnuðinn og skrifstofur fyrir
söfnuðinn og sóknarprestana.
Húsameistari ríkisins og verk-
fræðingur kirkjunnar hafa gert
heildaráætlun um byggingu kirkj-
unnar í áföngum næstu 11 árin,
þannig, að hún geti orðið fullgerð
á 300. ártíð séra Hallgríms Péturs
sonar árið 1974.
i Ýmsir möguleikar eru nú kann-
aðir á því að tryggja árlega nægi-
legt fjárframlag til framkvæmd-
anna til þess að hægt verði að
vinna eftir hinni nýgerðu áætl-
un að því að Hallgrímskirkja
verði fullsmíðuð 1974
Hallgrímskirkju í Reykjavík
hafa borizt margar góðar gjafir
undanfarið. Kvenfélag Hallgríms-
kirkju gaf 150.000 krónur í tilefnl
af 20 ára starfsemi féíagsins. 0’
nefnd kona gaf 10.000 krónur 1
minningargjöf um 100 ára afmæll
foreldra sinna. Oddný Ólafsdóttír,
I Hverfisgötu 92B, Reykjavík, galf
kirkjunni 10.000 krónur til minn >
ingar um foreldra hennar, Önma
Guðbrandsdóttur og Ólaf Jónsson,
Þá hefur gjaldkera kirkjunnar ný-
verið borizt sem gjafir og áheii
11.828 krónur frá 40 gefendum.
Hallgrímskirkju liefur á þessu árl
verið úthlutað af borgarfé úi*
Kirkjubyggingarsjóði Reykjavíkui*
450.000 krónum.
Ósamið hjá
trésmiðum
Samningafundur Trésmiffa
félags Reykjavíkur og at-
vinnurekenda var haldinn í
fyrrakvöld, mánudagsévöld.
Fundurinn hófst kl. 21.30 og
stóð til kl. 2.30 um nóttina.
Samkomulag náðist ekki.
Annar samningafundur hef
ur verið boðaður í kvöid kl.
20.30
ALÞÝÐUBIAÐIÐ — 17. júlí 1963 g