Alþýðublaðið - 19.07.1963, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 19.07.1963, Qupperneq 3
ISÝR DAMASKUS, 18. júlí (NTB-Reut er)AFP). Siai'ah el-Bitar, forsæt isráðherra Sýrlands, skýrði frá því í dag, að ((lraun til býltingar gegn sijórn Sýrlands hefði verið bæld niður. Hann kvað sökudólg ana hafa verið handtekua en þeic voru vinveittir Nasser. Jafnframt tilkynnti Damaskus- útvarpið, að bylting liefði verið bæi'd niður. Ekki var skýrt nánar frá byltingunni. Að sögn AFP gerðu liðsforingj- ar úr hernum byltingartilraunine. Liðsforingjarnir höfðu orðið óró- legir vegna þess að sýrlenzk sendinefnd átti að halda tii’ Kairó til þess að halda áfram viðræðum um stofnun arabísks sambandslýð veldis. Þar átti. að finna samkomu Landamæra- þræta til lykta leidd Washington, 18. júlí (NTB). Kcnnedy Bandaríkjaforseti til- kynnti á fimmtudagskvöld, að inn- an skamms yrði hálfrar aldar landa mæradeila Bandaríkjanna og Mexi kó leidd til fykta. Gengið hefur verið frá samningi milli utanrík isráðuneyta beggja landanna og fallast Bandaríkin á, að láta ,if hen(di nokkurt lndssvæði til' Mexikó. lag þar sem tekið yrði jafnt tillit til egypzkra sem sýrlenzkra hags- muna. Því er haldið fram, að liðsforingj arnir hafi viljað mótmæla því, að viðræðurnar yrðu teknar upp að nýju. Sagt var í Damaskus, að Atassi forseti og Bitar forsætisráðherra verði fyrir sýrlenzku sendinefnd- inni. Bita hefur dvalizt í Bagdad og rætt við íraska stjórnmálamenn í því skyni að samræma v.'ðhorf íraksmanna og Sýrlendinga í 7>ð ræðunum við egypzku stjórnina. Byltingartilraunin í dag er hin þriðja sem gerð er í Sýrlandi síð an í septemberl961 þegar Sýrland ; sagði sig úr Arabíska sambands- lýðveldinu. Reynt hefur verið að hamla gegn auknum áhrifum Egypta og hörð barótta háð um I völdin. Valdabaráttan hefur verið eink- j um háð af mönnum, sem eru hand- gehgnir Zial el Hariri. Hann var hinn „sterki maður“ Sýrlands eft ir byltinguna, sem gerð var í marz sl. Fyrir tíu dögum var hann sviptur öllum störfum, en hers- höfðinginn var landvarnaróðherra Hann dvelst nú í París. Að undanförnu hafa verið mikl ar deilur með Nassersinnum og Baath-flokknum, sem Bitar for- sætisráðherra tilheyrir. Hariri nýt ur mikilla vinsælda, og þessar vin sældir reyndi Baath-flokkurinn að mlnnka. Hershöfðinginn reyndi einnig að minnka völd flokksins og þess vegna var hann látinn víkja. í byltingunni í marz voru Kudsi forseti og forsætisráðherr un sviptir völdum og byltingar"áði komið á fót. Atassa varð forseti og Bitar, einn af stofnendum Baath-flokksins, forsætisráðherra: 17. apríl sl. var undirritaður samningur um stofnun sambands- ríkis Egyptalands, Sýrland* og ír- aks. í maíbyrjun sögðu margir.ráð- herrar, sem fylgja Nasser a, mál- um, af sér. Bitar sagði einnig af sér, en þegar hverjum stjórnmála manninum af öðrum mistókst stjórnarmyndun, tók hann aftur við' störfum forsætisráðherra npkkrum vikum síðar. Margar frétt i hafa borizt af valdabaráttu Nass edsinna og Baath-flokksins undan- farna mánuði. ÞETTA er ein af ungfrún- um, sem hafa borið vitni í Profumo-málinu, þ. e. í rann sókn í máli læknisins Step- hen Ward, sem hefur verið sakaður um að hafa skipu- lagt símavændi. Þessi stúlka heitir Ronna Ricardo, fyrr- verandi dansmey í nætur- klúbb I París. Harðir bardagar í Laos og Vietnam AMSÆRI MANNKYNINU VIENTIANE, 18. júlí (NTB- Reutcr). Pathet-Lao-hersveitir, sem voru allsnarpir, stóðu í þrjá um, og Vietminh-hermenn gerðu árás á Kong Laes liershöfðingja á Krukkusi'éttu í dag. Frá þessu var skýrt í Vientianei Bardqgarmir, sem voru allsnarpir, stóðu í þrjá klukkutíma. Tilkynning frá skrifstofu forsæt isráðherrans segir, að árásirnai hafi verið mjög krötugar og um fangsmiklar. Nefnd voru nokkur þorp, sem á hefur verið ráðizt, og mynda þau 13 km. langa víglínu. Fyrir tveim dögum sakaði Pathet Lao-hreyfingin afturhaldssinm og hlutleysissinna um að hafa gert skotárás á þrjú þorp á Krukku- sléttu marga daga í röð. Því er haldið fram, að mikið mannfall hafi orðið í liði Pathet Lao í bardögum þessum. Einnig var því haldið fram, að lierflokkar úr Vietminh-hreyfingunni frá ná grannaríkinu Norður-Vietnam, þar sem kommúnistar háða, hefðu tek ið þátt í bardögunum. Síðari fréttir frá stjórnarher- sveitunum herma, að áhlaupi Pat- het Lao hafi verið hrundið eftir harða bardaga, sem stóðu í þrjár klukkustundir. Með árásinni reyndu hermenn Pathet Lao að ná nokkrum hernaðarlega mikilvæg um stöðum á sitt vald. í marga mánuði hafa stjórn- málahreyfingar í Laos átt í bar- dögum. Frá Saigon er tilkynnt, að þrír bandarískir liðsforingjar hafi fall ið í bardögum við skæruhermenn kommúnista í Vietnam, 115 km. fyrir norðan Saigon, Alls liafa 24 Bandaríkjamenn fallið þarna und í an farið. Moskva, 18. júlí (NTB). Þríveldafundinnm i Moskvu um kjarnorkubann var haldið áfram I dag. Fundurinn stóð aðeins í hálf- an annan klukkutima og hófst auk þess allmiklu seinna en vera átti. j Harriman, fulltrúi Bandaríkjanna ! og Ilailsham, lávarður fuUtrúi ( Breta, áttu fund með sér í dag. V' New York, 18. júlí (NTB - Reuter) Blaðið „New York Herald Tri” bune” hélt þvi fram í dag, að stefna kínverska alþýðulýðveldis- ins væri svo villimannsleg og hræðileg, að aldrei áður hefði átt sér stað eins stórfellt samsæri gegn mannkyninu. Blaðið sagði, að Kínverjar vildu hrinda Bandaríkjunum og Sovét- ríkjunum út í kjarnorkustyrjöld, sem leggja mundi mikinn hluta heimsins í auðn. Nú sé orðið auð- vcldar að skilja reiði Kínverja út í tillögu Rússa um friðsamlega sambúð við Bandaríkin, þar eð hún mundi breyta fyrirætlunum Kínverja. En það er einmitt þess vegna sem Rússar verða að halda áfram að framfylgja þessari stefnu og það er af þessari ástæðu, sem friðsamlegu sambúð. Fyrsti próf- steinninn á þessa stefnu verður undirritun samnings um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn. Bandarikin hafa fallizt á hina segir blaðið. Landamæri opnuðáný RÓM, 18. júlí (NTB-Reuter). Rúm'ega ein milljón byggingar verkamanna á Ítalíu lögðu niður vinnu í dag. ÖIÍ verkalýðsfé’.ög styðja kröfur þe'rra, án tillits til st jórnm álaskoðana. í Frakklandi gerðu flugvallar- starfsmenn verkfall í dag og lam aðist öll flugumferð í landinu. Paris, 18. júlí (NTB - AFP) YFIRVÖLDIN í Marokkó opnuðu landamæri Marokkó og Alsír í dag. Lögreglan sleppti nokkrum vinstri sinnuðum stjórnmálamönnum, sem hafa verið yfirheyrðir, úr haldi. Ritsímasamband og símasam- band var hins vegar ekki opnað í dag. Yfirvöldin lokuðu landamær- unum í gær eftir að uppvíst liafði orðið um samsæri gegn ríkinu. Formælendur stjórnarinnar vilja ekki láta uppskátt um hvers konar samsæri hér hafi verið um að ræða. Vinstriblaðið „A1 Tahir” hermdi í dag, að 185 menn úr framkvæmdastjórn þjóðarflokks- ins væru í fangelsi. Þar af eru 21 þingmaður, sem handteknir voru eftir fund í Casablanca. Á fund- inum var samþykkt að draga til baka framboð flokksins í bæjar- og sveitarstjórnarkosningunum 20. júl. Stjórnarflokkurinn er stærsti andkommúnistíski vinstri flokkur- inn í Marokkó. Hann nýtur eink- um fylgis meðal Araba í Casablan- ca, Tangier og víðar. Foringi hans er Mehdi Ben Barka, fyrrv. pró- fessor í stærðfræði. í þingkosningunum 17. maí sl. fékk flokkúrinn 28 þingsæti, kon- ungssinnaflokkurinn 69 og hinn íhaldssami Istiqlal-flokkur 41 — Þjóðþingið kemur saman í haust. Ben Barka dvelst um þessar mundir í Kaíró. í dag var þvi hald- ið fram af hálfu fylgismanna Has- sans konungs, að flokkurinn vildi i koma á einræði í landinu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 19. júlí 1963 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.