Alþýðublaðið - 31.07.1963, Qupperneq 8
ÍÉ
Ixlz
KS«
:Hi:
:::k
rf
[»
!d||
III
ÍK"
3»
ÍKÍl
PÍS
:e*
11
úé
U:|
B
9s
e:e
P
■•■■■
:::::
:.e?
:íe
x:e
:£ii
GUNNAR Benediktsson er
stúdent úr Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1961. Hann
stundar nú nám við Kungliga
Tekniska Högskolan í Stock-
holmi. Námsgreinin nefnist
eðlisverkfræði.
SKÓLINN.
Skólinn er talinn mjög góð-
ur. í honum eru níu deildir, all
ar deildir í tæknifögunum.
„Teknis“, eins og skólinn er
nefndur í daglegu tali, er flest-
um kunnugur vegna eðlisfræð-
innar, bygginga- véla- og raf-
magnsverkfræðinnar, þar sem
merkir vísindamenn kenna
þessi fög. Fólk sækir skólann
frá öllum löndum, aðallega þó
þeim vanþróuðu. Hver náms-
maður verður að borga um tutt
ugu krónur sænskar í sjóð til
styrktar stúdentum frá van-
þróuðu löndunum. Hér er
svo mikið um smáfyrirtæki, að
erfitt verður að reka iðnaðinn
á hagkvæman hátt, eins og iðn
menningarlandi sæmir. Svíarn-
ir samþykkja þó ekki að okk-
ar land teljist til hinna van-
þróuðu og þurfum við því að
greiða styrkinn“.
Skólagjöld eru engin, en á
hverju misseri þarf að borga
60 krónur sænskar í stúdenta-
ráðssjóð.
Á Norðurlöndum er eðlisverk
fræði einungls kennd sem sér
grein í Noregi og Svíþjóð. í
Kaupmannahöfn er hún sérstök
undirdeild rafmagnsverkfræð-
innar og má þá ljúka fyrri
hluta prófi í verkfræði hér
heima. Námið tekur fjögur ár
í Stockholmi, en flestir ljúka
því á um fimm árum. Tveir ís-
lengingar hafa lokið því þar.
Þeir vinna við allskonar rann
sóknastörf hjá jarðhitadeild
Rafveita ríkisins.
„Gunnar, hvers vegna valdir
þú þetta fag“?
„Það er alltaf gaman að kom
ast í eitthvað nýtt. Hér á landi
vantar mjög menn í verkfræði-
legar grundvallarrannsóknir“.
SAMTÖK ÍSLENDINGA.
Margir íslendingar eru í
Stockholmi, bæði námsmenn og
vinnandi fólk. Annanhvern
fimmtudag er haldið blaða-
kvöld á stúdentagarðinum
Domus. Þar eru ýmisleg mál-
efni tekin til meðferðar og dag
blöðin lesin. Til sölu hefur ver-
Gunnar Benediktsson
ið bjór og hafa þessi kvöld ver
ið mjög vinsæl.
„AUtaf er haldið upp á fyrsta
desember og sumardaginn
fyrsta. Margt er gert til að efla
félagsskapinn og ríkir mjög
góður andi yfir íslendinganý-
lendunni.“
FÉLAGSLÍFDE).
„Félagslifið í skólanum er
mjög fjölþætt og vel skipulagt
Skipaðar eru nefndir stúdenta
til að stjórna hinum ýmsu
deildum. Hver maður finnur
eitthvað við sitt hæfi. Mikið
er um alls slags íþróttaiðkanir.
Kvikmyndasýningar, dansleikir
og margt fleira er til skemmt-
ana“.
í skólanum háfa ýmsar
skemmtanir heiti. Það er að
allega át ög drykkjarveizlur.
Equtt nefnast dansleikirnir.
Osquar nefnist verkfræðinemi.
Ef dama, sem ekki er í skól-
anum, er í fylgd með honum,
nefnist hún Ada. Osqulda kall-
ast kvenverkfræðingarnir.
„Þegar stúdent byrjar á
„Teknis" er hann kallaður
„nolla“, sem er sama orðið og
núll í íslenzkunni. Á fyrsta
degi í skólanum taka hinir
eldri á móti núllunum. Nýnem
ar eru bundnir í kaðia, á þá eru
sett merki, sem eru mismun-
andi á lit eftir deildum, og far-
ið með byrjenduma til heim-
kynnanna í skólanum. Núllurn-
ar eru hrelldar á ýmsa vegu.
Þær verða 'að standa skil á
spurningum um hitt og þetta,
svo sem hverjir eru helztu
menn deildarinnar og svo fram
vegis. Ef svörin eru ekki rétt,
fær maðurinn, er gatar, „med-
acin,“ sem er mjög bragðvond
ur vökvi og sízt girnilegur."
Á tímabilinu þar til að
„Nolle-gasquen“ er haldin
verða nýbyrjendumir í eðlis-
fræðideildinni að ganga með
appelsínugulan smekk, sem nafn
viðeigandi manns er letrað á.
Á síðustu núlludögunum verða
nýnemar að vinna af hendi ein
hverja þraut.
„Ég varð ásamt öðrum að
ganga á skíðum eftir endi-
langri Kungsgötunni, sem er
ein aðalgata Stokkhólms, um
sex-Ieytið, þegar umferðin er
sem mest. Ég var klæddur í
skiðagalla og með sólgleraugu
sem lítil þörf var á að nota,
þar sem ausandi rigning var
úti. Göngu þessari var líkt við
Vasa-gönguna frægu. Við átt-
um að spyrja lögregluþjónana,
sem við mættum, hvar Vasa-
skrúðgarðurinn væri. Á leið-
inni var stöðvað við matargæzl
una* hjá konserthúsinu og þar
fengum við drykk og kex.“
Þegar allar núllurnar voru
búnar að leysa sína þrekraun
var haldin samkoma, þar sem
þær þurfa að skýra Osquar
unum frá afrekum sínum.
Nokkrum dögum seinna var öll
um núllum stungið í slátrunar
vélina og út steig Osquar.
Fyrsta desember er „nafn-
dagur“ Osquars. Á þessum degi.
er söngkeppni haldin milli
deilda skólans. Til hennar koma
allir námuverkfræðingar og
keppa um „jumbosætið“, sem
er það Iægsta. Prófessorar eru
í dómnefnd.
„Þrettánda desember, þegar
búið er að drekka Lúcía-kaffið,
hlaupa allir prófessorarnir um
Sing-SIng háskólabygginguna
og syngja jólunum til heiðurs".
Þá er gefið út húmórblaðið
,3Iandaren“. Sölumenn búa sig
á kostulegan máta, ógna heið-
virðum borgurum með byssu og
spyrja: „Kaupið þér Blandar-
en?“.
,Núna hefur Gunnar frætt. okk
ur um helztu siðvenjur skólans.
Þær gefa til kynna, að félags-
lífið er mikið í skólanum, og
kennarar taka mjög þátt í því
með nemendum.
STOKKHÓLMUR OG UM-
HVERFI.
„Umhverfið er ljúft og fag-
urt. Það er umlukið skógura,
engjum, vötnum og fjölbreyti-
legum gróðri. Veturnir eru
kaldari en hér og snjóar oft.
Svíarnir eru mjög duglegir að
moka snjó af gangstéttunum og
kemur hann því eigi að sök.“
Stokkhólmur er mjög faUeg
borg, þar sem hún stendur við
ósa Lagarins. Sérkennilegt
fyrir borgina er gamli bærinn,
skerjagarðurinn og gömlu hús-
in á Skansen.
„Mesti „sjarmi" borgarinn-
ar er fólginn í þröngum göt-
rnn gamla bæjarins, sem eru
umluktar háum húsum, svo. að
varla sést í himininn. Hver gata
er helguð sérstakri iðngrein. Á
Skansinum má finna gömul að
flutt sænsk sveitahverfi. Á
snmrin vinna konur í húsuntím
og matreiða á gamaldags máta,
búa til osta, steikja heilar steik
ur og fleira“.
HVERNIG ERU SVÍAR?
„Svíarnir virðast vera mjög
stífir, áður en farið er að kynn
ast þeim. Við fyrstu kynni virð
ast þeir vera lokaðir en það
breytist fljótlega. Manni finnst
þeir vera mjög nákvæmir og
næstum því smásmugutegir.
Þegar titlar eru annars vegar
eru þeir mjög viðkvæmir“
„Maður talar allt öðruvisi
við fólkið á götumun en heima
fyrir. Ef þeir eru ávarpaðir úti
fyrir án tilefnis verða þeir
mjög hissa. Svíi, sem þarf að
spyrja náungann um eitthvað,
biður hann mikillar velvirðing
ar á að hafa ónáðað hann“.
„Hugsunarháttur Svíanna er
mjög efniskenndur. Þeir eru á-
nægðir með lífið ef þeir hafa
íbúð, bíl og sjónvarp. Æðsta tak
markið virðist vera að geta
brugðið sér til Mallorka. Þeir
leggja peningagildi á allt
mögulegt og eru miklu meira
„ameríkaníseraðir“ en við. Fólk
ið er í sjálfu sér mjög íhalds
samt. Áhugi á stjórnmálum er
enginn“.
, ,F jölsky Idutíf ið í Svíaríki
fer að miklú leyti fram fyrir
framan sjónvarpið og fer
minnkandi. Hraðinn á öllu í dag
iega lífinu er líklega aðalvald
ur þess, að áhugamál unga
fólksins tengjast svo mjög bíl-
um ©g skemmtunum. Sænsku
syndina verður maður lítt var
við í daglegu lífi“.
„Ágætt er að vera íslending-
ur í Svíþjóð. Fólkið er nokk- .
Ftamhald á 12. siðu.
S 31. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ