Alþýðublaðið - 31.07.1963, Blaðsíða 10
Ritstjóri: ÖRN EiÐSSON
^ænskar frjálsíþróttastúlkur
keppa hér 8. ágúst
t'YRIR tæpum 30 árum tók KR á
jnóti fyrstu erlendu frjálsíþrótta-
mönnunum, sem hingað komu til
IMMMWWWWWWWWW
I Leikurinn
i fellur niður
STJÓRN KSÍ þykir leitt að
verða að tilkynna, að aftur-
kippur er kominn í ferð jap-
anska landsliðsins til íslands.
, Gengið hafði verið endan-
! lega frá samningum við Jap-
ani um að leika hér lands-
leik 27. ágúst og síðan einn
aukaleik.
Var fyrirhugað að Japanir
kepptu nokkra leiki í Rúss-
landi og Finnlandi áður en
þeir kæmu hingað. En svo
skeður það, alls óvænt, að
Japanir tilkynna ag vegna til
færslu á ferðinni til Rúss-
lands geti þeir ekki staðið
við loforð sitt um að koma
til íslands. Stjóm KSÍ hefur
óskað eftir því, að Japanir
endurskoðuðu þessa ákvörð-
un sína og reyni þrátt fyrir
allt, að heyja hér landsleik
eins og um hafði verið sam-
ið.
En þvi miður virðast litlar
likur fyrir því, að úr komu
! þeirra hingað geti orðið að
! þessu sinni.
iwwwwMmwwmwMWM
Norðurlandamótið í frjálsíþróttum:
Valbjörn er annar
eftir fyrri daginn
Agætur árangur Kjartans
keppni. Þeir voru fimm, allt úr-
vals íþróttamenn og voru frá
M. A. I. í Malmö í Svíþjóð.
Nú, 2. ágúst n. k. koma 20
frjálsíþróttakonur einnig frá Sví-
þjóð, en að þessu sinni frá G. K. I.
í Gautaborg. Á líkan hátt og heim-
sókn fimm-menninganna markaði
tímamót nú í dag í kvennaíþróttum
heimsókn Gautaborgarstúlknanna
tíamót nú í dag í kvennaíþróttum.
Meðal sænsku stúlknanna etu
bæði byrjendur og vel pjálfaðar
íþróttakonur. Þær keppa hér í éft-
irtöldum íþróttagreinum:
100 m, 200 m og 400 m hlaupi, 80
m grindahlaupi, 4x100 m boðþl.,
hástökki, langstökki, kringlukasti,
spjótkasti og kúluvarpi.
Nefna má árangur eins og 12.2
sek. í 100 m hlaupi, 25.4 sek. í 200
m. hlaupi, 55.6 sek. í 400 m. hlaupi,
12.4 sek. í 80 m grindahl., 1.65 m
í hástökki, 5.67 m f langstökki,
36.60 m í kringlukasti o. fl.
Þær yngstu í hópnum eru á
svipuðu stigi og íslenzku stúlkurn-
ar og verður því vafalaust um
skemmtilega keppni að ræða.
Allmargar stúlkur æfa nú frjáls
ar íþróttir hér í bæ og er þess í
vænst að þær fjölmenni til keppni i
við hinar sænsku kynsystur til á-
nægju fyrir þær sjálfar og upp-
Iyftingar fyrir kvennaíþróttirnar í
höfuðstaðnum.
Sænsku stúlkurnar munu keppa
á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyj-
um um Verzlunarmannahelgina og
á fþróttamóti hér í Reykjavík, sem.
haldið verður fimmtudaginn 8.
ágúst.
KSÍ velur 36 menn
til landsliðsæfinga
LANDSLIÐSNEFND hefur valið
eftirtalda menn til þátttöku í æf-
ingum vegna væntanlegra lands-
leikja f september næstkomandi:
Frá KR:
Heimir Guðjónsson, Bjarni Felixs-
son, Ellert Schram, Garðar Árna-
son, Sigurþór Jakobsson, Hörður
Felixsson, Sveinn Jónsson.
Frá VAL:
Ámi Njálsson, Þorsteinn Frið-
þjófsson, Ormar Skeggjason, ííerg
sveinn Alfonsson, Bergsteinn
Magnússon.
Frá FRAM
Hrannar Haraldsson og Björn
Helgason.
Frá ÞRÓTTI:
Axel Axelsson.
Frá BREIÐABLIKI:
Reynir Jónsson.
Frá ÍA:
Helgi Daníelsson, Skúli Hákonar-
son, Bogi Sigurðsson og Ríkharð-
ur Jónsson.
Frá ÍBA:
Jón Stefánsson, Kári Árnason,
Einar Helgason, Steingrímur
Björnsson og Skúli Ágústsson.
Frá ÍBK:
Sigurvin Bjamason, Hólmbert
Friðjónsson, Karl Hermannsson og
Högni Gunnlaugsson.
Norðurlandameistaramótið I frjáls
um íþróttum hófst á Slottskogs-
vallen í Gautaborg í gær á keppni
í tugþraut. Keppendur voru aðcins
átta. þrír Finnar, þrír Svíar og ís-
lendingarnir Valbjöm Þorláksson
og Kjartan Guðjónsson. Norðmað-
urinn Skaset var skráður, en
mætti ekki til leiks.
Fyrsta greinin, 100 m. hlaupið,
fór fram í töluverðum meðvindi,
en veður var annars mjög gott í
Gautaborg í gær, hlýtt og sólskin.
Valbjöm hljóp 100 m. á 11.2 sek
og það er lakara, en búazt hefði
mátt við af honum við slíkar að-
stæður. Kjartan hljóp aftur á
móti á sínum bezta tíma, 11.4 sek.
og f langstökki náði hann einnig
sfnum bezta árangri, 6.44 m. Loks
náði Kjartan sínum bezta árangri
í 400 m. 55,4.
Eftir fyrri daginn er Valbjöm
annar með 3823 stig, en fyrstur
er Norðurlandamethafinn, Finn-
inn Suutari með 4051 stig. Þessi
árangur Valbjarnar er betri en í
keppninni Norðurlönd Balkan, en
þá hafði hann 3787 stig eftir fyrri
dag.
Kjartan er 6. eftir fyrri dag og
árangur hans 3345 stig er góður,
sá langbezti, sem hann hefur náð.
Bendir allt til þess, að Kjartan
nálgist 6000 stig, sem er gott af-
rek.
Úrslit fyrri daginn:
100 m hlaup:
S. Suntari, Finnland, 10.8.
Valbjörn Þorláksson, ísl. 11.2.
M. Haapala, Finnland, 11.2
S. Hedström, Svíþjóð, 11.3
Kjartan Guðjónsson, ísl. 11.4.
M. Khama, Finnland, 11.5
T. Carbe, Svíþjóð, 11.5
L. Andersson, Svíþjóð, 12.1.
Langstökk:
Haapala, F. 6.99 m.
Suutari, F. 6.87 m.
Hedström, S. 6.83 m.
Valbjöm Þorláksson, í. 6.76 m.
Khama, F. 6.66 m.
Carbe, S. 6.65 m.
MtMIMMMWMWWWHMWIW<
Kjartan Guðjónsson, í. 6.44 m.
Andersson S. 6.26 m.
Fimm ísiend-
ingar keppa á
NM í dag
í DAG keppa fimm fslend-
ingar á Norðurlandamótinu í
Gautabotg. Válbjörn óg
Kjartan ljúka keppni í tug-
þraut, Jón Þ. Ólafsson tekur
þátt í hástökki, Úlfar Teits-
son í langstökki og Skafti
Þorgrfmsson í 400 m. hlaupi.
Kristleifur Guðbjörnss. átti
að hlaupa 5000 m. í dag en
tekur ekki þátt. Hann ætlar
að einbeita sér að 3000 m.
hindrunarhlaupinu á morg-
un. Sigrún á einnig frí í
dag.
WWWWWWWWWWWWIWWW
VALBJÖRN ER ANNAR
Kúluvarp:
Khama, F. 14.99 m.
Suutari, F. 14. 77 m.
Kjartan Guðjónsson, í. 13.79 m.
Valbjörn Þorláksson, í. 13.19 m.
Andersson, S. 13.00 m.
Haapala, F. 11.98 m.
Hedström, S. 11.33 m.
Carbe, S. 11.26 m.
Hástökk:
Hedström, S. 1.91 m.
Haapala, F. 1.88 m.
Valbjörn Þorláksson, í. 1.82.
Carbe, S. 1.82
Suutari, F. 1.76
Kjíudan Guðjónsson, í. 1.70 m.
Khama, F. 1.70 m.
Andersson, S. 1.60 m.
Framhalcl a 14 síðu.
Einn veikur og
meiddir
ÝMSIR þekktir íþróttamenn til-
kynntu forföll á Norðurlandamót-
inu. Svíinn Forssander getur ekki
keppt vegna meiðsla, en hann
var talinn öruggur sigurvegari í
110 m. grind. Norðmaðurinn We-
um er nú mjög sigurstranglegur
í greininni. Nyström, Finnlandi,
getur ekki tekið þátt í stangar-
stökkinu, vegna meiðsla, en það
skiptir ekki miklu máli fyrir
Finna, þeir eiga aragrúa stangar-
stökkvara, sem stökkva 4.60 m. eða
hærra, svó að þrefaldur finnskur
sigur er öruggur.
Danimir Orla Bang og Aksel
Thorsager geta ekki keppt, sá
fyrrnefndi fær ekki frí í vinn-
unni, en Thorsager er veikur.
HVERJIR VERÐA NORÐUR-
MEISTARAMÓT Norðurlanda í
frjálsum íþróttúm hófst á Slott-
skogsvallen í Gautaborg í gær, en
heldur áfram á Nya Ullevi leik-
vanginum í dag. Á mótinu er keppt
í öllum venjulegum landsliðsgrein
um og auk þess í tugþraut og
tnaraþonhlaupi. Keppt verður
einnig í kvennagreinum.
Keppnin í gær hófst á tugþraut
og maraþonhlaupi ,og frá úrslitum
er skýrt á öðrum stað á íþróttasíð-
unni.
Við erum dálítið fyrir spádóma
og þessvegna ætlum við að spá um
árangur íslenzku iþróttamannanna
og einnig um það hverjir vérða
Norðurlandameistarar í karla-
greinum.
Valbjörn og Kjartan keppa í
tugþraut og við spáum Valbirni
öðru sæti og nýju meti og Kjart-
ani nýju unglingameti Jón Þ. Ól-
afsson keppir í hástökki og þai
verður róðurinn þungur, því að
Nor ðurlandabúar stánda mjög
frámarlega í þeirri grein. Við spá-
úm Jóhi 4. sæti og 2.05 m. Fyrir
keppnina er hann 8. á áfrekaskrá
Norðurlanda með 2.02
I rarnh. á 14. SÍðu
Finnar áttu sex
fyrstu menn
FINNAR unnu glæsilegan sigur í
maraþonhlaupi Norðurlandamóts-
ins, sem fór fram í gær, þeir áttu
sex fyrstu menn, en maraþon-
hlaupið er eina grein, þar sem
þjóðirnar mega senda fleiri kepp-
endur en þrjá í grein.
Norðurlandameistari í mara-
þonhlaupi varð Eino Oksanen, F.
2:22,01 klst., annar varð P. Qust-
ynen, F. 2:22.07 og þriðji Eino
Valle, F. 2:23.40 klst.
10 31. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ