Alþýðublaðið - 23.08.1963, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 23.08.1963, Blaðsíða 5
Framh. af 16. síffu Grunnavíkurhreppur hefur gengið úr tölu sveitarfélaga. Nú eru í sam bandinu allir kaupstaðirnir 14 að tölu og 180 hreppsfélög eða alls 194 sveitarfélög af 227 sem til eru í landinu. Utan vébanda sam- bandsins eru því aðeins 33 hrepps félög. Samskipti við sveitarstjórnar- samböndin á Norðurlöndum og A1 aðþjóðasamband sveitarfélaga er vaxandi þáttur í starfi sambands- ins. Hafa fulltrúar sambandsins sótt ýmis þing og ráðstefnur er- lendis. Tveir fulltrúar sóttu af- mælisþing Alþjóðasamband sveit arfélaga í Haag í vor, en þá voru liðin 50 ár frá stofnun samtakanna Einnig voru sendir fulltrúar á sveitastjórnarþing Evrópu, sem kemur saman annað hvert ár. Síyaxandi þáttur í starfsemi er margháttað samstarf milli þess og Alþingis og ríkisstjórnarinnar, er það einkum í því fólgið, að ríkis stjórn og nefndir senda lagafrum vörp og þingsályktanir, sem fram koma á Alþingi og einkum snerta sveitarfélögin, sambandsstjórn til umsagnar áður en þeim er til lykta ráðið á þingi. Á síðasta kjör timabili hefur sambandsstjórn fengið mörg slík mál til umsagn ar og eru sum þeirra hin mikil- vægustu, t.d. sveitarstjórnarlögin tekjústofnalögin, skipulagslög. lög um lögreglumenn og almannavarn ir, svo nokkur séu nefnd. Stjórn sambandsins lætur í té umsögn um þau mál, sem henni eru send og leitast einnig við .-.ð láta fulltrúafund f jalla um . þau ef kostur er. Formaður kvað hin nýju sveit arstjórnarlög eitt merkasta ’nál síðasta kjörtímabils, og með þeim verið komið í höfn einu helzta baráttumáli sambandsins. Einnig hefur verið gerð gagngerð endurskoðun á löggjöf um tekju stofna sveitarfélaga. Stórfelldasta átakið, sem gert hefur verið á síðasta kjörtíma- bili til þess að tryggja fjárhags- afkomu og sjálfstæða tilveru sveit arfélaganna er setning laganna um Jöfnunarsjóð sveitarfélaganna sem síðar voru tekin inn í tekju stofnalögin. Með þeim er sveitar- félögunum tryggður fastur tekju- stofn, sem er öruggari en út- svörin. Einnig hefur Bjargráða- sjóði íslands verið veitt heimild til rýmri lánveitinga til sveit!arfé(- laga en áður var. n maður i'æddi nokkuð um arsöltun ið áfram BÚIÐ er nú að salt í um 390. 000 tunnur og er þá enn eftir að salta í um 35—40 þús. til þess að unnt veröi að standa viff gerða samninga og eiga fyrir ápökkun. Síldarsöltunin er begar orðin talsvert meiri en í fyrra. Á sl. ári var samið um sölu á 375 þús. tunnum síldar en í ár var samið um sölu á 400 þús. tunnum fyrir utan ápökkun. Formaður sildarútvegsnefndar, Erlendur Þorsteinsson, sagði í við tali við Alþýðublaðið í gær, að hann teldi góðar horfur á því, að unnt yrði að salta það, er vant- aði, 35—40 þús. tunnur. Þegar er búið að veiða upp í somninga viö sum lönd en nokkuð vantar á vegna samninga við önn- ur. Söltun er nú nær eingöngu á Austfjörðum enda hefur síldin ein göngu veiðzt á austursvæðinu und anfarið. ik og prettir Framh. af 1 síðu á einu flutningaskipa SÍS og þyrfti hann að kaupa sjónauka. Tókst honum þetta bragð, skrif- aði aðeins nafn sitt, sem viður- kenningu fyrir að hafa tekið á móti sjónaukanum. Krústjov BELGRAD, 22. ágúst (NTB-Reut er — Krústjov, forsætisráffherra Sovétríkjanna, lýsti því yfir í ræffu í Belgrad í dag, aff Sovétríkin mundu ekki láta hræffa sig ef lieimsveldissinnar mundu hrinda af staff nýrri styrjöld. — Það stríð yrði, ef til kæmi, það síðasta, sem þessum öflum tækist að hrinda af stað, því að friðelskandi fólk með Sovétríkin í broddi fylgingar mundu svara í eömu mynt, sagði hann. Þess má geta, að Sigurður er yfirleitt vel til fara, kemur vel fram og er fremur traustvekjandi en hitt. Hann kynnir sig með nafni þ.e. réttu nafni, en oftast er hann stýrimaður, skipstjóri, flugmaður eða jafnve^ sjúklingur< Þannig tókst honum t.d. fyrir nokkru að svíkja út armbandsúr á Sauðár- króki. Hann var þó tekinn nokkru síðar og náðust úrin aftur. Síð- an var hann sendur tid Reykja- víkur, en hér mun hann hafa hald ið áfram. Það er auðsætt, að fyrir löngu hefði lögreglan átt að láta birta mynd af þessum manni í dagblöð unum til aðvörunar fyrir almenn ing. Margt saklaust og auðtrúa fólk hefur orðið fyrir barðinu á þessum manni, og er ekki að efa að nokkrir hafa ekki viljað til- kynna lögreplunni, þó þeir hafi verið gabbaðir. Munu sumir hafa skammazt sfn fyrir að láta mann- inn hlunnfara sig. tímaritið Sveitarstjórnarmál. Kem ur það út sex sinnum ó ári. Hef ur því verið breytt nokkuð og það gert aðgengilegra. Þakkaði for- maði^r Unnari Sttefánssyni við- skiptafræðingi starfsmanni eam- bandsins, starf hans við að bæta fjárhag tímaritsins og efla það á annan hátt. Of langt mál yrði að fara út í öll þau atriði, sem fram komu í skýrslunni. Skýrslan og reikning ar sambandsins voru samþykktir samhljóða. Að loknu þessu yfirlit Jónasar Guðmundssonar, flutti Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra á- varp. Talaði hann um nauösyn þess, að sveitarfélögin væru sjálf stæð í fjármálum, og hvaða ráð væru til þess að tryggja afkomu þeirra. Væru það einkum tekju st«ijiamálíð og lánamálið, sern þing sambandsins hefði fjallað um á undanförnum árum. Minnti ráð herrann ó þær aðgerðir ar hefðu verið undanfarið til þess að bæta fjárhag sveitarfélaganna og ræddi síðan nokkuð hvaða leið ir skyldu farnar til þess að sinna lánsfjárjþörf þeiif'a. Ráðhoírrann sagði, að enda þótt Bjargráðasjóð nr veftti sveitarfélögunum lán, þá væri það staðreynd, að engin ein stofnun hefði það hlutverk að aðstoða sveitarfélögin á því sviði Taldi hann beztu lausnina, að lána deild yrði stofnuð við einhvern bankann, en tilkynnti að hann hefði skipað nefnd til þess að rann saka lánafjármál sveitarfélaganna. Nefndina skipa: Jónas Guðmunds son, formaður, Jón Maríusson, bankastjóri Seðlabankans, Sigtrygg ur Klemenzson, ráðuneytisstjóri, Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytis stjóri, Gunnlaugur Pétursson, borgarritari, og Ásgrímur Hart- mannsson, bæjarstjóri, Ólafsfirði. Jónas Guðmundsson kvað þessa nefndarskipun merkilegan áfanga í starfsemi sambandsins og þakk- aði fjármálaráðherra og ríkis- stjórn góða samvinnu og skilning varðandi málefni sveitarstjórn- anna. Þingfundir standa fram á laug- ardag. Ýmsis mál verða rædd á þinginu. í gær flutti Sigurbjörn Þorbjörnsson ríkisskattstjóri er- indi um framkvæmd tekjustofns- laganna og. Zophanias Pálson tal- aði um frumvarp til nýrra skipu- lagslaga. Stefán Gunnlaugsson framkvæmdarstjóri flutti erindi um gatnagerð og fjáröflun til hennar. Hér sézt Emil Jónsson félagrsmálaráffherra spjalla viff einn aff hinuna erlendu fulltrúum. 27 erlendir sitja fundinn FUNDUR félagsmálaráffherra Norðurlanda hófst í Bifröst í Rorg arfirði í gær. Emil Jónsson félags málaráffherra setti fundinn og bauff fulltrúa velkomna. Alls sitja fundinn 33 menn, 27 crlendir og sex íslenzkir. Af hálfu Islands sitja fundinn: Emil Jónsson, félagsmálaráðherra, Iljálmar Vilhjáhnsson, ráðuneytis stjóri, Gunnar Möller form. trygg ingarráðs, Jón Ólafsson fulltrúi, Sverrir Þorbjömsson forstjóri og Guðjón Hansen tryggingafræðing- ur. Frá Danmörk kom Lars P. Jen sen innanríkisráðherra í forföllum Bundvad félagsmálaráðherra, frá Svíþjóð er Sven Aspling, félags- málaráðherra og frá Finnlandi ráð herrarnir Körsback og Nárvanen. Á fundinum í dag voru rædöl eftirtaldin mál. Sjúkradagpening- ar, framsögumaður Guðjóns Han- sen, tryggingafræðingur. Ottar Lund frá Noregi ræddi um „kvali fikationstid, Coln ráðuneytisstjóri frá Danmörku flutti erindi er hann kallaði Volksen uddannelse og Aarne Tarasti frá Finnlandi og: Ernst Miclrinek frá Svíþjóð töl- uðu um húsnæðismál og heimihV hjálp gamla fólksins. Talsverðar umræður urðu um öll þessi mál. Fundi ráðherranna lýkur á morg un, og fara flestir fulltrúanna ut- an á laugardag, en nokkrir verða þó eftir og ferðast um landið. K0DACHR0ME Elf 15 DINI K0DACHR0ME X 19 Dllfi EKTACHROME 16 DIN ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 23. ágúst 1963

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.