Alþýðublaðið - 19.09.1963, Blaðsíða 3
20 skip með rúm
10 þúsund mál
Reykjavík, 18 sept.
SÍLDARAFLINN var samtals
10.900 mál síðastliðinu sólarhring,
en alls tilkynntu 20 skip afla á
þessum tíma,
Síldin veiddist á sömu slóðum
og undanfarið, það er að segja
100 til 110 mílur aust-suðaustur af
Dalatanga.
Óhagstætt veður var á miðun-
inn í dag, en þó voru einhver skip
að kasta. Veður hefur farið batn-
andi á miðunum í dag og eru nú
margir bátar, sem biðu í landi á
útleið. Menn eru að vonast eftir
síldveiði með kvöldinu.
Tólf bótar fengu 500 mál síldar
eða meira síðastliðinn sólarhring
og fara nöfn þeirra og afli hér á
eftir:
Gullfaxi 500, Sæfaxi 850, Sæ-
úlfur 750, Húni II 600, Guðmund
ur Þórðarson 750, Haraldur 650,
Sólrún 800, Gjafár 800, Víðir II.
700, Eldey 600, Sigurpáll 900 og
Helgi Helgason 550.
Seyðisfirði 18. sept.
FJÖGUR þúsund mál síldar bíða
nú löndunar hér á Seyðisfirði.
Veðrið hérna er milt og gott, en
bræla hefur verið úti á miðun-
um. Nú virðist brælan vera að
ganga niður og bátamir eru að
fara út. Nokkrir bátar hafa tek-
ið nætur sinar núna síðustu dag-
ana og hætt veiðum. - Gunnþór..
Neskaupstað, 18. sept.
LÍTIÐ hefur borizt hingað af
síld í dag. Þó hafa 17 skip komið
hiagað með slatta í gær og nótt
og í dag með samtals um 6 þús-
und mál síldar.
Bræðslan hér hefur nú tekið á
móti um 250 þúsund málum. —
Veðrið er sæmilegt. — Garðar.
Eskifirði, 18. sept.
BÁTARNIR hafa verið að fá ein-
hverja síld á miðunum i dag og er
einn þeirra Ársæll Sigurðsson II.
á leiðinni hingað með 500 mál síld
ar. Dálítil síld barst hingað í gær-
kveldi og í nótt.
Bræðslan hefur nú tekið á .móti
um 84 þúsund málum. Veður er
hér mjög sæmilegt.
Magnús.
Sendiráö Breta i
brennt
KENNEDY HITTIR
LEIÐTOGA NEGRA
WASHINGTON 18.9 (NTB-Reut
er). Kennedy forseti mun eiga
fund með sjö negraforingjum
frá Alabama, að því er blaðafufl
trúi forsetans skýrði frá í dag.
Negraforingjarnir sendu Kenn
edy skeyti á mánudaginn og fóru
Ásmundur frá Skúf-
stööum lézt í gær
ÁSMUNDUR skáld Jónsson frá
Skúfsstöðum lézt í gærmorgun á
Landakotsspítala eftir stutta legu.
Ásmundur var 64 ára gamall.
þess á leit að þeir fengju að ræða
við hann um ástandið í Alabama
eftir dráp fjögurra negrastúlkna
á sunnudaginn.
Einn leiðtoganna, sem ræða
munu við forsetann er Martin Lut
her King, en hinir eru þekktir
leiðtogar úr presta- og mennta-
mannastétt.
Þrjár negrastúlknanna, sem
myrtar voru í Birmingham á
sunnudaginn voru jarðsettar í dag.
Sú fjórða var jarðsett i gær. Mik
ill mannfjöldi var við útförina.
pandteknir voru í gær tveir
hvítir unglingar fyrir morð á
svertingja eftir atburðina við
kirkjuna í Birmingham á sunnu
daginn þegar stúlkurnar voru
myrtar.
DJAKARTA 18.9. Indónesískur
skríll brenndi í morgun sendiráð
Bretlands í Djakarta til grunna.
í London kvaddi utanríkisráð
herra Breta, Home lávarður, sendi
herra Indónesíu á sinn fund og
bað hann að koma þeim tUmæl-
um áleiðis tU Indónesíustjórnar
að hún bindi þegar I stað enda
á „þetta villimannalega fram-
ferði,“ og verndaði ííf og eignir
brezkra borgara.
Sendihe.rrann brezki, Andrew
Gilchrist, sem var sendiherra
Breta í Reykjavík í þorskastriðinu
eins og menn muna, komst út úr
sendiráðinu heilu og höldnu.
Hann var fluttur burtu í jeppa,
að því er bandaríska sendiráðið í
Djakarta skýrir frá.
Eldur var einnig lagður í krikk
ett-klúbb i Djakarta, en klúbb-
ur þessi er helzta miðstöð brezkra
borgata, sem búsettir eru í borg
inni. Þá var einnig ráðizt að heim
ili Gilchrist sendiherra og ann-
arra Breta.
Árásin á brezka sendiráðið í
dag er önnur árásin á þremur dög
um. Skríllinn ruddist inn í bygg
inguna og brátt var lagður eldur
að byggingunni. Þegar eldurinn
tók að breiðast út var skjölum og
húsgögnum forðað út um glugga
á byggingunni. Ekki virtust nein
ar tilraunir gerðar til þess að
hefta útbreiðslu eldsins.
í morgun var einnig gerð árás
á sendiráð Malaysíu í Djakarta.
Óeirðirnar voru fyrir utan sendi
j ráð Breta og Malaysíu þegar til-
j kynnnt var um stofnun Malaysíu
fyrir nokkrum dögum og í Ku-
ala Lumpur, höfuðborg Malaysíu
hafa verið óeirðir undanfarna
daga til þess að mótmæla stefnu
Indónesíu gagnvart hinu nýja
sambandsríki.
í dag skipaði stjómin í Djak-
art vinstrisinnuðum verkalýðsfé-
lögum að afhenda stjórnina á brezk
um fyrirtækjum, sem þau tóku
í sínar hendur í gær, aftur fyrri
eigendum.
Subandrio, utanríkisráðherra
Indónesiu er á leið tU New York
þar sem hann hyggst sitja Alls
herjarþing Sþ, sem er nýkomið
saman til fundar. Þar hyggst hann
bera upp Malaysíu-málið, en í gær
mótmælti Sþ-fulltrúi Indónesíu
aðild sambandsríkisins að sam-
tökunum.
í Manila, höfuðborg Filippseyja
virðist gæta vaxandi andúðar og
vafa á stöðu stjórnarinnar gegn
Malaysiu og hefur það m.a. kom-
ið fram í ritstjórnargreinum
blaða.
Þriðja bókarhandriti
Djilasar smyglað út
MILOVAN DJILAS, fyrrver-
andi varaforseti Júgóslavlu,
sem situr í fangelsi í Júgó-
slavíu vegna skrifa sinna með
afhjúpunum um kommúnism-
ann, hefur tekizt að smygla
þriðja handritinu til útlanda,
að því er Lundúna-blaðið
,,DaiIy Telegraph” hermir.
Djilas, sem eitt sinn var
nánasti samstarfsmaður Titós
og sá maður, sem forsetinn
treysti bezt, var liandtekinn
1956 fyrir gagnrýni á fyrrv,
leiðtoga sína. Hann er nú 52
ára að aldri.
Fangelsisdómurinn var
lengdur þegar hann hafði
smyglað handritinu að bókinni
„Hin nýja stétt” út úr fangels-
inu, en sú bók var gagnrýnl á
kommúnistíska valdagosa. —
Hann afplánar nú átta ára dóm
sem hann fékk 1962 fyrir birt-
ingu endurminninga hans um
Stalín.
UPI-fréttastofan hermir, að
fangavistin hafi haft slæm á-
hrif á heilsu Djilas, en ein-
angrunin hefur þó ekki haft
eins slæm áhrif á hann og ó-
frávíkjanleg skipun Titos um,
að hann fái ekki aðgang að
skriffærum í fangelsinu.
Kona Djilas og lítil börn
þeirra búa við kröpp kjör í
Belgrad. Yfirvöldin hafa bann-
að henni að taka við tekjum af
sölu bókar manns hennar er-
lendis og júgóslavneskir komm
únistar hafa gengið svo langt
í því að leggja hart að henni,
að þeir hafa lagt til, að hún
gæti bætt aðstöðu sína með þvi
að sækja um skilnað við mann
sinn, að þvi er heimildir þess-
ar herma.
Milovan Djilas var einn nán
asti vinur og samstarfsmaður
Titos í skæruhernaðinum í
síðustu styrjöld og seinna, þeg
ar kommúnistastjórn var kom-
ið á í Júgóslavíu.
Árbæjarsafn
lokað
ÁRBÆJARSAFNI var lokað sl.
sunnudag. Næstu vikur verður þó
hægt fyrir ferðamenn og hóp-
ferðafólk að fá leiðsögn um safn-
ið gegn venjulegum aðgangseyri
með því að tilkynna fyrirfram í
síma 18000 (Skjala- og minjasafn
borgarinnar) um heimsóknartíma
og taka leiðsögumann með í Skúla-
túni 2.
Á sama tíma er Minjasafn borg-
arinnar í Skúlatúni 2 opið dag-
lega kl. 2-4 án aðgangseyris.
Á laugardögum og sunnudögum
kl. 2-4 gefst almenningi kostur á
að sjá borgarstjórnarsalinn í hús-
inu, sem m. a. er prýddur vegg-
málverki Jóns Engilberts og gobe-
línsteppi Vigdísar Kristjánsdóttur
eftir málverki Jóhanns Briem af
fundi öndvegissúlnanna, sem
Bandalag kvenna í Reykjavík gaf
borgarstjórninni.
I Kuala Lumpur hefur Tunku
Abdul Rahman, forsætisráðherra
Malaysiu tilkynnt, að varnir sam-
bandsrík-sins verði efldar vegna
ógnunarinnar af hálfu Indónesa
og Filippseyja. Stofnað verði sér-
stakt fandvarnaráð, sem háttsett
ir ráðherrar og hershöfðingjar fá
sæti í.
Allar greinar heraflans verða
efldar og varnirnar í Sarawak og
Sabah (áður brezka Norður-Born-
eó) alveg sérstaklega. Þar eru ör
yggissve.tir og almennir borgarar
við öllu búin til þess að verja
landamærin við Indónesíu, sem
er 250 mílur á lengd. Sagt er, að
Indónesar hafi komið upp her-
þjálfunarbúðum skammt frá
landamærunum.
Duncan Sandys, samveldismála
ráðherra Breta, hefur sagt í Ku-
ala Lumpur, að Bretar séu reiðu
húnir að veita aðstoð til vemdar
frelsi og fullveldi Malaysíu.
Kennedy Bandaríkjaforseti hef
ur í skeyti til Malaysíustjórnar
látið í ljós þá von að framhald
verði á góðum samskiptum. (Grein
um Malaysíu er í opnu).
KENNARAR
Framh. af 1 sfðu
anlega ræzt úr þessum málum und
anfarin haust. :
Kennarar fengu allgóða kjarai
bót í sumar frá því sem áður var^
Töldu þá sumir, að nú myndf
vandi þjóðarinnar af kennaraskort-
inum minnka eða jafnvel verða úr
sögunni. Reynslan í haust hefur
ekki orðið sú. Enn vantar okkur
kennara. Kennarastarfið virðist
enn ekki nægilega aðlaðandi til
þess að menn almerint telji það
eftirsóknarvert. Mikil ábyrgð og
mikill vandi hvílir á skólimum.
Það gerir þjóðin sér ljóst og þess
vegna bíður hún og vonar hið
bezta. i
ÍÞRÓTTIR
Framh. af 10. síðu
4x100 b boðhlaup KR 12 ÍR 4)
A-sveit KR 45.0 sek. (Einar G., Ól-
afur, Válbjöm, Einar Fr.)
B-sveit KR 48.2 sek. (HaUdór G.,
Valur, Kristl., Agnar L.)
A-sveit ÍR 49.1 sek. (Hreiðar, Hann
es, Erlendur, Þórarinn)
4x400 m. boðhlaup (KR 12 ÍR 4)
A-sveit KR 3:36.2 mín. (Ólafur,
Valur, Agnar, Valbjörn).
B-sveit KR 3:51.4 min. (Einar G.,
Páll, Halldór G„ Kristl.)
A-sveit ÍR 3:57.3 mín. (Hreiðar,
Hannes, Erlendur, Þórarinn).
Stigin:
Ipt 260 — ÍR 129 — Á 10
MtMMMmtÍtMMMMMHWIV)
Síldin fil
Rússlands
í SAMBANDI við frétt, er
Alþýðublaðið birti í gær um
sildarsölu til Sovétríkjanna,
vill blaðið taka fram, af
gefnu tilefni, að fréttin er
ekki höfð eftir Erlendi Þor-
steinssyni, formanni Síldar-
útvegsnefndar.
Að vísu sneri blaðið sér
til hans í gær eftir að frétt-
in hafði verið birt í blaðinu.
Hann sagði, að þarna væri
um ágreining að ræða, en
nefndin væri ekki farin að
ræða þetta mál.
ALÞÝÐUBLA! ! - - 19 sept. 1963 3