Alþýðublaðið - 21.09.1963, Page 3
aphilindo
toppfundur
tiilaga Tunku Abdul Rahmans
Þingmenn viija
vopnlaust svæði
Rússneskar flug-
vélar suð-vestur
af íslandi
ORRUSTUÞOTA frá KeHa-
víkurflugrvelli sá í gærdag
tvær rússneskar farþegaþot-
ur á flugi í 35 þúsund feta
hæ'ð um 700 mílur suð-suð-
vestur frá Reykjavík. Voru
þær því næst miðja vegu
milli íslands og Skotlands.
Er mjög líklegt að vélar
þessar hafi verið að koma
frá Kúbu, en Rússar eiga
farþegaflugvélar, sem geta
flogið í einum áfanga frá
Moskvu til Kúbu, og þurfa
hvergi að millilenda. Geta
þessar vélar borið mikið
eldsneyti, og hefur þeirra
orðið vart af og til að und-
anförnu.
Flugmenn þeirra hafa ekk
ert samband við flugstjórnar
menn í Ameríku eða Evr-
ópu, enda eru Rússar ekki í
ICAO, — Alþjóðaflugmála-.
samtökunum, og ber því
ekki að láta vita um flugleið-
ir sínar.
Belgrad, 20. september
(NTB-Reuter)
ÞINGMENN hvaðanæfa að úr
heiminum lýstu yfir stuðningi í
ályktun, sem samþykkt var á loka-
fundi ráðstefnu Alþjóðaþing-
mannasambandsins f Belgrad í
dag, við stofnun kjarnorkuvopna-
iausra svæða undir traustu eftir-
liti og með takmörkuðum herafla
í ýmsum hlutum heims.
Ráðstefnan samþykkti með 17
atkvæða meirihluta bandaríska
tillögu um að sleppa grein í upp-
kastinu að ályktunartillögunni
þar sem sérstaklega var vísað til
mikilvægis svæðis með takmörk-
uðum herafla í Mið-Evrópu. Banda
ríski fulltrúinn taldi slíkt mundu
valda deilum, einangra Mið-Evr-
ópu og auka vandamál, sem varða
einkum þessi landssvæði.
Rúmlega 480 fulltrúar frá 58
löndum sátu ráðstefnuna. Skorað
var á öll ríki, sem ekki hafa und-
irritað Moskvu-samninginn um tak
markað tilraunabann a* gera það
hið fyrsta.
! Frú Ngo Dinh Nhu, mágkona
Diems forseta í Suður-Vietnam
sat ráðstefnuna og er hún komin
til Aþenu, en þaðan fer hún senni-
lega til New York.
SKOPTEIKNARINN
LOW ER LÁTINN
LONDON 20.9 (NTB-Reuter).
Hinn kunni skopteiknari Sir David
Low lézt I London í gærkvöldi,
72 ára að aldri.
Low. sem er fæddur í Nýja-
Sjálandi var búsettur í Bretlandi
síðan 1919. í 23 ár starfaði Low
við íhaldsblaðið „Evening Stand
ard,“ en á síðari árum teiknaði
hann fyrir Manchester-blaðið
„The Guardian."
Sir Winston Churchill kaUaði
Low mesta blaðateiknara vorra
ííma.
Hrint
á götu
Ungum dreng var hrint á götu
úti í gær með þeim aflciðingum,
að hann meiddist á höfði og var
flultur á Slysavarðstofuna.
Hér var um að ræða Svein Lárus
Austmann 11 ára gamlan dreng,
sem talið er að hafi verið á hjóU
á mótum Bergsta'ðastrætis og
Skólavörðustígs er drukkinn mað
ur sveif á hann og ýtti við hjól
inu svo að Sveinn féll í götuna
með fyrrgreindum affeiðingum.
Þetta gerðist kl. 18.48 í gærdag
Við rákumst á þá, þar sem
þeir voru að drekka kaffi í
Ingólfskaffi í gær. Þetta eru
fulltrúar neytenda í Sex-
mannanefndinni, sem svo
oft hefur verið getið í frétt
um að undanförnu. Þeir
eru Sæmundur Ólafsson,
Einar Gíslason og Eðvarð
Sigurðsson. Hvað þeir voru
að ræða um fengum við ekki
að vita.
★ ÞING KEMUR SAMAN
Forseti þjóðþings Malaysíu, Dato
Haji Noah Bin Omar, skýrði frá
því í dag, að þjóðþingið yrði sett
1. október.
Kuala Lumpur, 20. sept.
(NTB - Reuter)
Forsætisráðherra sambandsríkis-
ins Malaysíu, Tunku Abdul Rah-
man, sagði í útvarpsræðu í dag, að
hann væri fús til með nokkrum
skilyrðum að íhuga hugmyndina
um æðstu manna fund Malaysíu,
Indónesíu og Filippseyja (Map-
hilindo)
Eitt skilyrðið er það, að Indó-
nesía skipi hersveitum sínum að
hörfa frá landamærum Indónesíu
og Sarawak og Norður-Borneó.
★ BREZK FYRIRTÆKI
Forseti Indónesíu, Sukarno, skip-
aði indónesískum yfirvöldum í
dag að taka að sér stjórn brezkra
fyrirtækja í landinu. í opinberri
tilkynningu segir, að fyrirmælin
miði ekki að þjóðnýtingu fyrir-
tækjanna. heldur að því að tryggja
framleiðsluna.
Sendiherra Breta í Indónesíu,
Andrew Gilchrist, átti í dag við-
ræður við brezka káupsýslumenn,
sem skýrðu honum svo frá, að ó-
eirðarseggir hcfðu brennt eða
rænt 28 hús, sem voru í eigu
brezkra fyrirtækja.
Brezkar flugvélar fluttu í dag
28 konur og börn frá Indónesíu til
Singapore.
★ EFLING LANDVARNA
Tunku Abduí Rahman forsætis-
ráðherra sagði í ræðu sinni, að
hann væri viss um það, að spenna
sú, sem nú ríkti, væri bráðabirgða
ástand.
1 Hann tók harða afstöðu gegn
ofbeldisverkunum í höfuðborg
Indónesíu, Djakarta.
Hann minnti á, að stjóm Malay
síu hefði komið á fót landvarna-
ráði og gert ráðstafanir til þess
að efla landvarnir. Hann kvað
þetta hafa verið gert þar eð aldrei
væri hægt að vita með vissu hvað
mundi gerast. Malaysíumenn
verða að verja land sitt óg þjóðar-
heiður hvað sem það kostar, sagði
hann.
Fyrr um daginn hélt Rahman
því fram, að hann mundi.senni-
lega fallast á japanska málamiðl-
un, ef Japanir biðu upp á slíkt.
í fuUtrúadeild þjóðþingsins íá
159 menn sæti, þar af 104 frá Mal-
aya, 24 frá Sarawak, 16 frá Sabah
(Norður-Borneó) og 15 frá Singa- ;
pore.
Dato Noah sagði, að hann
mundi eiga fund með forsætisráð
herranum um það, hvort Malaysía
skuli viðurkenna stjórnina á For-
mósu sem stjórn Kína.
Flytur Izvestia
stórfrétt í dag
Moskva, 20. september
(NTB-Reuter)
MÁLGAGN sovézku stjórnarinn-
ar, „Izvestia”, kom ekki út síð-
degis í dag. Hins vegar var frá
því skýrt að blaðið kæmi í þess
stað út á morgun.
Slfkar seinkanir koma fyrir
mörgum sinnum á ári, og tákna
venjulega, að blaðið flytur sér-
staklega mikUvæga frétt.
Kennedy vongóður um samkomulag
Framh. af 1 síðu
Meðan þessi ágreiningsefni eru
til mynda þau takmörk fyrir samn
ingum þeim, sem hægt er að gera
og þau koma í veg fyrir, að báðir
aðilar sofni á verðinum. Varnar
liðum okkar víðsvegar í heimm-
ura verður hald ð við til þess að
vernda frelsið — og ásetningur
okkar að tryggja þetta frelsi mun
geta svarað sérhverri ógnun og
ögrun.
En ég vil segia leiðtogum' Sovét-
ríkjanna og sovézku þjóðinni, að
ef lönd okkar eiga að vera full-
komlega örugg þurfum við miklu
betri vopn en vetnissprengjuna,
vopn, sem er betra en eldflaugar,
sero skjóta má heimsálfa á milli
eða kjarnorkuknúðir kafbátar, og
þetta vopn er friðsamleg sam-
vinna sagðj Kennedy.
Kennedy minntist ekki í ræðu
sinni á tillögua, sem Gromyko
utanríkisráðherra kom fram með
í gær um fund helztu stjórnmála-
manna þeirra landa, sem fulltrúa
[e'ga í afvopnunarnefndinni 1964.
| Hann taldi mikilvægt að atlivgl-
isverðum árangri Sþ í Kongó
jyrði ekki stofnað í hættu. Hann
! minntist á beiðni kongósku mið-
stjórnarinnar um, að hermenn Sþ
verði í Kongó lengur en til næstu
áramóta og hvatti Sþ til að varð-
veita framför þá, sem þegar hefur
orðið, og vernda þjóðina í baráttu
hennar fyrir frekari þróun í já-
kvæða átt.
í sambandi við mannréttindi
drap Kennedy á ástandið í S,-
Vietnam, og sagði að þessi rétt
indi hefðu ekkj verið virt í of-
sóknunum gegn búddatrúarfólki.
Einnig minntist hann ó beint á
Mindzenty kardinála og atburðinn
í Birmingham sl. sunnudag þegar
fjórar negrastúlkur voru drenpar.
Bandaríkin eru á móti misrétti
og ofsóknuro vegna hörundslitar
eða trúarbragða hvar sem er í
heiminum — einnig í Bandaríkjun
um. Við reynum að bæta galla í
fari okkar sjálfra, sagðj hann.
Hann kvað Bandaríkjastjórn
hyggjast binda endi á kynþáttamis
rétti um alla framtíð og lagði
enn fremur áherzlu á andúð stjórn
arinnar á apartheid-stefnunni í
Suður-Afríku. Hann beindi hér
málj sínu til fulltrúa Asíu- og Af-
ríkuríkja en bætti við, að þeldökk
ir Afríkumenn hefðu ekki rétt
til að reka alla hvíta Afríkumenn
i úr löndum sínum. Hann kvað
r Bandaríkjamenn vilja réttindi til
í handa öllum mönnum með sömu
r vernd og sömu tækifærum.
* Forsetinn hvattj til þess að Sþ
gegndi veigameira hlutverki en
til þessa í starfi þvi, að tryggja
, það að allir menn geti notið góðs
^ af nútíma vísindum og iðnaði
í Kennedy kvaðst vongóður um
r að bandariska öldungadeildin
- samþykkti á þriðjudaginn með yf
k irgnæfandi meirihluta atkvæða
t Moskvusamninginn um takmark-
n að tilraunabann.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 21. sept. 1963 3