Alþýðublaðið - 21.09.1963, Blaðsíða 7
HIN SlÐAN
AlbÝÐUBLAÐIÐ -
GIÖAJaUW'tlA
21. sept. 1963 7
— Sðt? .1093 .$*
BELGIR DRYKKFELLDASTIR
BELGAR halda sífellt sæti sínu
sem mestu ölþambarar heims. —
í>eir eru mun hlutskarpari Þjóð-
verjum, sem þó standa framarlega
í röðinni og auka sífellt bjór-
drykkju sína.
Árið 1962 drukku Belgar því
sem nam 121.5 lítra á mann af á-
fengum bjór, Þjóðverjar voru þá
1 öðru sæti með 708 lítra á mann.
Ástralíumönnum, sem voru í 2.
sæti 1961 fer stöðugt aftur, grann-
ar þeirra á Nýja-Sjálandi hafa
farið fram úr þeim með 103.5 1.
á mann, og sjálfir verða Ástra-
líumenn að láta sér nægja fjórða
sætið með 101.5 lítra á mann.
í fimmta sætið er langt skref
niður á við. Þar kóma Austurrík-
ismenn með 84 lítra á mann yfir
árið. Þvínæst koma Bretar með
78 lítra, Danir með 75 lítra, og
Kanadamenn með 60 lítra. Frakk-
ar drukku aðeins 36.4 litra af á-
fengum bjór á mann árið 1962 en
samt sem úður stígur bjórneyzla
þeirra mjög.
Bjórneyzlan árið 1962 var nýtt
Hámark í sögunni. Hún nam 418.8
milljón hektólítrum og nam aukn
ingin frá 1961 3.6 prósentum.
Endurminningar
drottningarinnar
GRÍSKA drottningin Frederika
er nú í þann veginn að hefja rit-
un endurminninga sinna. Banda-
rískur kvenrithöfundur, búsettur
i Englandi, Fleur Cowles, ætlar að
aðstoða drottninguna við þetta
starf.
Fjöldi bókaforlaga hefur þegar
látið í ljós áhuga fyrir þessari
væntanlegu bók, þar á meðal
bókaforlög í London. Móttökur al-
mennings þar voru ekki alltof
innilegar eins og menn muna, er
drottningin var þar á ferð fyrir
skömmu, og Breta langar greini-
lega að vita, hvernig Frederika
ber þeim söguna.
Handtekinn
að ósekju
HINN 22 ára gamli Tommaso
Pinto frá Mílanó hafði ákveðið að
eyða sumarleyfi sínu í ferðalög á
þumalfingrinum. Það virtist þó
ekki ætla að ganga vel, því að
enginn bílstjóri stanzaði til að
taka Tommaso upp, þar sem
hann arkaði þungum, vonleysis-
legum skrefum í ryki þjóðvegar-
ins.
Þar kom þó, að Tommaso sá, að
ekki mátti lengur við svo búið
standa. Hann dulbjóst sem ung
stúlka og setti á sig ljósa hár-
kollu. Eftir það hafði Tommaso
ekki við að þiggja bílferðir. En
einhverjum bílstjóranum mun
hafa fundizt búa flagð undir fögru
skinni, þar sem unga, ljóshærða
stúlkan var, því að Tommaso var
kærður fyrir tiltæki sitt.
Skarst lögreglan í leikinn og
handtók Tommaso. Erfiðlegast
gekk þó að semja ákæruna á
hendur honum. Maðurínn hafði
nefnilega ekkert gert af sér ann-
að en blekkja kvenholla bifreiða-
stjóra!
8.00
12.00
13.00
14.30
16.30
17.00
18.00
18.30
18.55
22.00
20.00
20.35
19.20
22.10
24.00
Laugardagur 21. september
Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Tónleikar. — 8,30 Fréttir. —
8.35 Tónl. — 10.10 Veðurfregnir).
Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
Öskalög sjúklinga (Kristín Anna Þórarinsdóttir).
Laugardagslögin. — (15.00 Fréttir).
Veðurfregnir.
Fjör í kringum fóninn: Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustu
dans- og dægurlögin.
Fréttir. — Þetta vil ég heyra: Kjartan Skúlason verzlunar-
maður velur sér hljómplötur.
Söngvar. í léttum tón.
Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson).
Tilkynningar.
Fréttir og veðurfregnir.
Ballettmúsikin „Coppélia" eftir Leo Delibes (Óperuhljóm-
sveitin í Covent Garden leikur; Robert Ii-ving stj.).
Leiki-it: „Fimmtíu þúsund á fyrsta hest“ eftir Edgar Wallace.
— Þýðandi og leikstjóri: Flosi Ólafsson. Leikendur: Ævar R.
Kvaran, Rúrik Haraldsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Kristbjörg
Kjeld, Brynjólfur Jóhannesson, Árni Tryggvason, Róbert Arn
finnsson, Gestur Pálsson, Haraldur Björnsson, Baldvin Hall-
dórsson o. fl.
Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
Danslög, þ. á . m. leikur hljómsveit Svavars Gests íslenzk
dægurlög. Söi>gvarar: Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarnason
(Áður útv. 9. marz s. 1.).
Dagskrárlok.
LEIKA OG SYNGJAIAUSTUR
ÆJARBIÖI
í KVÖLD halda Svavar Gests
og hljómsveit hans fjórðu skemmt-
un síng í Austurbæjarbíói í Reykja
vik. Er það nýjung út af fyrir sig,
að ein og sama hljómsveitin fylli
hús kvöld eftir kvöld á sjálfstæð-
um skemmtunum, — þ. e. a. s. án
utanaðkomandi aðstoðar, — en
það hefur þeim Savari tekizt að
þessu sinni sem oftar. Miðarnir
hafa selzt upp á örskömmum
tíma, og ef vel tekst til í kvöld, get
ur verið, að þeir félagar haldi á-
fram enn um hríð.
— í Austurbæjarbíói erum við
með sömu skemmtiatriði og við
nöfum sýnt úti á landi í nýafstað-
inni ferð okkar þangað, sagði
Savar Gests í viðtali við Alþýðu-
blaði. Við leikum gömlu og ný
lög, einsöngvarar syngja með
hljómsveitinni og auk þess er
kvarteetsöngur. Einnig erum við
með skopþætti og annað hlátur-
efni. í stuttu máli sagt reynum
við með einhvað fyrir alla.
— Og ferð ykkar í sumar hef-
ur tekizt vej?
— Já, það er óhætt að segja.
Við komum á um þrjátíu staði,
held ég, og alls staðar var húsfyll-
ir. Til dæmis um gesti okkar má
geta þess, að á einni sk'emmtun-
inni vissi ég til, að yngsti gest-
urinn var 3ja mánaðar, — for-
eldrar hans komust nefnilega ekki
að heiman án þess að taka hann
með, — og sá elzti var níræður.
Auðvitað má svo gera ráð fyrir,
að aðrir hafi verið einhvers stað-
ar þarna á milli.
Það söng vel í Savari og hann
sagðist vænta þess, að enginn yrði
fyrir vonbrigðum, seg gerði sér
ferð í Austurbæjarbíó í kvöld kl.
11.15. Svayar biður fyrir bezfu
kveðjur og væntir endurfunda ýjð
lesendur Alþýðublaðsins.
Gervifrjóvgun
ríkari mæli
i
SOVÉZKUR vísindamaður, Jtfri
Knorozov, heldur því fram, að
hann hafi nú leyst gátu Maya-indi
ánanna. Þeir höfðu, sem kunnugt
er, sitt eigið stafróf og hingað til
hejfur engum tekizt að komast
fram úr því. Knorozov telur sér
hafa tekizt það með aðstoð raf-
eindaheila.
„FJÓRAR bandarískar konur
hafa fætt eðlileg börn eftir að hafa
verið frjóvgaðar með sæði, sem
geymzt hafði fryst við mínus 196
gráður á Celsíus 1 tvo mánuði,
upplýsti bandaríski læknirinn
Jerome K. Shermann á 9. erfða-
ráðstefnunni, sem haldin var í
Haag nýlega.
Dr. Sherman, sem er læknir
við rannsóknastofu háskólans í
Little Rock, Arkansas, skýrði enn
fremur frá því, að fjórar banda-
rískar konur í viðbót væntu sín,
eftir að hafa verið frjóvgaðar með
frystu sæði. Hafði sæðið verið
geymt frosið i þrjú ár, og eftir
þann tima, er nota skyldi sæðið,
kom í Ijós, að 70 prósent sáð-
frumanna var enn lifandi, og þyk
ir það góður árangur.
Þetta veldur í raun réttri bylt-
ingu á sinu sviði eins og vísinda
maðurinn benti á. Nú getur okkja
til dæmis eignazt barn með látn
um manni sínum, ef hún æskir
þess eftir dauða hans. Koma má
í veg fyrir erfðagalla með þessu
móti og bæta fólki börn. Einnig
opnar þetta möguleika fyrir kon-
ur, giftar vanmegna einstakling-
um, til að eignast börn, sem hjón
i.n geta svo með góðri samvizku
arið upp, sem sitt eigið. Með fryst
ingu hefur reynzt unnt að geyma
lifandi sæði óskemmt nm alllang
an tíma.
ALLEGRETTO
FURIOSO
í RÓMARÐAGBLAÐINU
„MessagerQ‘‘ var fyrir nokkm
músikölsk makaauglýsing, sem
hljóðaði svo: „Htjómlistarmaður
í góðri stöðu, 48 ára að aldri, ósk
ar eftir að kynnast fallegri kom*
ó aldrinum 20- tíl 40 ára með hjú-
skap fyrir augum. Tilboð séndist
hlaðinu merkt „Allégretto furi-
oso“.