Óðinn - 01.09.1907, Side 1
OÐINN
Konungsheimsóknin.
Eins og lofað var í síðasla blaði, koma lijer
nú nokkrar myndir frá konungslieimsókninni.
Fyrst er þá mynd forsætisráðherrans, I. C.
Christensens. Hann var hjer í sumar í föruneyti
konungs, hjelt hjer marg-
ar ræður í þingmanna-
veislunum í sumar og
orli kvæði til íslands,
sem sungið var í kvöld-
veislu alþingis 30. júlí
og prentað hefur verið
í sumum frjettablöðun-
um. Hann er nú orð-
inn eigi lítið við íslands-
mál riðinn, þar sem
hann er formaður sam-
bandslaganefndarinnar.
Ekkert getur það heitið
kunnugt enn, hvernig
hann lítur á þau mál,
en ráð hefur hann auð-
vitað mikil um það,
hvernig Danir snúast
við þeim.
J. C. Christensen er
fæddur 21. nóv. 1856 og
er jótskur bóndason.
Hann gelck á alþýðu-
kennaraskóla ogvarsíð-
an lengi kennari við al-
þýðuskóla í Stadíl á
Jótlandi, enda var hann
kendur við þann bæ,
þangað til hann varð ráðherra, og jafnan nefndur
Christensen-Stadíl. Hann var kjörinn þingmaður
1890 og fylgdi C. Berg, sem þá var foringi vinstri-
manna, fast að málum. Hafði Berg strax fengið
mikið álit á honum og komst Christensen brátt
inn í flokksstjórn vinstrimanna og ljet mikið til
sín taka. Eftir að Berg fjell frá, varð hann for-
ingi flokksins á þingi, og er stjórnarskiftin urðu,
1901, og vinstrimenn tóku við völdum, þótti hann
sjálfkjörinn í nýja ráðaneytið. Hann var þar fyrst
kirkju- og kenslumálaráðherra, en er breyting varð
á ráðaneytinu, í ársbyrjun 1905, varð hann for-
sætisráðherra. En þá klofnaði vinstrimannaílokk-
urinn, því sumum þótti nýja stjórnin ekki halda
við eldri stefnu
o. fl.
Ghristensen hefur mikið
bændafylgi, einkum á
Jótlandi, og er svo sagt,
að þar sje fullkominn
átrúnaður á honum.
Hann er liöfðinglegur
maður í sjón, mælskur
vel og hinn liprasti í
allri framkomu, gætinn
maður og stiltur. I’að
má líka lieita vel gert
af alþýðuskólakennara,
að komast í ráðlierra-
sæti, og þaðan í for-
sætisráðherra-stólinn, og
gera fæstir betur í þeim
sökum.
Þegar alþingismenn
voru í Danmörku í fyrra
sumar, fylgdi forsætis-
ráðherrann þeim alla
leið til Jótlands, og láta
þeir mjög vel af allri
framkomu hans. í
sumar var hann einnig
í konungsfylgdinni alla
leið til Geysis og Þjórs-
árbrúar, en búnaðarráðherran, Ole Hansen, sneri
aftur til Reykjavíkur frá Þingvöllum, eins og fleiri,
en fór síðan hjeðan aftur austur á gripasýninguna
við Þjórsárbrú.
Önnur myndin sýnir það, er rikisþingsmenn
koma í land og alþingismenn taka á móti þeim
ofan við bryggjuna 30. júlí. Lengst til vinstri